Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2016, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2016, Blaðsíða 37
Helgarblað 14.–17. október 2016 Menning 29 Þ að er hægara sagt en gert að finna tíma fyrir viðtal við Gulla Briem, tónlistar­ mann og einn allra besta trommuleikara landsins, en hann er á landinu í nokkra daga til að spila á eftirtektarverðum tónleik­ um með hljómsveit sinni Earth Affair í Gamla Bíói þann 20. október næst­ komandi. Þegar við hittumst er hann ný­ kominn í bæinn eftir veiði í Keldu­ hverfinu. „Þetta er það sem ég sakna mest við Ísland, að komast svona auðveldlega út í náttúruna með flugustöngina og kasta á einhvern fallegan hyl. Fluguveiðin einfaldlega yfirtekur þig – það er ómögulegt að vera að veiða og að hugsa um eitt­ hvað annað um leið. Maður dettur bara algjörlega í núið. Þetta er mjög gott til að hlaða batteríin,“ segir Gulli sem hefur verið búsettur í Búda­ pest undanfarin ár ásamt eiginkonu sinni. „Það er ágætt að vera í Ungverja­ landi og gera þaðan út,“ segir Gulli og talar eins og sjómaður enda hefur hann lifað þess konar lífi, flakkað um heiminn og trommað frá því snemma á níunda áratugnum eða allt frá því að hann sló í gegn með hljómsveit sinni Mezzoforte og stuðslagaran­ um Garden Party. Tæplega 40 árum frá stofnun er Mezzoforte enn í fullu fjöri og er restin af bandinu í Þýska­ landi að spila á tónleikum. Sveitin hefur þó þurft að finna staðgengil til að leysa Gulla af tímabundið á með­ an hann sinnir verkefni sem er hon­ um sérstaklega hjartfólgið. Syngur í fyrsta sinn á plötu Platan Liberté með Gulla Briem og Earth Affair kom út árið 2014 en hafði þá verið mörg ár í vinnslu. Þar er trommuleikarinn á allt öðrum slóðum en með Mezzoforte, tónlistin er sveimkennd og kvikmyndaleg, stór og dýnamísk, heimstónlistar­ skotin og „progguð“. „Í þessari tónlist veiti ég mér frelsi til að gera það sem mér finnst áhuga­ vert og krefjandi, án þess að þurfa að spyrja neinn eða spá. Og ég hef leyft mér að taka sénsa, gera hluti sem eru svolítið öfgakenndir og algjörlega á skjön við það sem fólk þekkir mig fyrir. Mig langaði að gera tónlist sem myndi ögra mér og inspírera sjálf­ an mig á einhvern hátt. Ég ákvað að fara eins og langt út fyrir þægindara­ mmann og ég mögulega gat og sjá hvað ég gæti spennt bogann hátt.“ Hvernig myndir þú segja að þú hafir farið út fyrir þægindarammann á plötunni? „Ég syng til dæmis í fjórum lögum á plötunni – og fyrir mig var það langt út fyrir þægindarammann. Það kom nú eiginlega bara til vegna þess að eitt af fyrstu lögunum sem ég samdi fyrir þessa plötu var lagið Til moldar, það var fyrir einhverjum tíu árum. Ég bjó úti en kom heim um jólin, en var einn með sjálfum mér á jóladagsnótt og leiddist alveg skelfilega mikið. Þótt ég sé ekki mikill drykkjumaður stútaði ég tveimur rauðvínsflöskum og komst í einhvern ham. Klukkan fimm um morguninn var ég búinn að leggja grunninn að fyrsta laginu og lá bara á stofugólfinu með míkrófón­ inn – dálítið vel hífaður – og gaulaði einhverja laglínu. Ég spáði ekkert mikið meira í það en þegar ég spilaði upptökuna fyrir vini og vandamenn í gamni var ég alltaf spurður hver söngvarinn væri. Og fólk trúði mér varla þegar ég sagði að þetta væri ég. En ég fékk mikla hvatningu frá fólki til að taka sénsinn með þetta.