Fréttablaðið - 25.05.2017, Blaðsíða 20
Manchester United spilar í Meistaradeildinni tímabilið 2017-18
Evrópudeildarmeistarar í fyrsta sinn Manchester United vann 2-0 sigur á hollenska liðinu Ajax í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á Vinavöllum í
Solna í Svíþjóð í gærklvöldi. United-menn tryggðu sér ekki bara sinn þriðja titil á tímabilinu (Samfélagsskjöldurinn og deildabikarinn) heldur fá
lærisveinar Jose Mourinho nú farseðil í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á næstu leiktíð. Paul Pogba og Henrikh Mkhitaryan skoruðu mörkin í
leiknum. United hefur þar með unnið allar Evrópukeppnirnar. Hér lyftir Wayne Rooney bikarnum í leikslok. nordicphotos/Getty
Fótbolti Það er engum ofsögum
sagt að Katrín Ásbjörnsdóttir hafi
byrjað tímabilið af krafti. Þessi 24
ára gamli Vesturbæingur hefur
skorað í öllum fimm leikjum Stjörn
unnar í Pepsideild kvenna, alls sex
mörk. Auk þess að skora sex mörk
hefur Katrín gefið tvær stoðsend
ingar.
Það hefur ekki bara gengið vel hjá
Katrínu sjálfri heldur hefur Stjarnan
farið afar vel af stað og náð í 13 stig
af 15 mögulegum í fyrstu fimm
umferðunum.
„Við erum sáttar og byggjum
ofan á það. Við erum með 13 stig
og erum ánægðar með það,“ sagði
Katrín í samtali við Fréttablaðið
í gær. „Ég er á góðum stað og mér
líður vel. Mér finnst ég vera í góðu
formi. Svo fæ ég líka að taka vítin og
það hjálpar.“
Meiðsli hafa gert Katrínu erfitt
fyrir á undanförnum árum. Í fyrra
spilaði hún t.a.m. aðeins 12 deildar
leiki en skoraði samt níu mörk. Árið
2015, þegar Katrín lék í Noregi, sleit
hún liðbönd í ökkla og missti þ.a.l.
af seinni helmingi tímabilsins. Hún
segist laus við meiðsli í dag.
„Ég er meiðslalaus og hef verið
það í langan tíma. Þetta lofar góðu
og vonandi heldur það áfram,“
sagði Katrín sem fékk fyrirliða
bandið hjá Stjörnunni í vor eftir
að Ásgerður Stefanía Baldursdóttir
þurfti að draga sig í hlé vegna þess
að hún er barnshafandi. En hefur
fyrirliðastaðan breytt einhverju
fyrir Katrínu?
„Eflaust eitthvað. Það er meiri
ábyrgð og mér finnst þetta hafa
þroskað mig,“ sagði Katrín sem
ætlar að halda fyrirliðabandinu
þegar Harpa Þorsteinsdóttir snýr
aftur á völlinn seinna í sumar. „Ég
ætla bara að gera það. Hún fær ekki
að taka það af mér,“ sagði Katrín í
léttum dúr.
Fyrir hálfu ári hafði Katrín aðeins
leikið tvo Alandsleiki. Eftir tíma
bilið í fyrra var hún valin í íslenska
landsliðshópinn sem fór á æfinga
mót í Kína. Katrín kom inn á sem
varamaður í fyrsta leik mótsins
gegn Kínverjum og skoraði jöfn
unarmark Íslendinga þegar fjórar
mínútur voru til leiksloka.
Síðan þá hefur Katrín komið við
sögu í öllum landsleikjum Íslands
og það verður að teljast líklegt að
hún verði í hópnum sem fer á EM
í Hollandi í júlí. Katrín stefnir alla
vega þangað.
„Jú, auðvitað. Ég hugsa fyrst um
Stjörnuna og svo kemur EM. Maður
þarf að passa sig að hugsa ekki of
mikið um það á þessari stundu.
Maður þarf að klára þetta með
Stjörnunni út júní og svo kemur
EM,“ sagði Katrín
„Maður er alltaf aðeins að hugsa
um þetta. En maður þarf að passa sig
á að gleyma ekki Stjörnunni. Þetta
er maraþon í maí. ingvithor@365.is
Þroskandi að vera fyrirliði
Katrín Ásbjörnsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, hefur byrjað tímabilið frábærlega og er markahæst í Pepsi-deild
kvenna með sex mörk. Katrín er laus við meiðsli og setur stefnuna á að komast í íslenska EM-hópinn.
