Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2016, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2016, Síða 38
Helgarblað 14.–17. október 201630 Menning Smáralind - S: 578 5075 - www.bjarkarblom.iS Persónuleg og fagleg þjónus ta einstakar skreytingar við öll tækifæri G amanleikurinn Hannes og Smári er ein þessara sýninga sem gerast í leikriti. Þær stöll- ur, Ólafía Hrönn Jónsdótt- ir og Halldóra Geirharðsdóttir, leika æskufélagana Hannes og Smára sem í gagnrýnislausri og karlmannlegri aðdáun á sjálfum sér hafa tekið þá úthugsuðu ákvörðun að setja upp kvöldskemmtun í Borgarleikhúsinu. Fjölbreytt hæfileikaleysi þeirra fé- laga er aðaluppistaða sýningarinn- ar, þeir spila tónlist, fara með hand- skrifuð ljóð úr litlum bókum, segja sögur, endurleika atriði úr kvikmynd og skapa ofurhetju svo eitthvað sé nefnt. Hljómsveit þeirra Hannesar og Smára, Úlfarnir, er svolítill mið- punktur sýningarinnar. Í stað síðasta trommuleikara sveitarinnar, sem hætti rétt fyrir frumsýningu, hef- ur Smári fengið hinn 12 ára gamla Kolbeinn Orfeus Eiríksson til þess að berja húðirnar. Það gerir dreng- urinn með glæsibrag. Hann var á sviðinu nánast allan tímann og var mjög heillandi í hlutverki sínu þrátt fyrir fáar línur. Elma Stefanía Ágústs- dóttir álpast einnig inn í sýninguna, sem starfsmaður úr afgreiðslu leik- hússins, og reynist einkar hjálpleg á sviðinu. Fyrsta innkoma hennar var mjög skemmtileg en hún varð minna spennandi eftir því sem á leið og skrifast það helst á handritið. Þeir fé- lagarnir falla þó auðvitað báðir fyrir henni. Það veldur þó lítilli spennu enda áhorfendum snemma ljóst að vináttusamband þeirra er byggt á þörf fremur en væntumþykju. Hann- es er alltaf með yfirhöndina og sú staðreynd er helsti veikleiki upp- byggingar verksins. Leikmyndin er eiginlega fimmta persóna sýningarinnar. Hún er afar stór og þrengir sér nánast út á sviðs- brúnina. Það var fyndið í ljósi þess að við smíðina hafði Hannes auð- vitað gert ráð fyrir stóra sviðinu í stað þess litla sem þeim var út- hlutað. Á leikmyndina er svo varp- Hressilega léleg skemmtun Bryndís Loftsdóttir ritstjorn@dv.is Leikhús Hannes og Smári Höfundar: Halldóra Geirharðsdóttir, Jón Páll Eyjólfsson og Ólafía Hrönn Jónsdóttir Leikstjórn: Jón Páll Eyjólfsson Leikarar: Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Halldóra Geirharðsdóttir, Elma Stefanía Ágústsdóttir og Kolbeinn Orfeus Eiríksson Leikmynd og búningar: Brynja Björnsdóttir Lýsing: Magnús Helgi Kristjánsson Tónlist: Hannes og Smári Sýnt í Borgarleikhúsinu Tímarnir eru a-breytast n Bob Dylan hlýtur Nóbelsverðlaunin í bókmenntum n Fyrsta skipti F agnaðarlæti jafnt sem vand- lætingarkvein kváðu við þegar Sara Danius, aðalritari sænsku Nóbels-akademíunn- ar, tilkynnti að söngvaskáldið Bob Dylan hlyti Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2016 „ fyrir að skapa nýja ljóðræna tjáningu innan hinnar miklu bandarísku sönghefðar.“ Dylan er fyrsta skáldið sem hlýtur þessi virtustu bókmenntaverðlaun heims fyrir lagatexta sína en í gegn- um tíðina hefur akademían nánast eingöngu heiðrað höfunda sem hafa einbeitt sér að skáldsögum, ljóðum og leikritum. Í nokkur ár hefur Dylan verið nefndur sem mögulegur kandídat og oft verið nokkuð ofarlega á lista veðbanka yfir mögulega verðlauna- hafa, en fáir sérfræðingar hafa talið að akademían myndi teygja sig svo langt. Á samfélagsmiðlum tjáðu ís- lenskir menningarvitar sig um frétt- irnar og voru vægast sagt skiptar skoðanir á valinu, akademíunni er ýmist hrósað fyrir að víkka út svið þess sem talist getur merkilegt bók- menntaform eða hún er gagnrýnd fyrir verðlauna höfund fyrir vinsæld- ir frekar en bókmenntaleg gæði. Hómer, Saffó og Dylan Í viðtali eftir tilkynninguna sagði Sara Danius að Dylan væri fjölhæf- ur listamaður og að í 54 ár hafi hann stöðugt verið að enduruppgötva sjálfan sig. Þegar hún var spurð hvar best væri fyrir ókunna að byrja að dýfa sér ofan í höfundarverk Dylans nefndi hún plötuna Blonde on Blonde frá árinu 1966. „Hún er gott dæmi um frábærar rímur hans, samsetningu stefja, og hans stórkostlega þanka- gang.