Ráðunautafundur - 14.02.1978, Page 21
315
Eins og 4. tafla sýnir,er létting ánna frá 1. október til
26. nóvember, er tilraun hófst, svipuö í öllum flokkum,um 3,2.kg,
enda tekiÖ tillit til þessa þunga, þegar raðað var í flokka.
Frá 26. nóvember til 3. janúar, þ.e. á fengieldinu, þyngjast
ærnar x B og D flokki jafn mikið 2,1 kg, nokkuð meira (0,9kg)
í A flokki. Aftur á móti er þynging ánna í C-flokki, töðuflokknum?
lang minnst, aðeins 0,7 kg og sýnir það glögglega?hve fóöurgildi
töðunnar er lágt.
Á þessu tímabili, þ.e. fengieldinu, fitna ærnar mest í
B og D-flokki, aukningin í holdastigum nemur u.þ.b. 0,5 stigum
í þessum flokkum. í A-flokki er aukningin nokkuð minni eða 0,33
stig. í C-flokki, töðuflokknum, leggja ærnar aftur á móti veru-
lega af á þessum tíma, og nemur lækkun 0,22 stigum. Raunhæfur munur
reyndist í holdastigum 3. janúar (F = 7,46**) milli C-flokks
annars vegar og A, B, D flokka, hvers fyrir sig, hinsvegar.
Frá 1. febrúar til 23. mars þyngdust ærnar í öllum flokkum
álíka mikið, þó aðeins minnst í D-flokki. Erfitt virðist vera að
skýra þessa þyngingu, þar sem étið fóður eykst ekki á þessum
tíma. Hugsanleg skýring á þessu fyrirbæri gæti verið sú?að ærnar
hafi slætt minna á þessu txmabili er hér sennilega mest um kvið-
fylli að ræða. Frá 23. mars til 1. maí þyngjast ærnar í B og D
flokki álíka mikið, um 2,5 kg, í A flokki um 1,2 kg, og minnst í
C flokki, aðeins um 0,2 kg. Á þessu tímaDÍli þroskast og þyngist
fóstrið mest og er því mjög sennilegt að C flokksærnar hafi verið
mjög illa undirbúnar undir þetta tímábil, enda kemur það greini-
lega fram á fæðingarþunga tvílembinganna.
Þann 1. maí voru holdastigin mjög svipuð í fóðurbætisflokk-
unum (A, B og D) en langlægst í C flokki, töðuflokknum,og er raun-
hæfur munur (F = 5,38**) á stigum á honum og hinum flokkunum
hvers fyrir sig.
* raunhæft í 95% tilfella
** raunhæt í 99% tilfella