Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2016, Page 14
Helgarblað 2.–5. desember 201614 Fréttir
Hreinsun
á kjólum
1.600 kr.
Opið
Virka daga
08:30-18:00
laugardaga
11:00-13:00
Hringbraut 119 - Einnig móttaka á 3.hæð í Kringlunni
hjá Listasaum - Sími: 562 7740 - Erum á Facebook
Í fangelsi vegna
samkeppnis-
brota
Steingrímur Birkir Björnsson,
framkvæmdastjóri fagsölu
sviðs BYKO, var í Hæstarétti
á fimmtudag dæmdur í 18
mánaða fangelsi fyrir brot
á samkeppnislögum. Fjórir
aðrir starfsmenn BYKO og
Húsasmiðjunnar hlutu fangels
isdóma í málinu en dómarnir
eru að stærstum hluta skilorðs
bundnir.
Málið snýst um verðsamráð
á grófvörum árin 2010 og 2011.
Alls voru tólf manns ákærðir
upphaflega í málinu. Þeir voru
starfsmenn BYKO, Húsasmiðj
unnar og Úlfsins. Þeir voru
handteknir í mars 2011. Ellefu
af þessum tólf voru sýknaðir
í héraðsdómi í apríl í fyrra en
Hæstiréttur sneri dómnum við
að hluta.
Stefán Árni Einarsson, fyrr
verandi framkvæmdastjóri vöru
stýringarsviðs Húsasmiðjunn
ar, og Júlíus Þór Sigurþórsson,
fyrrverandi vörustjóri á þunga
vörusviði Húsasmiðjunnar, voru
dæmdir til níu mánaða fangels
isvistar en dómarnir voru báð
ir skilorðsbundnir. Aðrir fengu
styttri dóma, skilorðsbundna.
Sjö mannanna voru dæmdir til
að greiða málsvarnarlaun sín að
fullu. Í tilfelli Steingríms Birkis
er um að ræða tæpar sjö millj
ónir króna.
RARIK bregst við
orkuþörf risahótels
n Þurfti að grípa til aðgerða til að anna eftirspurn og frekari aðgerða þörf
R
aforkuþörf nýs lúxushótels
á Hnappavöllum sem
opnað var í sumar er svo
mikil að til að anna henni
hefur RARIK þurft að grípa
til aðgerða og þörf er á frekari að
gerðum til að tryggja afhendingu
rafmagns.
Truflanir ekki hótelinu að
kenna
Það var í júní síðastliðnum sem opn
að var nýtt og stórt fjögurra stjörnu
lúxushótel á Hnappavöllum við
rætur Öræfajökuls, milli Skaftafells
og Jökulsárlóns. Hótelið, sem heitir
Fosshótel Jökulsárlón, er sagt það
stærsta sinnar tegundar í dreifbýli
með 104 herbergi. Eins og gefur að
skilja útheimtir slík starfsemi um
talsverða orku og þegar vart varð
truflana á raforkuafhendingu á
svæðinu í kring fóru einhverjir að
velta fyrir sér hvort nýja hótelinu
væri hugsanlega um að kenna. DV
leitaði skýringa á þessum orðrómi
hjá RARIK. Þar fengust þau svör að
ekki væri rétt sem DV hafði heyrt
að hótelið væri að taka svo mikla
raforku til sín að það orsakaði raf
magnsleysi á svæðum í kring.
„Hins vegar er rétt að hótelið
tekur umtalsvert rafmagn og til að
anna því hefur þurft að grípa til að
gerða og þarf að grípa til frekari að
gerða,“ segir í svari RARIK. Trufl
anir eigi sér hins vegar eðlilegar
skýringar.
Veður, viðgerðir og áflug fugla
RARIK er með afhendingarstað
frá Landsneti á Hólum við Höfn í
Hornafirði þaðan sem liggur um
125 kílómetra 19kV háspennulögn
að Skaftafelli í Öræfum sem sér við
skiptavinum á svæðinu frá Horna
fjarðarfljóti vestur að Skaftafelli
fyrir raforku. Samkvæmt upplýs
ingum frá RARIK hefur verið unnið
markvisst að endurnýjun á þessari
línulögn frá því fyrir síðustu alda
mót með jarðstreng, sem er nú 100
kílómetra af leiðinni í jörð en 25
kílómetra í loftlínu.
„Ef bilun verður á þessari löngu
lögn eða ef vinna þarf við breytingar
og viðgerðir á henni veldur það að
jafnaði einhverju straumleysi með
an á vinnu stendur. Loftlínuhlut
inn er meiri truflanavaldur vegna
veðurs og áflugs fugla. Þær trufl
anir sem orðið hafa á raforkuaf
hendingu á svæðinu hafa tengst
bilunum og áflugi á línuhlutann,
nema sú síðasta sem var 29. nóv
ember sl. vegna tenginga á nýrri
strenglögn við Steinavötn.“
Lausn í árslok 2017
Talsmenn RARIK segja að alltaf
hafi legið fyrir að grípa þyrfti til
aðgerða til að auka flutningsgetu
dreifikerfisins þegar nýja hótelið á
Hnappavöllum færi í fullan rekstur.
„Sú lausn sem RARIK telur besta
er að fá nýtt úttak hjá Landsneti
úr Byggðalínunni nálægt Hnappa
völlum og voru strax hafnar við
ræður við Landsnet um þá lausn.
Nú liggur fyrir að framkvæmdir við
þetta úttak á Byggðalínunni geti
hafist í byrjun næsta árs og verði
væntanlega lokið í árslok 2017.“
Annar álagi
Í svari fyrirtækisins segir að dreifi
kerfið hafi hingað til annað því
álagi sem verið hefur á svæðinu, en
verið sé að koma fyrir spennustill
um á dreifikerfið við Reynivelli til
að tryggja spennuástand á svæð
inu í vetur og þangað til úttakið
við Hnappvelli verður komið í
rekstur. Einnig verði færanlegri
dísilvél komið fyrir við Smyrla
bjargaárvirkjun til að anna álaginu
á mesta álagstíma á komandi vetri.
„Þegar nýr afhendingarstaður
Landsnets við Hnappavelli verður
komin í gagnið mun rekstrar
öryggi dreifikerfisins milli Hafnar
og Skaftafells aukast til muna, bæði
vegna bilana og nýtenginga, þar
sem hægt verður að reka kerfið
frá tveimur afhendingarstöðum á
Byggðalínu.“ n
„Hótelið tekur um-
talsvert rafmagn
og til að anna því hefur
þurft að grípa til aðgerða
og þarf að grípa til frekari
aðgerða.
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Stórt og glæsilegt RARIK segir að grípa hafi þurft
til aðgerða til að bregðast við aukinni raforkuþörf í Ör-
æfum með tilkomu Fosshótels Jökulsárlóns sem opnað
var í sumar. Frekari aðgerða sé enn þörf. Mynd FoSShoTeL.iS