Ráðunautafundur - 14.02.1978, Blaðsíða 8
302
E-flokkslömbunum var beitt á rýgresi á 0,32 ha spildu
frá 22. september til 17. október, en þá skipt í þrjá hópa
eins og hinum flokkunum. Var einum þeirra, E1, beitt á rý-
gresi áfram til 24. október, öörum, E2, gefið inni hey og
kögglar fram aö slátrun og þeim þriðja, E3 , beitt á há til
24. október.
Undirflokkarnir C2, D2, og E2 voru fóðraðir saman inni
og undirflokkunum C3, D3 og E3 var beitt saman í há.
Lömbin í flokkunum C, D og E höfðu ekki aðgang að .
annarri beit en grænfóðrinu á þeim tíma, sem grænfóðurbeitin
stóð yfir. Grænfóðrið entist á öllum spildunum allt tilrauna-
skeiðið. Þó voru blöð að mestu búin af bæði káli og næpum,
kálstönglar allmikið bitnir, en næpur lítið bitnar, þegar
tilraun lauk. Rýgresið var allmikið bælt í lok tilraunar.
F-flokkslömbunun var slátrað 23. september.
Fóðurskýrslur voru haldnar yfir lömbin í A- og B-
flokkum tímábilið 23.september til 23. október að báðum
dögum meðtöldum og yfir lömbin í flokkunum C2, D2 og E2
tímabilið 18. október til 23. október að báðum dögum
meðtöldum.
Sýnishorn voru tekin af heyi, kögglum, síldarmjöli
og næpum sem gefið var og þurrefni þess, efnasamsetning
og fóðurgildi ákvarðað.
Lömbin voru öll vegin á fæti 20. september og lömb-
in í flokkunum A1, B, C, D og E voru vegin aftur 17.
október og 24. október. Við síðustu vigtunina var skráð,
hvort lömbin voru með skitu eða ekki. Þessum lömbum var
slátrað 26. október.
Við slátrun var sérvegið af hverju lambi fall,
gæra, netja, nýrmör og lifur. Þá voru tekin eftirfarandi
mál á föllunum.