Fréttablaðið - 25.05.2017, Blaðsíða 6
FILIPPISEYJAR Ófremdarástand ríkir
um þessar mundir í Marawi-borg á
Mindanao, syðstu ey Filippseyja, en
meðal annars hafa vígamenn brugð-
ið á það ráð að taka tugi kirkjugesta í
gíslingu. Krafa þeirra er að herlögum
verði aflétt og að þeir fái að yfirgefa
borgina óáreittir.
Herlögum var lýst yfir á eynni
eftir að herinn réðst til atlögu gegn
öfgahreyfingunni Abu Sayyaf, sem
hefur lýst yfir stuðningi við Íslamska
ríkið, með þeim afleiðingum að liðs-
menn hennar tvístruðust og leituðu
inn í Marawi. Aðgerð hersins átti sér
stað á þriðjudag.
Þegar inn í borgina var komið
lögðu mennirnir eld að kaþólskri
kirkju, fangelsi borgarinnar, tveim-
ur skólum, tveimur brúm og tóku
yfir ýmsar byggingar í miðborginni.
Um 200 þúsund manns búa í borg-
inni en þúsundir hafa gripið til þess
ráðs að flýja hana á meðan bardagar
hersins og skæruliðanna standa yfir.
Í yfirlýsingu frá erkibiskupnum
Socrates Villegas, æðsta klerki kaþ-
ólsku kirkjunnar á Filippseyjum,
segir að vígamennirnir hafi ráðist
inn í dómkirkju borgarinnar og
haldi þar presti, þremur starfs-
mönnum og tíu kirkjugestum í
gíslingu.
„Þeir hóta að taka gíslana af lífi ef
hermenn stjórnarinnar verða ekki
kallaðir til baka frá borginni,“ segir
í yfirlýsingu Villegas. „Presturinn
tók ekki þátt í átökunum. Hann er
óvopnaður og engum stafar ógn
af honum. Gíslatakan á honum og
öðrum kirkjugestum brýtur gegn
öllum reglum vopnaðra átaka.“
Alls er talið að um hundrað með-
limir samtakanna hafi ráðist inn í
borgina eftir aðgerðina. Þegar það
gerðist var Rodrigo Duterte, forseti
Filippseyja, í opinberri heimsókn í
Rússlandi. Duterte er þekktur fyrir
að vera óvæginn í garð glæpona og
lýsti nær umsvifalaust yfir herlögum
á eynni. Þau munu gilda í sextíu
daga. Ef átökin dragast á langinn
gæti komið til greina að setja herlög
á víðar í landinu.
„Sum okkar hafa upplifað herlög,
þegar Marcos ríkti, og ég get full-
vissað ykkur um það að herlögin
nú verða ekki öðruvísi á nokkurn
hátt. Þau munu verða mjög harka-
leg,“ segir Duterte. Vísar hann þar til
Ferd inand Marcos forseta sem ríkti
á Filippseyjum frá 1965-86, þar af
árin 1972-81 sem einræðisherra í
krafti herlaga.
Áætlanir forsetans hafa sætt gagn-
rýni víða en margir telja að vanda-
mál landsins sé ekki hægt að leysa
með byssukúlum. Forsetinn lætur
þau orð sem vind um eyru þjóta.
johannoli@frettabladid.is
Herlög forseta Filippseyja
verða svipuð og í tíð Marcos
Íslamskir vígamenn hafa valdið gífurlegum usla í Marawi-borg á eynni Mindanao á Filippseyjum undan-
farna daga. Lagður hefur verið eldur að opinberum byggingum og kirkjugestir verið teknir í gíslingu. For-
setinn brást við með því að lýsa yfir herlögum. Krafa vígamanna er að þeir fái leyfi til að yfirgefa borgina.
Fagna stjórnlagaráði
Þessir stuðningsmenn Nicolas Maduro, forseta Venesúela, sátu undir uppblásnu líkneski af forsetanum á stuðningsmannafundi í höfuðborginni
Karakas í gær. Maduro ákvað á þriðjudag að kosið skyldi til stjórnlagaráðs í landinu sem ætti að gegna því hlutverki að leggja grunn að nýrri
stjórnarskrá. Aðgerðin er viðbragð forsetans við mótmælum og óeirðum sem hafa verið í landinu undanfarnar vikur. NORDICPHOTOS/AFP
Sum okkar hafa
upplifað herlög,
þegar Marcos ríkti, og ég get
fullvissað ykkur um það að
herlögin nú verða
ekki öðruvísi á
nokkurn hátt.