Katrín í leik gegn uppeldisfélaginu Kr sem stjarnan mætir í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins. fréttaBlaðið/anton
20.00 dean & deluca Golfstöðin
20.30 Volvik champ. Sport 4
00.30 Boston - cleveland Sport
pepsi-deild kvenna:
14.00 Þór/Ka - ÍBV Þórsvöllur
19.15 Valur - Grindavík Valsvöllur
19.15 fh - stjarnan Kaplakriki
inkasso-deildin:
14.00 leiknir - leiknir f. Leiknisv.
19.15 Keflavík - selfoss Keflavík
Í dag
Breiðablik - Kr 6-0
1-0 Fanndís Friðriksd. víti (2.), 2-0 Berglind
Björg Þorvaldsdóttir (29.), 3-0 Fanndís (30.),
4-0 Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir (35.),
5-0 Berglind (56.), 6-0 Berglind (63.)
fylkir - haukar 1-1
0-1 Marjani Hing-Glover (18.), 1-1 Jasmín
Erla Ingadóttir (90.+3).
efri
Breiðablik 15
Þór/KA 15
Stjarnan 13
ÍBV 10
FH 9
neðri
Valur 6
Grindavík 6
Fylkir 4
Haukar 1
KR 0
Nýjast
pepsi-deild kvenna
Logi tEKur Við Á MiðJu SuMri
Á tÍu ÁrA FrESti
Logi Ólafsson var í gær ráðinn
eftirmaður Milos Milojevic hjá
Víkingum og mun stýra liðinu í
fyrsta sinn á móti KA á Akureyri á
laugardaginn. Logi er því að koma
aftur í Víkina eftir 25 ára fjarveru en
hann stimplaði sig inn sem þjálfari í
efstu deild karla fyrir rúmum aldar
fjórðungi síðan. Samningurinn
er til tveggja ára. Logi þjálfaði líka
Víkinga á árunum 1990 til 1992 og
gerði liðið þá að Íslandsmeisturum
sumarið 1991. Liðið hefur ekki
unnið Íslandsmeistaratitilinn eftir
að Logi yfirgaf Víkina.
Þetta er áttunda starf Loga í efstu
deild karla og í þriðja sinn sem
hann tekur við liði
á miðju tímabili.
Logi tók einnig
við ÍA 1997 og
Kr 2007 á miðju
tímabili. Það
er skemmti
leg stað
reynd að
það skuli
alltaf líða
tíu ár á
milli.
AroN uNgVErSKur MEiStAri
Aron Pálmarsson og félagar hans
í Veszprém tryggðu
sér ungverska
meistaratitilinn í
gærkvöldi þrátt
fyrir 3027 tap á
móti Pick Szeged.
Veszprém vann
5047 samanlagt
og er því meistari
tíunda árið í röð. Aron skoraði
fimm mörk í leiknum þar af þrjú á
lokakaflanum. Hann var að vinna
þennan titil annað árið í röð.
MEiStArArNir og toPPLiðið
Bikarmeistarar Breiðabliks munu
fá lið Þórs/KA í heimsókn í sex
tán liða úrslitum Borgunarbikars
kvenna en Akureyrarliðið var á
toppi Pepsideildarinnar þegar
sjötta umferðin hófst í gær.
tveir aðrir Pepsideildarslagir
eru í sextán liða úrslitunum en FH
tekur á móti Val og Íslandsmeist
arar Stjörnunnar fara í Vesturbæ
inn og mæta Kr. Aðrir leikir eru:
Þróttur r.Haukar, Sindrigrinda
vík,SelfossÍBV, tindastóllFylkir
og HK/VíkingurFjölnir.
2 5 . m a í 2 0 1 7 F i m m t U D a G U R20 S p o R t ∙ F R É t t a b l a ð i ð
sport
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:5
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
6
-E
B
F
4
1
D
1
6
-E
A
B
8
1
D
1
6
-E
9
7
C
1
D
1
6
-E
8
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
2
4
5
2
0
1
7
C
M
Y
K