Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2016, Side 40
Helgarblað 2.–5. desember 201628 Sport
Þegar ósköpin dynja yfir
n Harmleikurinn á þriðjudag ekki einsdæmi n Íþróttaliðin sem þurrkuðust út
H
eimurinn var sleginn
óhug á þriðjudag þegar 76
manns fórust í flugslysi í
Kólumbíu, þar af nánast
allir leikmenn brasilíska
knattspyrnuliðsins Chapecoense.
Liðið var á leið til Kólumbíu til að
etja kappi við Atletico Nacional í úr-
slitum Copa Sudamerica-keppn-
innar. Slysið á þriðjudag er langt því
frá það fyrsta þar sem íþróttamenn
í liðsíþróttum hljóta þau ömur legu
örlög að deyja af slysförum. DV
rifjar hér upp nokkur eftirminnileg
dæmi. n
Ítalíumeistararnir létust allir
4. maí árið 1949 er dagur sem rennur stuðningsmönnum ítalska knattspyrnuliðsins Torino
seint úr minni. Þann dag fórust 23 leikmenn og þjálfarar í flugslysi í útjaðri Tórínóborgar á
Ítalíu. Liðið var að koma frá Portúgal þar sem það hafði leikið vináttuleik gegn Sporting frá
Lissabon. Þoka var á svæðinu þegar slysið varð. Torino-liðið var ógnarsterkt á þessum tíma
og hafði unnið ítölsku deildina fjögur ár í röð áður en að slysinu kom.
Flugslysið í München
Þann 6. febrúar árið 1958 fórust átta leikmenn og þrír úr þjálf-
araliði Manchester United í flugslysi í München. United-liðið var
frábært á þessum tíma, gekk undir nafninu Busby Babes. Slysið
varð þegar vél United-liðsins ætlaði að millilenda í München eftir
ferðalag til Belgrad þar sem United lék Evrópuleik. Slysið varð
þegar vélin var að taka af stað, en snjór og krap var á flugbrautinni.
Alls fórust 23 í slysinu.
25 listskautahlauparar
fórust
Þann 15. febrúar árið 1961
hugðist landslið Bandaríkj-
anna í listskautahlaupi ferð-
ast til Prag í Tékkóslóvakíu til
að taka þátt í heimsmeistara-
mótinu. Ósköpin dundu yfir
þegar flugmenn Sabena-flug-
félagsins ætluðu að millilenda
í Brussel. Vélin brotlenti í að-
fluginu og fórust allir um borð,
73 einstaklingar, þar af allir
sem skipuðu landslið Banda-
ríkjanna í listskautahlaupi á
þessum tíma, 25 að tölu.
Hremmingar í Bólivíu
The Strongest er eitt sigursælasta félag bólivískrar knattspyrnu
en þann 26. september 1969 lentu leikmenn liðsins í miklum
hremmingum. Liðið hafði ferðast frá höfuðborginni, La Paz,
til Santa Cruz í Bólivíu til að leika æfingaleik en á heimleiðinni
brotlenti vélin sem flutti liðið. Alls fórust 78 manns í slysinu, þar af
19 leikmenn eða þjálfarar.
Árekstur í háloftunum
FC Pakhtakor Tashkent var árið
1979 í hópi bestu fótboltaliða
Sovétríkjanna. Liðið leikur í dag í
efstu deild í Úsbekistan þar sem
liðið ber höfuð og herðar yfir
keppinauta sína. En lífið hefur
ekki alltaf verið dans á rósum
fyrir aðstandendur liðsins. Í
ágúst 1979 skullu tvær farþega-
flugvélar saman í háloftunum
yfir Sovétríkjunum, svæði sem
nú tilheyrir Úkraínu. 178 manns
fórust í slysinu, þar af 17 leik-
menn Pakhtakor Tashkent.
Hömpuðu
titlinum
sex árum
síðar
Alianza Lima er eitt sigur-
sælasta knattspyrnulið Perú. Í desember 1987 fórust allir leikmenn liðsins
þegar flugvél af gerðinni Fokker F27 fórst á Kyrrahafi. Liðið var á leið heim úr
deildarleik þegar eitthvað fór úrskeiðis og vélin skall í hafinu. Athygli vakti að
aðeins flugmaður vélarinnar komst lífs af. Alls fórust 43 leikmenn, þjálfarar,
klappstýrur og aðstandendur liðsins. Liðið hafði unnið titilinn í Perú síðustu
tvö tímabil. Sex ár liðu þar til liðið hampaði titlinum aftur.
Landsliðið fórst
Þriðjudagurinn 27. apríl 1993 er svartur dagur í sögu knattspyrnu-
sambands Sambíu því þann dag fórust allir 22 leikmenn landsliðsins
í flugslysi. Liðið var á leið í landsleik í undankeppni HM gegn Senegal
en vélin fórst á Atlantshafi, skammt vestur af borginni Libreville í
Gabon. Sambíumenn komu öllum að óvörum í Afríkukeppninni árið
2012 þegar liðið
lagði Fílabeins-
ströndina í
úrslitaleik
eftir vítaspyrnu-
keppni. Var sig-
urinn tileinkaður
þeim leikmönn-
um sem fórust
árið 1993.
Harmleikur í hokkíheiminum
Þjóðarsorg var lýst yfir í Rússlandi í september 2011 eftir að flugvél með leikmönnum íshokkíliðsins Lokomotiv Yaroslavl
fórst við bakka árinnar Volgu í Rússlandi. 44 fórust í slysinu, þar af 37 meðlimir liðsins, leikmenn og þjálfara. Meðal
þeirra var landsliðsmarkvörður Svía, Stefan Liv. Vélin var á leið til Minsk í Hvíta-Rússlandi þegar ósköpin dundu yfir.