Ráðunautafundur - 14.02.1978, Blaðsíða 6
300
Fóðurnæpur hafa gefið mjög mikla uppskeru í tilraunum,
en reynslu vantar um það, hvernig á að nýta þetta fóður á sem
hagkvæmastan hátt að hausti.
Þá er rýgresi víða notað til beitar að hausti fyrir
sláturlömb, en ekki liggur fyrir, hversu mikill vöxtur fæst
á lömbum, sem beitt er á rýgresi samanborið við beit á
fóðurkál..
Mælingar hafa ekki legið fyrir um þáð, hvaða áhirif
háarbeit í vikutíma fyrir slátrun hefur á vöxt og kjötæði
lamba sem áður hefur verið beitt á grænfóður.
Jarðbönn fyrir lok sláturtíðar eru ekki algeng, en
vofa alltaf yfir um norðanvert og austanvert landið.
Engar tilraunaniðurstöður hafa legið fyrir í landinu
til að leiðbeina eftir um innifóðrun sláturlamba að hausti.
Þegar snjóa gerir á haustin, áður en sláturtíð er lokið
eiga bændur oft í miklum erfiðleikum með að forða sláturlömbum
frá að leggja verulega af.
Tilraunir með innifóðrun á sláturlömbum hafa ekki verið
gerðar, og því hefur alveg skort leiðbeiningar um það, hvernig
bæri að fóðra sláturlömb á innstöðu.
Tilraun sú, sem hér verður skýrt frá, haföi þríþætt
markmið.
1 fyrsta lagi var gerður samanburður á vexti lamba
sem beitt var á þrennskonar grænfóður, þ.e. fóðurkál, fóður-
næpur og rýgresi.
í öðru lagi var könnuð innifóðrun sláturlamba, annars-
vegar á sérstökum grænfóðurkögglum og hins vegar á næpukáli
og næpum til að afla reynslu um það, hvernig á að fóðra slátur-
l.ömb inni, þegar jarðbönn gerir fyrir slátrun.
I þriðja lagi var kannað, hvaða áhrif það hefur á
vöxt og k-jötgæöi sláturlamba, sem beitt er á grænfóður, að
beita þeim á há eða gefa þeim hey og fóðurköggla inni
síðustu vikuna fyrir slátrun.