Ráðunautafundur - 14.02.1978, Blaðsíða 65
359
RAÐUNAUTAFUNDUR 1978
LANDN?TINGARTILRAUNIR A AUÐKdLUHEIÐI
Einar E. Gíslason
BúnaÖarsambandi Skagafjaröar
Tilgangur meö þessari tilraun er að finna út beitarþol
afréttarlands sem er í 200 m hæð yfir sjó. Landið sem tilraun-
in er á, er móajarðvegur, vaxinn lyngi, þursaskeggi og öörum
móagróöri, dökkt yfir að líta og óhrjálegt. Er ég leit á
landiö í fyrsta sinn, var ég £ vafa un, aö þarna gæti þrifist
kind hvaö þá skilað afurðum. En annað hefur komið í ljós,
þetta land hefur þegar sannaö aö auövelt er aö fá góöan vöxt
í dilka er ganga undir ám, sem beitt er á þetta land, án
þess að nokkuð sé fyrir þaö gert, aðeins ef þess er gætt aö
hafa hóflega margt í högunum, einnig breytist þetta land
strax í úrvals valllendis haga viö áburö. Tilraunalandið
er 259,2 ha á stærð, þar af er áborið 43,2 ha. Bæði áborna
og óáborna landið skiptist í sex hólf, þaö eru þrír beitar-
þungar og tvær endurtekningar. Er tilraunin hófst árið 1975
voru allir flokkar tilraunarinnar með sama fjárfjölda, en
landstærð hólfanna var misjöfn og stækkuöu hólfin viö hvern
beitarþunga eins og sjá má á mynd 1. Þaö kom í ljós strax
áriö 1975, að óeðlilega lítill munur var á vænleika fjárins
£ lítið beittu og meðalbeittu hólfunum og var því þaö ráö
tekið að fjölga í þeim tilraunahólfum er áttu aö vera mikið
beitt og hóflega beitt til þess að reyna aö finna út hvar
hin hagfræðilegu mörk liggja, það er aö fá fulla nýtingu á
landið og.sem næst fullar afurðir af fénu án þess aö ganga
á eöa eyðileggja landið. A mynd 1. er sýnd afstaða tilraun-
arinnar og merkt inn á landstærð og nr. á tilraunahólfunum,
einnig er hér tafla meö skýringum á reitanúmerunum.