“ Samkvæmt rökstuðningi akademíunnar snúast textar Dylans um viðfangsefni eins og „samfélags- lega stöðu mannsins, trúarbrögð, stjórnmál og ást.“ Danius viðurkenndi að ákvörðun- in gæti þótt óvenjuleg en benti aftur í aldir til að rökstyðja val á söngva- skáldinu: „Ef við horfum til baka, tvö þúsund og fimm hundruð ár aftur í tímann, sjáum við skáld á borð við Hómer og Saffó. Þeir skrifuðu ljóð- ræna texta sem voru fyrst og fremst hugsaðir til flutnings, en samt njót- um við texta þeirra enn þann dag í dag. Það sama á við um Bob Dylan, það má lesa hann og hann ætti að vera lesinn. Hann er mikilvægt skáld í hinni enskumælandi hefð,“ sagði hún. Í fótspor amerískra söngvaskálda Bob Dylan er fæddur Robert Allen Zimmerman í bænum Duluth í Minnesota árið 1941, sonur litháískra og úkraínskra gyðinga, en ömmur hans og afar fluttu til Bandaríkjanna skömmu eftir aldamót. Hann fékk fyrsta gítarinn 14 ára og hóf að spila með ýmsum rokkhljómsveitum, en heillaðist af bandarísku þjóðlaga- hefðinni þegar hann var í háskóla í Minnesota og hóf að spila og syngja á kaffihúsum borgarinnar. Á þessum tíma tók hann upp nafnið Dylan eftir ljóðskáldinu Dylan Thomas. Hann fluttist til New York í upp- hafi sjöunda áratugarins og fór að vekja athygli í fjörugri þjóðlagatón- listarsenunni í Greenwich Village. Hann var sérstaklega innblásinn af lagasmíðum söngvaskáldsins, flökkumannsins og kommúnistans Woody Guthrie og var fyrsti textinn sem hann samdi og tók upp sam- inn til heiðurs hetjunni sem lá þá við dauðans dyr á sjúkrahúsi í sömu borg. Smám saman fóru frumsamdir textar og lagasmíðar að verða stærri hluti af listrænni tjáningu Dylans í stað hinna hefðbundnu þjóðlaga. Fyrsta platan kom út árið 1962 og fljótlega fór Dylan að vekja mikla athygli utan Greenwich Village. Í upp- hafi samdi Dylan mikið af lagatextum með sterk- um pólitískum undirtón- um og urðu lög hans að einkennissöngvum mann- réttinda- og friðarhreyfinga sem voru áberandi í Bandaríkjun- um og víðar um heim á sjöunda ára- tugnum: Blowin' in the Wind, The Times They Are a-Changin, Masters of War, Hard Rain og fleiri lög voru sungin í kröfugöngum og á mót- mælum víða um heim. Um miðjan sjöunda áratuginn breyttist hljóm- ur tónlistar Dylans umtalsvert þegar hann tók sér rafmagnsgítar í hönd og hóf að leika rokkaðri lög með sýru- kenndari, prósalegri textum, má þar til dæmis nefna lög á borð við Like a Rolling Stone, Subterranean Homes- ick Blues og Ballad of a Thin Man. 37 plötur hafa komið út með kappanum á þeim 54 árum sem hann hefur unnið við tónlist. Hann hefur einnig sent frá sér tilrauna- kennda prósabók og æviminninga- bókina Chronicles: Volume One. Hann hefur verið heiðraður og hlotið ótal verðlaun fyrir listsköpun sína, meðal annars Grammy, Golden Globe, Óskarsverð- laun, Pulitzer og orðu frá franska ríkinu fyrir fram- lag sitt til listarinnar. Kom með „literartúr“ inn í tónlistina Bubbi Morthens, tónlistarmaður og ljóðskáld, hefur verið aðdáandi Dylans frá unga aldri, leikið lög hans, „Ég held að hann hafi haft meiri áhrif, og fengið fleiri til að lesa klassíska ljóðlist, en nokkur annar núlifandi rithöfundur. Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Við ritvélina Bob Dylan hlýtur bók- menntaverðlaun Nóbels fyrir lagatexta sína sem eru sagðir hafa „skapað nýja ljóðræna tjáningu innan hinnar miklu bandarísku sönghefðar.“ Metsölulisti Eymundsson 6.– 12. október 2016 Allar bækur 1 Þeir sem fara og þeir sem fara hvergi Elena Ferrante 2 Hjónin við hliðinaShari Lapena 3 Bókin um Baltimore fjölskylduna Joël Dicker 4 Sykurpúðar í morgunverð Dorothy Koomson 5 Dalalíf III Tæpar leiðir Guðrún frá Lundi 6 Nýja BreiðholtKristján Atli Ragnarsson 7 SamskiptaboðorðinAðalbjörg Stefanía Helgadóttir 8 Iceland In a Bag Ýmsir höfundar 9 Framúrskarandi vinkona Elena Ferrante 10 Hekla skilur hundamál Hulda Jóns Tölgyes

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.