Ráðunautafundur - 14.02.1978, Side 59
353
RÁÐUNAUTAFUNDUR 1978.
RANNSÖKNIR Á SNÍKJUDÝRUM KÁLFA OG KINDA
1 BEITARTILRAUNUM Á HVANNEYRI.
Sigurður H. Richter
Tilraunastöð háskólans í meinafræði, Keldum.
INNGANGUR.
Á sxðari árum hefur orðið æ ljósara að margir af afréttum
landsins hafa verið ofbeittir. Hefur því aukist áhugi manna
á að beita sauðfá á sumrin á láglendishaga, þar sem þrengra
er á því. Áhugi á eldi nautgripa til slátrunar fer einnig
vaxandi og munu þeir líklega ganga að miklu leyti í þröngum
högum.
Þegar gripum er beitt á sama þrönga landið sumar eftir
sumar, fer ekki hjá því að ýmsar tegundir sníkjudýra, einkum
ormar, magnist upp á beitilandinu, sé ekkert að gert. Við
það dregur mjög úr þrifum dýranna, einkum ungviðisins. Rann-
sóknir þær er hér er sagt lauslega frá, staðfesta einmitt
þessa hættu og gefa hugmynd um hversu mikið þetta vandamál er.
RANNSÓKNIR.
Beitartilraunirnar hófust á Hvanneyri sumarið 1975 og
hafa staðið síðan, en sníkjudýrarannsóknirnar hófust ekki af
fullum krafti fyrr en 1976. Fyrirkomulag tilraunanna er sýnt
í stórum dráttum á mynd 1. Beitarhólfin eru á framræstu mýrar-
túni og beitartími frá byrjun júní og fram í september. Engin
ormalyf voru gefin 1975, en 1976 og 1977 voru í annarri tví-
tekningunni gefin ormalyf á þriggja vikna fresti fyrra árið og
hálfsmánaðarlega seinna árið, allt beitartímabilið.
Fylgst var með sníkjudýrunum og áhrifum þeirra reglulega.
Þær aðferðir er notaðar voru eru talning á smithæfum lirfum
á beitilandi, talning hnísla, ormaeggja og ormalirfa í saur,