Ráðunautafundur - 14.02.1978, Blaðsíða 15
309
Rannsóknar’efni og að'ferðir.
í tilraun þessari voru 200 ær á aldrinum 3ja til 9 vetra.
Þeim var skipt í fjóra eftirfarandi flokka meó 50 ám í hverjum
flokki:
A-flokkur - Taöa + graskögglar
B-flokkur - TaÖa + fóöurblanda
C-flokkur - Taða
D-flokkur - Taða + graskögglar með 4% fóðurfitu.
Við skiptingu ánna í flokka var tekið tillit til eftirfarandi
atriða: aldurs ánna, frjósemi undanfarinna ára, meðalafurðastigs,
þunga á fæti 1. október og 1. nóvember um haustið áður en til-
raunin hófst, en hún hófst, er farið var að hýsa ærnar þann 26.
nóvember.
Áætlað var að fóðra flokkana þannig að fóðurbætisflokk-
arnir (A, B og D flokkur) fengu alls 0,56 FE til jafnaðar
handa á á dag til viðhalds, þar af fengi hver þessara flokka
0,14 FE í viðkomandi kjarnfóðri, þ.e. graskögglum, fóðurblöndu og gras-
kögglum með 4% fóðurteiti. Töðuflokkurinn (C flokkur) skyldi fá töðu að vild
allan veturinn. Fengieldi varáætlað 0,54 FE handa á á dag í fóður-
bætisflokkunum , (A, B og D-flokkum) £ viðkomandi fóðurbæti.
Eftir fengitíma var áætlað að fóðra með viðhaldsfóðri þar til
síðustu 6-7 vikurnar fyrir burð, en þá skyldi auka fóðrið um
0,2-0,3 FE til jafnaðar handa á fram að burði. Eftir burð
var áætlað að gefa tvílembum í fóðurbætisflokkunum (A, B og D)
0,60 FE í viðkomandi fóðurbæti og einlembunum 0,30 FE handa á
á dag og töðu að vild. Eftir burðinn var gert ráð fyrir að
flokkarnir yrðu fóðraðir í aðskildum hólfum, þar til ánum væri
sleppt í úthaga. Ekki reyndist unnt að framkvæma það, þar sem
ekki voru til næg hólf, og var því brugðið á það ráð að sameina
tvílembur úr grasköggla flokknum (A og D) og fóðra þær sér.
Jafnframt voru tvílembur úr þessum flokkum fóðraðar í sérstöku
hólfi.