Fréttablaðið - 25.05.2017, Blaðsíða 64
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Bakþankar
Tómasar Þórs
Þórðarsonar
S úperdósin, stór kók í dós fyrir þá átta sem vita ekki um hvað ræðir, hefur verið í lífi mínu og
okkar allra síðan árið 1990 en er nú
að kveðja eins og flestir vita.
Coca-Cola hefur tekið þá
ákvörðun fyrir okkur að hálfur lítri
af kók í íláti sem ekki er hægt að
loka aftur sé ekki hollt. Pressan við
að klára dósina fer bara með fólk og
skammturinn of stór, að því virðist.
Gott og blessað. Kók er mjög
óhollt en áfram verður hægt að fá
hálfan lítra í plasti sem er fínt. Kók í
hálfs lítra plasti er í fimmta sæti yfir
bestu leiðina til að drekka þennan
rammóholla en vinalega drykk.
Maður sér á eftir Súperdósinni
sem hefur verið í lífi manns í 27 ár.
Reyndar sagði ég skilið við sykur-
drykki fyrir þremur árum en 24 ára
samband við Súperdósina gleymist
seint.
Ég get ekki logið því að ég muni
eftir fyrsta skiptinu sem ég smellti
flipanum af minni fyrstu Súperdós
en tímarnir í Kúlunni á Réttarholts-
vegi með Súperdós í annarri og
pylsu í hinni voru góðir.
Maður ólst upp við kókið sem
munaðarvöru á laugardögum
þegar maður var barn en svo fór
neyslan, eða vináttan, að aukast á
unglingsárunum. Seinna meir kom
Súperdósin sterk inn sem góður
vinur á sunnudögum eftir að búið
var að hitta mennina kvöldið áður.
Það er kannski eins gott að Súp-
erdósin sé að kveðja því unglingar
í dag vita ekki einu sinni hvað um
ræðir þegar rætt er um þennan
minjagrip. „Ha? Súpu í dós?“ spurði
mig einn fyrir nokkrum árum
þegar ég bað um Súperdós í bíla-
lúgu. Þá var þetta búið.
Núna veit samt allt afgreiðslu-
fólk hvað „Kríli“ er. Jæja. Skammt-
arnir minnka og mennirnir með.
Gamall vinur
kvaddur
STILL
FRESH
Ekkert var ferskara en Michael Jackson að moonwalka og fyrsta
Júmbó-samlokan sem við smurðum með pompi og prakt.
Síðan höfum við verið að gera ferska rétti úr ferskum
hráefnum upp á hvern einasta dag.
Júmbó – still fresh!
VIÐ MUNUM EFTIR 1983
599 kr.stk.
Kanilgrillbrauð
Nýtt!
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Í ENGIHJALLA,
VESTURBERGI
OG ARNARBAKKA
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:5
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
6
-C
9
6
4
1
D
1
6
-C
8
2
8
1
D
1
6
-C
6
E
C
1
D
1
6
-C
5
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
2
4
5
2
0
1
7
C
M
Y
K