Fréttablaðið - 25.05.2017, Blaðsíða 13
Ég hef lýst því áður á þessum stað hversu hallað hefur á lýðræði um heiminn frá aldamótum, einnig í okkar heims-
hluta. Steininn tók úr þegar Freedom House
sem hefur kortlagt framþróun lýðræðis
í heiminum um langt skeið ákvað fyrir
nokkru að lækka lýðræðiseinkunn Banda-
ríkjanna. Rökin fyrir lækkuninni eru m.a.
gölluð kjördæmaskipan sem bjagar úrslit
kosninga, hömlulaus fjárframlög fyrirtækja
til stjórnmálamanna og flokka, þrátefli á
þingi, nýir vitnisburðir um kynþáttamis-
rétti o.fl.
Þegar landið sem hálf heimsbyggðin
hefur litið upp til sem „leiðtoga hins frjáls
heims“ allar götur frá 1945 telst ekki lengur
vera fullburða lýðræðisríki, þurfa menn að
staldra við. Bandaríkin voru eina lýðræðis-
ríki heimsins fram til 1850 þegar byltingar
brutust út í Evrópu og voru barðar niður
en leiddu smám saman af sér útbreiðslu
lýðræðis einnig þar. Frá 1945 til alda-
mótanna 2000 fjölgaði lýðræðisríkjum upp
í 90 sem var þá næstum helmingur allra
ríkja heimsins. Síðan laust eftir aldamótin
hefur fjölgunin þó stöðvazt. Jafnvel Pólland
og Ungverjaland, aðildarlönd ESB, ögra nú
lýðræði og mannréttindum. Vonin um að
gömlu sovétlýðveldin tækju upp lýðræði
eftir fall kommúnismans þar um 1990 brást
ef Eystrasaltsríkin þrjú, Eistland, Lettland
og Litháen, eru ein undanskilin. Hvað kom
fyrir?
Hér langar mig í örstuttu máli að lýsa
samhenginu milli misskiptingar og hnign-
andi lýðræðis.
Misskipting grefur undan lýðræði
Aukinn ójöfnuður í tekjuskiptingu í
Bandaríkjunum tengist þeim þáttum sem
Freedom House tilgreinir sem rök fyrir
lækkun lýðræðiseinkunnar landsins. Ýmsir
hagfræðingar hafa kortlagt aukinn ójöfnuð
í Bandaríkjunum og annars staðar, m.a.
franski prófessorinn Thomas Piketty sem
birti niðurstöður sínar í rómaðri met-
sölubók 2015. Stiklum á stóru. Hlutdeild
1% tekjuhæstu heimilanna í Bandaríkj-
unum tvöfaldaðist úr 10% 1960-1970 upp
í 20% 2013. Hlutdeild 0,1% tekjuhæstu
heimilanna þar í landi þrefaldaðist og vel
það úr 3% í 10% á sama tíma. Ekkert Vestur-
Evrópuland kemst nálægt Bandaríkjunum
að þessu leyti þótt misskipting hafi einnig
ágerzt í Evrópu. Aukin misskipting veikir
lýðræði á ýmsa vegu.
Misvægi atkvæða
Misvægi atkvæðisréttar hneigist til að
sljóvga viðnám gegn öðru misrétti. Stjórn-
málamenn sem nærast á ranglátri kjör-
dæmaskipan verða smám saman ónæmir
fyrir ranglæti yfirhöfuð líkt og í sjálfsvörn.
Misvægi atkvæðisréttar vestra lýsir sér m.a. í
gerólíkum fjölda kjósenda að baki hverjum
þingmanni í öldungadeildinni, hlutdrægum
reglum um skráningu kjósenda sem bitna
einkum á blökkumönnum og skakkri
skiptingu landsins í kjördæmi sem þing-
menn geta sjálfir krukkað í til að auka líkur
á eigin endurkjöri (e. gerrymandering).
