Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2016, Blaðsíða 24
Helgarblað 14.–17. október 20164 Ljós og tenglar - Kynningarblað
Réttur ljósabúnaður
við réttar aðstæður
Lumex, Skipholti 37, 105 Reykjavík
V
ið erum 30 ára á árinu,
fyrir tækið reyndar stofnað
haustið 1985, en 1986 var
fyrsta heila starfsárið okkar.
Frá upphafi höfum við haft
að leiðarljósi að velja réttan ljósa
búnað við réttar aðstæður. Skipt
ingin í okkar starfsemi er til helminga
annars vegar þjónusta við fyrirtæki,
t.d. verslanir, hótel og veitingastaði
– og svo hins vegar þjónusta við al
menning og heimili fólks, einbýlis
hús, íbúðir og annað,“ segir Ingi Már
Helgason hjá Lumex.
Fyrirtækið sinni meðal annars
raflagnahönnun: „Við sérhæfum
okkur í lýsingarhönnun og raflagna
hönnun þar sem við í rauninni hönn
um allt rafmagn meðal annars fyrir
BYGG, ÞG Verktaka og Foss hótel svo
dæmi séu tekin. Við erum að teikna
lýsingu og raflagnir í samráði við
arkitekta og verkkaupa. Við höfum
alltaf sérhæft okkur í því að vera mitt
á milli verkfræðingsins og arkitekts
ins og vera með lýsingarhlutann hjá
okkur,“ segir Ingi.
Lumex gerir því allt þetta í senn:
Veitir lýsingarráðgjöf, hannar lýs
ingu og raflagnir og selur falleg ljós
í verslun fyrirtækisins að Skipholti
37. Lumex leggur mikla áherslu á að
selja gæðavörur og hafa samstarf við
mjög hátt skrifaða framleiðendur.
„Við vinnum með gæðavörur frá
Ítalíu, Spáni, Þýskalandi og Bret
landi. Við erum umboðsaðilar fyrir
mörg þekkt gæðamerki sem hafa
verið lengi í bransanum, t.d. FLOS,
MOOOI, Tom Dixon og Weber &
Ducré. Ef þú setur upp lýsingu í versl
un sem á að duga í 10 til 20 ár þá þarf
að standa vel að verki og nota vand
aðar vörur,“ segir Ingi. Það sama gild
ir um heimili en sama fólkið hefur
leitað til Lumex í gegnum áratugina í
hvert skipti sem það flytur. Eru mörg
dæmi um að fjölskyldur hafi feng
ið lýsingarráðgjöf og ljós hjá Lumex
þegar þær kaupa fyrstu íbúðina sína,
þegar fólk stækkar við sig og jafnvel
í þriðja sinn þegar það minnkar við
sig aftur. „Þessir kúnnar geta oft nýtt
vörurnar sem þeir keyptu
upphaflega áfram, annað
hvort með því að taka ljósin
með sér og setja upp á nýj
um stað eða selja þau með
íbúðinni þar sem lýsingin
passar fullkomlega í rýmið
sem hún var sett upphaf
lega í,“ segir Ingi.
Lumex er bæði með
teiknistofu og ljósaverslun
að Skipholti 37. Ýmiss
konar grófa vöru fyrir raf
lagnir og lýsingu selur
Lumex síðan í gegnum
fyrir tækið Rafport, að Auð
brekku 9–11, Kópavogi. n
Verslun Lumex að
Skipholti 37 er opin virka
daga frá kl. 9 til 18 og þar
er gaman að koma og
skoða falleg og glæsilega
hönnuð ljós fyrir heimilið
eða vinnustaðinn. Nánari
upplýsingar eru líka á
heimasíðunni lumex.is.