Fréttablaðið - 25.05.2017, Blaðsíða 60
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
17.05.17 - 23.05.17
1 2
5 6
7 8
109
43
Ég man þig
Yrsa Sigurðardóttir
Gæfuspor - Gildin í lífinu
Gunnar Hersveinn
Stofuhiti
Bergur Ebbi
Litla bakaríið við Strandgötu
Jenny Colgan
Ljótur leikur
Angela Marsons
Sagan af barninu sem hvarf
Elena Ferrante
Iceland - Flying High
Enrico Lavagno
Íslensk öndvegisljóð
Ýmsir höfundar
Löggan
Jo Nesbø
The Sagas of the Icelanders
Ýmsir höfundar
Teiknarinn Einar Valur Másson og grínistinn Jonathan Duffy eru mennirnir á bak við söguna um Bruce og kærastann hans
Spencer í teiknimyndasögunni Bruce
the Angry Bear sem birtist á vefnum
GayIceland. Nú hafa þeir fengið Hug
leik Dagsson til liðs við sig.
„Þessi teiknimyndasaga okkar
Einars varð eiginlega til í kjölfar smá
hvatningar frá Hugleiki. Ég sagði
honum frá hugmyndinni að Bruce
á sínum tíma og hann sagði mér að
honum litist vel á og að ég yrði að
framkvæma hana,“ segir Jonathan.
„Já, hann viðraði þessa hugmynd
við mig og þetta hljómaði allt svo
súrrealískt og skrýtið þannig að
mér fannst að það yrði að myndgera
þetta,“ segir Hugleikur.
Í nýjustu sögunum um Bruce the
Angry Bear kemur Hugleikur inn
sem gestateiknari. „Ég teikna í raun
inni inn í teikningarnar hans Einars.
Karakterarnir hans Jonathans eru
sem sagt að skoða teiknimynda
sögur eftir mig og þá sjást mínar
teikningar á tölvuskjánum þeirra,“
útskýrir Hugleikur sem hingað til
hefur komið við sögu í sögum Jona
thans, sem hann sjálfur.
„Og Bruce er sem sagt að hneyksl
ast á teiknimyndasögunum mínum
í sögunni.“
Hugleikur og Jonathan þekkjast
vel en þeir eru til að mynda með
podcastþættina Icetralia saman. „Ég
þekki hann vel og það var eiginlega
bara tímaspursmál hvenær ég myndi
gera grín að honum í teiknimynda
sögunni.“
Er náttúrulega móðgandi
Bruce the Angry Bear fjallar um mál
efni samkynhneigðra að miklu leyti.
Spurður að því hvernig sé að vinna
að teiknimyndasögu um slík mál
með tveimur gagnkynhneigðum
mönnum segir Jonathan: „Þetta
hefur látið mig átta mig á hversu
náttúrulega móðgandi ég er. Þegar ég
er að vinna með Einari er hann stans
laust að spyrja mig hvort við megum
segja hitt og þetta. Og að vinna
með þeim báðum hefur kennt mér
mikið,“ segir Jonathan sem skrifar
að mestu söguna einn á meðan Einar
teiknar.
„En Einar er mjög góður í að segja
mér hvort brandararnir séu nógu
fyndnir eða ekki, eða hvort ég sé að
ganga of langt.“
Jonathan tekur fram að honum
þyki mjög gaman að vinna að efni
um samkynhneigt par með hjálp
gagnkynhneigðra manna. „Hjarta
mitt tekur kippi þegar Hugleikur
notar hugtök eins og „bear“, „twink“
og „otter“ í daglegu tali. Ég fíla það,“
útskýrir Jonathan sem átti ekki
marga gagnkynhneigða karlkyns
vini áður en hann flutti til Íslands að
eigin sögn. „Núna er líf mitt fullt af
þeim.“
„Ég er svo stoltur af þessari teikni
myndasögu. Ég var búinn að velta
þessu fyrir mér í mörg ár en ég hélt
einhvern veginn að ég myndi ekki
ná að framkvæma þetta. En ég held
að framkvæmdin hafi haft mikið að
gera með Ísland, ein ástæðan fyrir
því að ég elska að búa hérna er vegna
þess að hér getur maður gert það sem
maður vill. Hér er auðvelt að komast
í samband við fólk og hlutirnir eru
fljótir að þróast. Mér finnst ég lán
samur að vinna með bæði Hugleiki
og Einari.“ gudnyhronn@365.is
Varð að myndgera
þessa súrrealísku
hugmynd
Fyrir hálfu ári leit teiknimyndasagan Bruce the Angry Bear
dagsins ljós. Sagan fjallar um samkynhneigt par í borginni
Gaykjavík. Höfundur sögunnar, Jonathan Duffy, hefur nú fengið
Hugleik Dagsson til liðs við sig sem gestateiknara.
Einar Valur, Hugleikur og Jonathan vinna vel saman sem teymi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
En Einar Er mjög
góður í að sEgja
mér hVort brandararnir
séu nógu fyndnir Eða Ekki.
Jonathan Duffy
Flestir landsmenn ættu að kannast
við teikningarnar hans Hugleiks.
2 5 . m a í 2 0 1 7 F I m m T U D a G U R40 l í F I ð ∙ F R É T T a B l a ð I ð
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:5
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
6
-F
0
E
4
1
D
1
6
-E
F
A
8
1
D
1
6
-E
E
6
C
1
D
1
6
-E
D
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
2
4
5
2
0
1
7
C
M
Y
K