Tveir forsetar af þrem frá árinu 2000 náðu
kjöri þótt helzti andstæðingur þeirra hlyti
fleiri atkvæði á landsvísu.
Aukin misskipting hefur haldizt í hendur
við skarpari flokkadrætti, jafnvel í Hæsta-
rétti Bandaríkjanna. Úrskurður réttarins
2010 þess efnis að engin bönd megi leggja á
fjárframlög fyrirtækja til stjórnmálamanna
og flokka féll eftir flokkslínum, fimm
atkvæði gegn fjórum, og veikti lýðræðið
með því að tefla miklu valdi upp í hendur
örfárra auðmanna sem segja sífellt fleiri
stjórnmálamönnum fyrir verkum.
Aukin misskipting hefur einnig ýtt undir
úlfúð í stjórnmálum, dregið úr kosninga-
þátttöku og veitt vatni á myllu lygalaupa.
Þessi þróun hefur haldizt í hendur við
þrönga stöðu margra menntastofnana og
annarrar almannaþjónustu og einnig við
kynþáttamisrétti sem sýnir fá merki um
undanhald. Virðingarleysi fyrir staðreynd-
um (e. alternative facts) og beinar lygar
gegndu miklu hlutverki í forsetakjörinu í
nóvember sl. og gera enn svo stjórnmála-
líf landsins leikur nú á reiðiskjálfi. Þetta
skiptir máli því heillaríkt lýðræði útheimtir
virðingu fyrir staðreyndum.
Framfarahorfur lýðræðis
Abraham Lincoln Bandaríkjaforseti 1861-
1865 var sama sinnis. Hann sagði (í þýðingu
minni): „Ég hef bjargfasta trú á þjóðinni.
Sé henni sagður sannleikurinn er hægt að
reiða sig á að hún standist hverja raun. Öllu
skiptir að bera raunverulegar staðreyndir á
borð, og bjór.“
Haldi misskipting áfram að áger ast
virðast framfarahorfur lýðræðis ekki bjartar
í Bandaríkjunum og annars staðar. Þennan
vítahring verður að rjúfa með því að snúa
misskiptingunni við m.a. með því að leysa
stjórnmálamenn og flokka úr kæfandi
faðmlagi auðmanna og hagsmunahópa.
Betri stjórn fjármála ríkisins myndi einnig
hjálpa. Ætla verður að Bandaríkin standist
þessa raun.
Án nauðsynlegra umbóta er hætt við
að misskipting haldi áfram að breiðast út
líkt og illgresi og undanhald lýðræðis byrji
með líku lagi að breiðast út eins og smit.
Ef Bandaríkin bregðast lýðræðinu kann
öðrum þjóðum að finnast óhætt að fara
eins að. Fari svo þarf Evrópa að rísa upp
og sýna umheiminum fram á kosti rétt-
látrar skiptingar auðs og tekna. Betra og
heillavænlegra væri að Bandaríkjunum og
Evrópu auðnaðist sem fyrr að vinna verkin
hlið við hlið og laða önnur lönd að lýðræði
og mannréttindum.
Svo bregðast krosstré
Þorvaldur
Gylfason
Án nauðsyn-
legra umbóta
er hætt við að
misskipting
haldi áfram
að breiðast út
líkt og illgresi
og undanhald
lýðræðis byrji
með líku lagi
að breiðast út
eins og smit.
Í dag
Síðast seldist
upp á ferna
tónleika!
LEXUS OG EGILS APPELSÍN
kynna með stolti
ELDBORG HÖRPU
20. DESEMBER KL. 18 OG 20.30
HARPA.IS/SISSEL · SENA.IS/SISSEL
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13F i M M T u d a g u R 2 5 . M a Í 2 0 1 7
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:5
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
6
-E
2
1
4
1
D
1
6
-E
0
D
8
1
D
1
6
-D
F
9
C
1
D
1
6
-D
E
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
2
4
5
2
0
1
7
C
M
Y
K