Fréttablaðið - 25.05.2017, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 25.05.2017, Blaðsíða 36
Algengast er að fólk fái staðbundið svar með kláða eða bólgu þegar það er stungið af geitungi en lítill hluti almennings myndar ofnæmi og fær verri svörun á stærra sviði. Fjöldi geitunga nær hámarki í ágúst og september. Þá er árásar- girnin einnig mest og þeir geta stungið við minnsta áreiti. Mesta hættan á geitungastungu er til dæmis við vinnu og leik í garð- inum. Einnig eru geitungar sérlega sólgnir í sætindi, bjór og vín og geta þeir orðið óbærilega ágengir þar sem fólk er að borða utan dyra í sólríku veðri. Til að forðast stungur er rétt að hafa eftirfarandi í huga: l Að eyða búum sem eru við heimili. l Sýna aðgát við garðvinnu, nota hanska. l Matarbiti og drykkir bjóða geitungum heim. Gosdósir eru sérstaklega varhugaverðar. l Á geitunga innan dyra má sprauta hárlakki eða að drepa í einu höggi. l Hafa þétt net yfir vögnum barna sem sofa úti. l Klæðast hvítum/ljósum fatnaði. l Nota ekki ilmefni. l Ganga ekki berfættur úti við, klæðast síðum buxum og lang- erma skyrtum. Heimild: Embætti landlæknis www.landlaeknir.is Að forðast geitungabit Á mánudaginn kl. 8.30-10 mun fjármála- og efnahagsráðuneytið boða til ráðstefnu í samstarfi við Háskóla Íslands, Mann- virkjastofnun, Samtök fjármála- fyrirtækja og Viðlagatryggingu Íslands um veggjatítlur og myglu- svepp. Ráðstefnan verður haldin í Nauthóli. Þar verður fjallað um hlutverk opinberra aðila vegna tjóns á fasteignum sem hljótast af þessum vágestum. Doktor Johan Mattson frá Mycoteam í Noregi flytur erindi en hann en sérfræðingur í veggjatítlum og myglu. Hulda R. Árnadóttir, framkvæmdastjóri VTI, mun fjalla um hlutverk opinberra aðila vegna ótryggjanlegra tjóna á fasteignum. Björn Marteins- son, verkfræðingur og arkitekt, flytur erindi fyrir hönd Háskóla Íslands um veggjatítlur, myglu og raka. Katrín Júlíusdóttir, framkvæmda stjóri SFF, mun ræða um títlur og aðra óværu og hvað sé til ráða. Hægt er að skrá sig á ráðstefnuna á heimasíðu fjármála- og efnahagsráðuneytis- ins, www.fjarmalaraduneyti.is. Ráðstefna um veggjatítlur og myglusvepp Umhverfisstofnun gaf út út bækling með leiðbeiningum um inniloft, raka og myglu árið 2015. Þar er að finna upplýsingar um hvernig best sé að viðhalda og bæta heilnæmi innilofts og hvern- ig bregðast skuli við verði inniloft óheilnæmt. Í bæklingnum er líka fjallað um eftirlit með húsnæði og ábyrgð eigenda og leigjenda. Á heimasíðu stofnunarinnar segir að áætlað sé að í Evrópu sé of mikill raki í 10-50% þess húsnæðis sem fólk býr og starfar í. Sé rakastig innandyra of hátt eða lágt getur það haft neikvæð áhrif á híbýlin og heilsu fólks en sýnt hefur verið fram á að þeir sem búa í húsnæði með raka og myglu eru í meiri hættu en aðrir á að fá sjúkdóms- einkenni og sýkingar í öndunar- veg, ofnæmiskvef og astma. Rannsóknir sýna aftur á móti að þeir sem búa í vel einangruðum og loftræstum húsum leita síður til læknis og leggjast síður inn á sjúkrahús vegna kvilla í öndunar- færum en þeir sem búa í röku húsnæði. Leiðbeiningar um inniloft, raka og myglu HARPA.IS/FLUFFY 8 KYNNINGARBLAÐ 2 5 . m a í 2 0 1 7 FIMMTUDAGUR 1 3 -0 6 -2 0 1 7 1 0 :5 2 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 1 6 -E B F 4 1 D 1 6 -E A B 8 1 D 1 6 -E 9 7 C 1 D 1 6 -E 8 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 6 4 s _ 2 4 5 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.