Ráðunautafundur - 13.02.1980, Blaðsíða 18
146
þeir eru ársgamlir og er þyngdaraukningin á þessu tímabili not-
uð sem mælikvarði á vaxtarhraða.
Eftir hverja viktun er fóðurbætisgjöfin aðlöguð eftir
þyngd hvers kálfs (sjá fóðurtöflu hér á eftir). Heyátið er
mælt 1/2 mánaðarlega. Þegar kálfarnir eru ársgamlir eru þeir
myndaðir og ýmiss líkamsmál tekin.
Fóðrun
• Allt fóður er efnagreint til þess að fóðrunin geti verið
sem nákvæmust og einnig vegna útreiknings á fóðurnýtingu.
Kálfarnir hafa verið fóðraðir á eftirfarandi hátt:
a) Frá komu (10-20 daga) til 6 vikna aldurs:
4 lítra T-mjólk (2 lítrar í mál)
Kálfakögglar eftir lyst, hey eftir lyst
alltaf aðgangur að fersku vatni.
b) 6 vikna: 4.5 lítrar T-mjólk, 300 g kálfakögglar,
frjáls aðgangur að heyi og vatni.
c) 7 vikna: 4.5 lítrar T-mjólk, 450 g kálfakögglar,
frjáls aðgangur að heyi og vatni.
d) 8 vikna: 4 lítrar T-mjólk, 700 g kálfakögglar
e) 9 vikna: 2 lítrar T-mjólk, 1000 g kálfakögglar
f) 10-12 vikna: Smá minnka T-mjólkina, 1.5 kg kálfakögglar
g) Fóðrun eftir þann tíma:
Þyngd, kg. ______Kjarnfóður kg/dag
- 100 mesta gjöf 1, , 5 (kálfakögglar)
101 - - 150 1. ,5 (A eða B 'blanda)
151 - - 225 2. ,0 (B eða C blanda)
226 - - 300 2 , , 5 ( " u )
301 - - 350 3. ,0 ( " It )