Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2016, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2016, Blaðsíða 39
Helgarblað 14.–17. október 2016 Menning 31 FÁKASEL - FYRIR ALLA Ingolfshvoll, 816 Ölfus | fakasel@fakasel.is | símI: 483 5050 matur, drykkur og skemmtun Hressilega léleg skemmtun að mislukkuðum myndbrotum úr smiðju Hannesar og Smára sem stundum vöktu töluverða kátínu. Búningar og gervi Hannesar og Smára eru frábærlega vel gerð. Þær Halldóra og Ólafía hafa augljóslega átt margar skemmtilegar stundir í þessum gervum, framburður, talsmáti, kækir og líkamsbeiting bera þess glöggt vitni. Hins vegar verður að segjast eins og er að handritið er arfalélegt, stefnulaust og lítið fyndið. Engin þróun verður á persónunum í sýningunni og brandarinn verður ansi langdreginn. Það er áskorun að kætast í tvo klukkutíma yfir illa stillt- um bassa, andlegri fátækt og glötuð- um hæfileikum, jafnvel þótt einstaka sena komi kunnuglega fyrir sjónir. Í þeim tilfellum er bara engu við bætt, jafnvel þótt konur leiki hér karl- hlutverk. Sú staðreynd skiptir litlu máli fyrir sýninguna og ég er þeirrar skoðunar að til séu karlleikarar sem hefðu skilað þessu lélega hand- riti með skemmtilegri hætti. Eftir vel heppnaðan leikvetur Leikfélags Reykjavíkur á síðasta ári þá er kvöld- skemmtun Hannesar og Smára nán- ast hressilega lélegur viðburður. n M y n d G R IM U R B JA R n A S O n Tímarnir eru a-breytast lesið texta og hitað upp fyrir hann á tónleikum á Listahátíð í Reykjavík árið 1980 – en Dylan lék aftur á Ís- landi árið 2008. Bubbi segist einstaklega sáttur við val akademíunnar og kveðst hafa hoppað af gleði þegar hann heyrði frétt- irnar. „Mér finnst þetta vera til marks um að Nóbels- akademían er lifandi, forvitin og áhugasöm. Þetta er í raun stór- merkilegur viðburður. Þó að Dylan hafi lengi verið virtur og talinn einn besti dægurtónlistarmaður samtím- ans og góður textahöfundur, þá er með þessu verið að byggja brú milli þess sem menn hafa kallað hámenn- ingu og lágmenningu – og ég held að þessi brú verði ekki tekin niður svo auðveldlega,“ segir Bubbi. „Fyrst og fremst má segja að Bob Dylan hafi komið með literatúrinn inn í rokkið,“ útskýrir Bubbi um ágæti og áhrif Dylans. „Ég held til dæmis að hann hafi haft meiri áhrif, og fengið fleiri til að lesa klass- íska ljóðlist, en nokkur annar núlif- andi rithöfundur. Þegar Dylan vitn- ar í nöfn úr bókmenntaheiminum á tónleikum eða í lögum þá hefur það þau áhrif að þúsundir manna fara að leita að þeim og skoða,“ segir hann. Bubbi segir að til að skilja snilld Dylans sé nauðsynlegt að nálgast lög hans og texta sem eina heild, en ekki aðskilja þetta tvennt: „Það er rétt að margir textar Dylans þola ekki að vera teknir frá laginu og lesnir upp einir og sér – á meðan flestir text- ar manns eins og Leonards Cohen þola það, en hann er fyrst og fremst ljóðskáld sem setur lög við ljóðin sín. Dylan er hins vegar lagahöfundur og textarnir eru alltaf samtvinnaðir lög- unum,“ segir Bubbi. „Þegar maður skoðar höfundar- verk Dylans – hvað hann hefur sung- ið um og hvernig hann hefur gert það – þá er hann sennilega stærsti einstaki listamaður samtímans. Hann hefur samið alveg einstak- lega fallega ástartexta, samið mót- mælasöngva sem eru svo öfl- ugir að mann setur hljóðan – hvaðan fær 22 ára strákur þessar hugmyndir?“ Rokkið varð alvarleg list Valur Gunnarsson rithöf- undur er einnig mikill aðdá- andi og áhugamaður um Dylan. „Það er undarlegt að oft sé talað um Dylan fyrst og fremst sem mótmælasöngvara, því það tímabil entist ekki í nema um tvö ár, frá 1963 til 1964, en þó segir það sitt um hve áhrifamiklir söngvarnir voru að þeir eru enn sungnir á mótmælum víða um heim í dag, til dæmis sungu anarkistar á Íslandi The Times They Are a- Changing þegar þeir réðust til inngöngu í Seðlabankann í jan- úar árið 2009. Engin hefur enn sem komið er fært okkur betri bar- áttulög,“ segir Valur. „En Dylan sveik byltinguna og ákvað að gerast rokkstjarna í stað- inn, var púaður niður af þjóðlaga- hreyfingunni, hafði áhrif á Lennon og alla hina og skyndilega var rokkið ekki lengur eitthvert garg fyrir ung- linga heldur alvarleg list. Hann tók afþreyingarform sem var í mótun og breytti því í menningarfyrirbæri sem hefur staðist tímans tönn, ómar í kvikmyndum og er kennt í háskólum og fyrir það á hann Nóbelinn skilinn, líklega meira en nokkur annar lista- maður á 20. öld. Aðeins Chaplin og kannski Picasso eru jafn stórir í sín- um geirum og Dylan í sínum.