Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.05.2017, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 25.05.2017, Qupperneq 13
Ég hef lýst því áður á þessum stað hversu hallað hefur á lýðræði um heiminn frá aldamótum, einnig í okkar heims- hluta. Steininn tók úr þegar Freedom House sem hefur kortlagt framþróun lýðræðis í heiminum um langt skeið ákvað fyrir nokkru að lækka lýðræðiseinkunn Banda- ríkjanna. Rökin fyrir lækkuninni eru m.a. gölluð kjördæmaskipan sem bjagar úrslit kosninga, hömlulaus fjárframlög fyrirtækja til stjórnmálamanna og flokka, þrátefli á þingi, nýir vitnisburðir um kynþáttamis- rétti o.fl. Þegar landið sem hálf heimsbyggðin hefur litið upp til sem „leiðtoga hins frjáls heims“ allar götur frá 1945 telst ekki lengur vera fullburða lýðræðisríki, þurfa menn að staldra við. Bandaríkin voru eina lýðræðis- ríki heimsins fram til 1850 þegar byltingar brutust út í Evrópu og voru barðar niður en leiddu smám saman af sér útbreiðslu lýðræðis einnig þar. Frá 1945 til alda- mótanna 2000 fjölgaði lýðræðisríkjum upp í 90 sem var þá næstum helmingur allra ríkja heimsins. Síðan laust eftir aldamótin hefur fjölgunin þó stöðvazt. Jafnvel Pólland og Ungverjaland, aðildarlönd ESB, ögra nú lýðræði og mannréttindum. Vonin um að gömlu sovétlýðveldin tækju upp lýðræði eftir fall kommúnismans þar um 1990 brást ef Eystrasaltsríkin þrjú, Eistland, Lettland og Litháen, eru ein undanskilin. Hvað kom fyrir? Hér langar mig í örstuttu máli að lýsa samhenginu milli misskiptingar og hnign- andi lýðræðis. Misskipting grefur undan lýðræði Aukinn ójöfnuður í tekjuskiptingu í Bandaríkjunum tengist þeim þáttum sem Freedom House tilgreinir sem rök fyrir lækkun lýðræðiseinkunnar landsins. Ýmsir hagfræðingar hafa kortlagt aukinn ójöfnuð í Bandaríkjunum og annars staðar, m.a. franski prófessorinn Thomas Piketty sem birti niðurstöður sínar í rómaðri met- sölubók 2015. Stiklum á stóru. Hlutdeild 1% tekjuhæstu heimilanna í Bandaríkj- unum tvöfaldaðist úr 10% 1960-1970 upp í 20% 2013. Hlutdeild 0,1% tekjuhæstu heimilanna þar í landi þrefaldaðist og vel það úr 3% í 10% á sama tíma. Ekkert Vestur- Evrópuland kemst nálægt Bandaríkjunum að þessu leyti þótt misskipting hafi einnig ágerzt í Evrópu. Aukin misskipting veikir lýðræði á ýmsa vegu. Misvægi atkvæða Misvægi atkvæðisréttar hneigist til að sljóvga viðnám gegn öðru misrétti. Stjórn- málamenn sem nærast á ranglátri kjör- dæmaskipan verða smám saman ónæmir fyrir ranglæti yfirhöfuð líkt og í sjálfsvörn. Misvægi atkvæðisréttar vestra lýsir sér m.a. í gerólíkum fjölda kjósenda að baki hverjum þingmanni í öldungadeildinni, hlutdrægum reglum um skráningu kjósenda sem bitna einkum á blökkumönnum og skakkri skiptingu landsins í kjördæmi sem þing- menn geta sjálfir krukkað í til að auka líkur á eigin endurkjöri (e. gerrymandering). Tveir forsetar af þrem frá árinu 2000 náðu kjöri þótt helzti andstæðingur þeirra hlyti fleiri atkvæði á landsvísu. Aukin misskipting hefur haldizt í hendur við skarpari flokkadrætti, jafnvel í Hæsta- rétti Bandaríkjanna. Úrskurður réttarins 2010 þess efnis að engin bönd megi leggja á fjárframlög fyrirtækja til stjórnmálamanna og flokka féll eftir flokkslínum, fimm atkvæði gegn fjórum, og veikti lýðræðið með því að tefla miklu valdi upp í hendur örfárra auðmanna sem segja sífellt fleiri stjórnmálamönnum fyrir verkum. Aukin misskipting hefur einnig ýtt undir úlfúð í stjórnmálum, dregið úr kosninga- þátttöku og veitt vatni á myllu lygalaupa. Þessi þróun hefur haldizt í hendur við þrönga stöðu margra menntastofnana og annarrar almannaþjónustu og einnig við kynþáttamisrétti sem sýnir fá merki um undanhald. Virðingarleysi fyrir staðreynd- um (e. alternative facts) og beinar lygar gegndu miklu hlutverki í forsetakjörinu í nóvember sl. og gera enn svo stjórnmála- líf landsins leikur nú á reiðiskjálfi. Þetta skiptir máli því heillaríkt lýðræði útheimtir virðingu fyrir staðreyndum. Framfarahorfur lýðræðis Abraham Lincoln Bandaríkjaforseti 1861- 1865 var sama sinnis. Hann sagði (í þýðingu minni): „Ég hef bjargfasta trú á þjóðinni. Sé henni sagður sannleikurinn er hægt að reiða sig á að hún standist hverja raun. Öllu skiptir að bera raunverulegar staðreyndir á borð, og bjór.“ Haldi misskipting áfram að áger ast virðast framfarahorfur lýðræðis ekki bjartar í Bandaríkjunum og annars staðar. Þennan vítahring verður að rjúfa með því að snúa misskiptingunni við m.a. með því að leysa stjórnmálamenn og flokka úr kæfandi faðmlagi auðmanna og hagsmunahópa. Betri stjórn fjármála ríkisins myndi einnig hjálpa. Ætla verður að Bandaríkin standist þessa raun. Án nauðsynlegra umbóta er hætt við að misskipting haldi áfram að breiðast út líkt og illgresi og undanhald lýðræðis byrji með líku lagi að breiðast út eins og smit. Ef Bandaríkin bregðast lýðræðinu kann öðrum þjóðum að finnast óhætt að fara eins að. Fari svo þarf Evrópa að rísa upp og sýna umheiminum fram á kosti rétt- látrar skiptingar auðs og tekna. Betra og heillavænlegra væri að Bandaríkjunum og Evrópu auðnaðist sem fyrr að vinna verkin hlið við hlið og laða önnur lönd að lýðræði og mannréttindum. Svo bregðast krosstré Þorvaldur Gylfason Án nauðsyn- legra umbóta er hætt við að misskipting haldi áfram að breiðast út líkt og illgresi og undanhald lýðræðis byrji með líku lagi að breiðast út eins og smit. Í dag Síðast seldist upp á ferna tónleika! LEXUS OG EGILS APPELSÍN kynna með stolti ELDBORG HÖRPU 20. DESEMBER KL. 18 OG 20.30 HARPA.IS/SISSEL · SENA.IS/SISSEL S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13F i M M T u d a g u R 2 5 . M a Í 2 0 1 7 1 3 -0 6 -2 0 1 7 1 0 :5 2 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 1 6 -E 2 1 4 1 D 1 6 -E 0 D 8 1 D 1 6 -D F 9 C 1 D 1 6 -D E 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 2 4 5 2 0 1 7 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.