“ Í gegnum árin hafa fleiri lög svo safnast í sarpinn og að lokum varð ljóst að það þyrfti að stofna hljóm­ sveit utan um verkefnið. Gulli fékk þá Arnar Guðjónsson (úr Leaves) gítarleikara, Magnús Johannesen hljómborðsleikara og Jökul Jörgen­ sen bassaleikara og ljóðskáld í lið með sér. Jökull semur einnig textana á plötunni og segir Gulli hann vera sín helsta stoð og stytta í verkefninu. „Að mínu mati er Jökull eitthvert almesta skáld sem Íslendingar eiga. Hann yrkir djúpt og krassandi bæði á ensku og íslensku. Það er þung­ ur undirtónn í textunum á plötunni, sorg og uppgjör, uppgjöf og eftirsjá.“ Ógleymanleg stund í Suður-Afríku Platan var að mestu leyti tekin upp í stúdíósvítu úti á Granda, en einnig víðar um heim, til að mynda í Suður­ Afríku. „Þegar Mezzoforte var að spila í Suður­Afríku lengdi ég ferðina að­ eins og slóst í för með tveimur þýsk­ um blaðamönnum sem að fóru með mig út í fátækrahverfin í Jóhannesar­ borg og kynntu mig fyrir ýmsu fólki,“ rifjar Gulli upp. „Í lok ferðarinnar var búið að finna fyrir mig lítinn söngskóla í útjaðri borgarinnar. Við fórum eitt kvöldið og ég kenndi krökkunum kaflann sem þeir áttu að syngja. Það var mjög sérstakt að sjá þeirra viðbrögð, þau lögðu svo mikið í þetta, voru dansandi og svo glöð að fá að vera með. Svo var eiginlega ógleyman legt þegar ég var að pakka saman og þau voru farin út á götuna að leika sér, að heyra þau syngja lagið úti í myrkrinu. Seinna fékk ég nokkra íslenska krakka til að syngja með í þessum sama kafla. Þetta var mjög sérstakt og mér þykir mjög vænt um þetta lag.“ Á sviði með æskustjörnunni Gulli er þekktur og eftirsóttur víða um heim vegna trommuhæfileika sinna og hefur það fleytt honum í ýmis ólík verkefni, hann hefur ekki aðeins spilað með öllum helstu poppstjörnum Íslands heldur einnig alþjóðlegum stórstjörnum á borð við Madonnu og Steve Hackett úr hljóm­ sveitinni Genesis. Sá síðarnefndi hefur raunar hrósað Earth Affair í hástert á opinberum vettvangi. „Ég hef spilað á nokkrum tónleik­ um með Steve og ungversku bandi. Það hefur verið alveg ótrúleg upplif­ un. Við höfum verið að taka nokkur af þessum þekktu gömlum Genesis­ lögum sem ég ólst upp við að hlusta á í plötuspilaranum í herberginu mínu þegar ég var unglingur. Það er magn­ að að standa á sviðinu með honum og spila þessi lög. Steve hefur svo sagt fallega hluti um Earth Affair­plötuna og ég varð frekar hrærður yfir því – ég tek mikið á mark á honum. Hann stakk svo upp á því að fyrra bragði að við myndum kannski taka eitthvað upp saman,“ segir Gulli og virðist spenntur fyrir hugmyndinni, en hvað tekur við næst er hins vegar alveg óráðið og mörg járn í eldinum. „Ég hugsa að næsta verkefni verði enn meira avant­garde en þetta. Ég er til dæmis búinn að semja þrjú stutt verk sem er búið að útsetja fyrir sinfóníuhljómsveit, ég er kominn svo langt að tala við útvarpshljóm­ sveitina í Búdapest til að spila þetta. Þau eru til í þetta verkefni, svo það gæti hugsanlega orðið næsta verk­ efni: „orchestral­plata“,“ segir Gulli Briem. n Tónleikar Gulla Briem og Earth Affair fara fram í Gamla Bíói fimmtu- daginn 20. október næstkomandi. Miðar eru til sölu á midi.is. Langt út fyrir þæginda- rammann Gulli Briem syngur í fyrsta skipti á nýrri sólóplötu sinni, Liberté sem hann vann með hljómsveitinni Earth Affair Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is „Klukkan fimm um morguninn var ég búinn að leggja grunninn að fyrsta laginu og lá bara á stofugólfinu með míkrófóninn – dálítíð vel hífaður – og gaulaði ein- hverja laglínu. m y n d S iG tr y G G u r A r i Karamella og perur Súkkulaði og ferskjur Vanilla og kókos Bragðgóð grísk jógúrt að vestan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.