Rodrigo Duterte,
forseti Filippseyja
Herlögin gilda á eynni allri og eru hermenn sýnilegri en áður í stærstu borgum. Myndin er frá Davao þar sem Duterte
var áður borgarstjóri. Duterte er þekktur fyrir að vera óvæginn í garð glæpamanna. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
SPÁNN Hæstiréttur Spánar staðfesti
í gær 21 mánaðar fangelsisdóm yfir
argentínsku knattspyrnustjörnunni
Lionel Messi. Þá var faðir hans, Jorge,
einnig dæmdur í fangelsi. Þeir feðgar
voru dæmdir fyrir að svíkja undan
skatti, en um er að ræða 460 milljónir
króna sem þeir hefðu átt að greiða.
Lög á Spáni kveða á um að fang-
elsisdómar styttri en til tveggja ára
geti allir verið skilorðsbundnir og því
verður að teljast afar ólíklegt að Messi-
feðgar muni sitja inni fyrir brotið.
Sjálfur hefur Lionel Messi alltaf
neitað sök. „Ég hef bara einbeitt mér
að því að spila fótbolta,“ sagði hann
við aðalmeðferð málsins í héraðs-
dómstól í Barcelona í fyrra.
Hæstiréttur mildaði dóminn yfir
Jorge Messi úr 21 mánuði niður í
fimmtán þar sem hann greiddi hluta
sinna skatta. – þea
Hæstiréttur
staðfesti dóm
yfir Messi
SVÍÞJÓÐ Ráðgert er að um 50 kínversk
pör muni á hverju ári koma í tækni-
frjóvgun á háskólasjúkrahúsinu í
Malmö í Svíþjóð. Margar kínverskar
konur fóru í ófrjósemisaðgerð vegna
stefnu yfirvalda í Kína um að pör
mættu bara eignast eitt barn. Gefið
var grænt ljós í Kína á fleiri börn árið
2015 og nú vilja konurnar fá hjálp við
að eignast annað barn.
Deildarstjóri hjá fyrirtækinu Skåne
Care, sem hefur gert samning við
háskólasjúkrahúsið, segir að sam-
kynhneigðir eða einhleypir sem ekki
hafi möguleika á tæknifrjóvgun í Kína
muni mögulega hafa áhuga á að koma
til Malmö í þessu skyni. – ibs
Svíar hjálpa
Kínverjum
við barneignir
Margar kínverskar konur fóru í ófrjó-
semisaðgerð þegar þær máttu bara
eignast eitt barn. NORDICPHOTOS/AFP
UMHVERFISMÁL Umhverfis- og auð-
lindaráðherra felur Náttúrurann-
sóknastöðinni við Mývatn (RAMÝ)
og Umhverfisstofnun að efla vöktun
á innstreymi næringarefna í Mývatn
sem og fleiri þáttum í sumar. Í til-
kynningu frá ráðuneytinu segir
að það sé nauðsynlegur þáttur í
tengslum við aðgerðir til að draga úr
áhrifum á lífríki vatnsins af manna-
völdum.
Þá segir einnig að mat RAMÝ sé að
efling vöktunar sé æskileg, einkum á
innstreymi næringarefna og blábakt-
eríu- og þörungablóma. Stefnt er að
því að vöktun verði efld strax í sumar
en að heilstæð vöktunaráætlun á
Mývatni, þar sem tillit verði tekið til
fleiri þátta og núverandi vöktun verði
felld inn, liggi fyrir í haust. – þea
Efla vöktun
á ástandi
Mývatns
Mývatn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
2 5 . M A Í 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:5
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
6
-F
5
D
4
1
D
1
6
-F
4
9
8
1
D
1
6
-F
3
5
C
1
D
1
6
-F
2
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
2
4
5
2
0
1
7
C
M
Y
K