“ Umdeilt val Sænska akademían hefur verið þekkt fyrir að koma á óvart, velja óþekkta höfunda og ganga framhjá risum í bókmenntaheiminum, en valið hefur líklega sjaldan verið jafn umdeilt og í ár. Einstaklingur sem hefur fyrst og fremst öðlast virðingu fyrir tónlistar- sköpun sína er verðlaunaður á sviði bókmennta og þær raddir hafa einnig verið háværar að nefndin eigi að nýta áhrif sín til að vekja athygli á óþekktari en mikilvægum höfundum. Leiðbein- ingar í erfðaskrá Alfreds Nóbel um hvernig verðlaunahafinn skuli valinn eru hins vegar mjög óljósar. Þar kem- ur einungis fram að verðlaunin skuli veitt „einstaklingi fyrir framúrskarandi framlag á sviði bókmennta.“ Því hefur enn fremur verið kastað fram að verðlaunahafinn hafi verið kynntur viku seinna en venjulega vegna ósættis í nefndinni. Þó að með- limir akademíunnar hafi sagt að það hafi einfaldlega verið af praktískum ástæðum halda sænskir menningar- blaðamenn því fram að erfiðlega hafi gengið að ná sáttum um sigurvegar- ann. Til að hljóta verðlaunin verður rithöfundur að fá meira en helming atkvæða í nefndinni. Kristján B. Jónasson, útgefandi hjá Crymogeu, er einn þeirra sem hafa lýst yfir óánægju sinni með val akademíunnar og sagði meðal annars í viðtali á visir.is: „Sú stað- reynd að Dylan er – þegar söngur hans og status er fiskaður frá – ekki nema bara svona sæmilegt skáld virðist ekki þvælast fyrir fólkinu sem veitti Elfriede Jelinenk, Hertu Müller, Mo Yan og Orhan Pamuk verðlaunin. Akademían virðist hafa fengið al- manntengslateymi til að fríska upp á sig og ákveðið að ganga plebbaskapn- um á hönd. Hún þorir ekki lengur að verðlauna raunveruleg gæði, heldur lætur frægðina blinda sig.“ Ásgeir H. Ingólfsson, ljóðskáld og menningarrýnir, gagnrýnir einnig val nefndarinnar á Facebook-síðu sinni: „Dylan – og tónlistarmenn á svipuð- um slóðum í vinsælda- og virðingar- stigum – fá miklu meiri frægð, miklu meiri fjölmiðlaumfjöllun og miklu hærri tekjur heldur en nokkurn tím- ann sambærilegir rithöfundar. Þess vegna er þetta dálítið eins og ein- hver fái ljóðaverðlaun fyrir skáld- sögu – þarna er óvinsælli listgreinin að bugta sig og beygja fyrir þeirri vin- sælu í von um að fá smá stjörnuryk yfir sig.“ n sem söngvaskáld hlýtur virtustu bókmenntaverðlaun heims Enn að Bob Dylan er enn í fullu fjöri og sendi frá sér plötuna Fallen Angels fyrr á þessu ári. Og verðlaunin hlýtur… Fagnaðaróp heyrðust þegar Sara Danius las upp nafn Bobs Dylan í Stokkhólmi á fimmtudag. Mynd EPA Dario Fo látinn Ítalska leik- skáldið og fjöl- listamaðurinn Dario Fo er látinn níutíu ára að aldri. Pólitískar satírur hans hafa verið sýndar víða um heim, meðal annars á Ís- landi: til að mynda verkin Stjórn- leysingi ferst af slysförum, Við borgum ekki, við borgum ekki! og Þjófar, lík og falar konur. Fo var alla tíð mjög pólitískur og gagnrýninn á yfirvöld og var meðal annars bannaður af ítalska ríkissjónvarpinu RAI í fjórtán ár og var ítrekað neitað um vega- bréfsáritun til Bandaríkjanna vegna umdeildra verka hans. Í dag er hann hins vegar álitinn þjóðargersemi á Ítalíu og sendi forsætisráðherra landsins fjöl- skyldu hans samúðarkveðjur og sagði Ítalíu hafa misst eina af að- alpersónunum í menningarlífi þjóðarinnar. „Aðalsmerki hans er fyndn- in og þetta algjöra virðingarleysi fyrir öllu sem heitir yfirvald, lög og reglur,“ segir Silja Aðalsteins- dóttir bókmenntafræðingur um leikskáldið. Dario Fo var kvæntur leikkonunni, leikskáldinu og aktí- vistanum Fröncu Rame. Fo hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1997. Ragnar vitnar í Simpson Myndlistar- maðurinn Ragnar Kjart- ansson gerir góðlátlegt grín að Yoko Ono í nýju verki sem sýnt er á sýningu listakonunnar í Listasafni Reykjavíkur um þess- ar mundir. Nokkrir listamenn voru beðnir um að gera ný verk innblásin af Yoko Ono til að sýna á Hafnarhúsinu. Ragnar ákvað að sýna staka plómu fljótandi í ilmvatni ofan í karlmannshatti, en það er einmitt drykkur sem persóna Yoko Ono er látin panta á barnum þegar hún kemur fyrir í fimmtu seríu sjónvarpsþáttanna um Simpson-fjölskylduna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.