Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2016, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2016, Page 13
Helgarblað 14.–17. október 2016 Fréttir 13 ÞITT BESTA VAL Í LITUM HANNAH NOTAR LIT 3-65 PALETTE DELUXE NÚ MEÐ LÚXUS OLEO-GOLD ELIXIR GERÐU LIT AÐ LÚXUS FYRIR ALLT AÐ 30% MEIRI GLJÁ* NR. 1 Í EVRÓPU NÝTT Fæst í öllum helstu apótekum og Heilsuhúsinu.www.provision.is Viteyes AREDS2 er andoxunarvítamín með sinki, lúteins og zeaxantíns og er ætlað við aldursbundinni augnbotnahrörnun. Nú er vítamínið með endurbættri formúlu sem gerir það enn betra en áður. AUGNVÍTAMÍN Augnheilbrigði Við aldursbundinni augnbotnahrörnun Eyjólf tvisvar sinnum á þeim tíma en hefðum óskað þess að fá að eyða meiri tíma með honum,“ segir hún. Eignaðist bróður í Danmörku Guðný Helga hefur fengið barna- barn sitt endrum og eins í heim- sókn síðan hann kom til landsins. Meðal annars áttu þau eftirminni- lega stund skömmu eftir þann úr- skurð héraðsdóms að Eyjólfur yrði sendur úr landi. Sá úrskurð- ur var kveðinn upp á miðvikudegi en tveimur dögum síðar eignaðist Eyjólfur lítinn bróður í Danmörku. „Hann var í heimsókn hjá mér og við hringdum út til föður hans í Danmörku í gegnum Facetime. Hann ljómaði allur þegar hann fékk að sjá bróður sinn í fyrsta skipti,“ segir Guðný Helga og brosir. Minn- ingin hlýjar henni auðsýnilega um hjartaræturnar. Hún og Sigurjón hafa fylgst með forræðisdeilu móður Eyjólfs og norsku barnaverndarinnar að mestu í gegnum fjölmiðla og það hefur reynt á. „Við fréttum bara af úrskurði héraðsdóms í gegnum fjölmiðla og það var alveg hrikalega sárt. Þetta mál hefur reynst syni mínum og okkur öllum afar þung- bært,“ segir Guðný Helga. Mæðginin hafa reynt ýmislegt til þess að fá Eyjólf til sín. „Við fórum til Noregs í maí á þessu ári og áttum fund með norsku barnaverndinni. Það var súrrealískt að sitja þarna með syni mínum og ræða við eitt- hvert opinbert yfirvald um fram- tíð Eyjólfs. Það er óskiljanlegt að þeir leyfi ekki föður hans að fá for- ræði yfir syni sínum,“ segir Guðný Helga. Sjálf óskaði hún eftir því að fá Eyjólf í fóstur og setti sig meðal annars í sambandi við barnavernd hér á landi til þess að fá stofnunina til að taka út sig og heimili sitt. „Það reyndist enginn áhugi fyrir því hjá Norðmönnum.“ Ætla í forræðismál við norska ríkið Stríðinu er þó ekki lokið ef allt fer á versta veg. „Ef Eyjólfur verður settur í fóstur úti í Noregi þá mun Sigurjón fara í forræðismál úti í Noregi við norsku barnaverndina. Við erum búin að setja okkur í samband við þarlendan lögfræðing og undirbún- ingur er þegar hafinn. Hann metur líkur okkar góðar en þetta verður löng og erfið barátta,“ segir Guðný Helga. Þá sendi Sigurjón erindi til Braga Guðbrandssonar, forstjóra Barnaverndarstofu, þar sem hann óskaði eftir því að stofnunin myndi beita sér fyrir því að Eyjólfi yrði komið í fóstur hérlendis. „Hann tók vel í það og sagðist ætla að vinna í málinu,“ segir Guðný Helga. Eins og komið hefur fram í fjöl- miðlum þá mun móðir Eyjólfs að- eins fá að hitta son sinn tvisvar sinn- um á ári undir eftirliti ef drengurinn fer í fóstur þar ytra. Ömmur drengs- ins í föður- og móðurætt munu ekki fá að hitta Eyjólf fram að átján ára aldri og ekki er útséð með rétt föðurins í því máli. „Sigurjón þarf að fara með málið fyrir dóm í Noregi til þess að fá hugs- anlega rétt til þess að hitta Eyjólf. Það mun hann gera umsvifalaust en stóra málið er forræðið. Fyrir því ætlum við að berjast,“ segir Guðný Helga. n „Ef Eyjólfur verður settur í fóstur úti í Noregi þá mun Sigurjón fara í forræðis- mál úti í Noregi við norsku barnaverndina. Á góðri stund Feðgarnir Sigurður Elías og Eyjólfur. Ef ekkert breytist innan tveggja mánaða verður Eyjólfur settur í fóstur hjá norskri fjölskyldu. Sigurður Elías undirbýr nú að fara í mál við norska ríkið um forræði yfir drengnum. F ramreiðslumaðurinn Hend- rik Björn Hermannsson hefur opnað veitingastaðinn 59 Bistro Bar á Grundarfirði en hann hefur staðið í ströngu frá því í byrjun mánaðarins. Hendrik, sem er sonur Hermanns Gunnars- sonar heitins , Hemma Gunn, er reynslumikill í veitingahúsa- bransnum og lætur hvergi bug- ast þrátt fyrir ýmsar hindranir en hann á þónokkurn sakaferil að baki. Hendrik, sem meðal annars hefur staðið að rekstri skemmti- staðar ins Players í Kópa vogi og veitingastaðarins Skóla brú, hef- ur áður komist í fréttir vegna veitingareksturs síns. Hann, eins og áður segir, að baki nokkra refsidóma fyrir fjár- málamisferli. Hann ræddi mál- in í viðtali við DV árið 2013, þegar hann var laus úr fangelsi. „Ég hef verið edrú í tvö og hálft ár og horfi allt öðrum augum á lífið.“ Miklar endurbætur Fram kemur á vefsíðu Skessu- horns að ráðist hafi verið í gagn- gerar endurbætur á húsnæði 59 Bistro Bar frá því Hendrik tók við lyklunum í byrjun mánaðarins og að staðurinn sé glæsilegur á að líta eftir breytingarnar. Það er því ljóst að Hendrik kýs að halda ótrauður áfram þrátt fyrir ýmis skakkaföll. audur@dv.is Opnar veitingastað á Grundarfirði Hendrik Björn var áður dæmdur fyrir fjárdrátt og skattsvik

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.