Ráðunautafundur - 14.02.1978, Blaðsíða 11
305
í 3. töflu eru sýnd meðaltöl yfir þverskuröarmál
á skrokk, og kemur þar fram, að lömbin í C-, D- og E-flokki
hafa haft mun betur þroskaðan bakvöðva heldur en lömbin
x A- og B-flokki. Mögrust hafa lömbin í B-flokki verið,
þar næst í A-flokki og þá £ C-flokki en nokkru feitari x
D- og E-flokki.
Neðst í 3. töflu sést, að lömbin sem voru á græn-
fóðrinu fram að slátrun og þau sem voru á innifóörun viku
fyrir slátrun hafa haft mjög svipað fitu- og vöðvamagn,
en lömbin, beitt var á hána í viku fyrir slátrun hafa
haft heldur minni vöðva og fitu, enda voru þau um 1 kg
léttari á skrokk, eins og áður er bent á.
Heimildir
Halldór Pálsson og Pétur Gunnarsson, 1961. Bötun slátur-
lamba á ræktuðu landi. Rit landbúnaðardeildar, B-Flokkur,
nr. 15.
Halldór Pálsson og Runólfur Sveinsson, 1952. Fitun slátur-
lamba á ræktuðu landi. Rit landbúnaðardeildar, A-flokkur,
nr. 5.
Páll A. Pálsson, 1977. Agallar á kálbeit sláturlamba.
Handbók bænda, 27, 171-172.