Fréttablaðið - 25.05.2017, Blaðsíða 58
Blekhylki.is, S. 517 0150 – 2. hæð Smáralind
Ódýr blekhylki
og tónerar!
Lodge járnpanna, 26 cm
Verð 8.900 kr.
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Ný j a s t a æ ð i ð í heiminum í dag eru svokallaðir Fidget Spinners eða þyrilsnældur (fleiri íslensk orð
hafa verið notuð um fyrirbærið, til
að mynda þeytispjald, fiktisnælda
og fleira). Um er að ræða leikfang
sem hægt er að snúa í höndunum á
sér – yfirleitt eru þetta þrjú „blöð“
með legu í miðjunni, en blöðin
geta raunar verið fleiri eða færri og
hönnunin eilítið frábrugðin þess
ari. Fingurinn er settur á leguna og
síðan er blöðunum snúið. Flóknara
er það ekki.
Þyrilsnældur eru alls ekki nýjar
af nálinni. Efnaverkfræðingurinn
Catherine Hettinger hefur verið
sögð hafa fundið leikfangið upp
árið 1993 – samkvæmt einni sög
unni gerðist það eftir að hún sá
börn kasta grjóti í lögreglumenn
í Ísrael og hafi ákveðið í fram
haldinu að finna upp leikfang sem
gæti aðstoðað börn við að losa sig
við innibyrgða reiði. Samkvæmt
annarri sögu var hún með vöðva
slensfár, sjúkdóm sem meðal ann
ars veldur magnleysi í vöðvum, og
hún hafi fundið snælduna upp til að
Nýjasta æðið
er alveg
spinnegalEkki eru allar
þyrils-
nældur
skapaðar
eins.
Í síðasta mánuði
tóku Fidget Spinners
eða þyrilsnældur að
verða afskaplega vin-
sælar í heiminum og
nú þurfa allir krakkar
– jú, og líka fullorðnir,
að eiga eitt stykki.
Leikfangið á að geta
hjálpað fólki með
stress og að halda
einbeitingu – þó eru
sumir efins um það.
Nokkur brögð sem
hægt er að fram-
kvæma með sNælduNa
„Byrjandinn“
Grunntrikkið – snúðu snældunni
á milli þumals og löngutangar.
Þegar græjan er komin með
góðan snúning slepptu þá þuml-
inum og sjáðu snælduna snúast á
þumlinum einum saman.
„Skiptidíllinn“
Þessi brella byrjar eins og
Byrjandinn – nema þegar snældan
er komin á snúning kastar þú
henni yfir í hina hendina þar sem
þú grípur hana á milli þumals og
löngutangar þeim megin. Reyndu
að kasta snældunni á milli eins
oft og þú getur og halda henni á
snúning á meðan.
„Pólskiptin“
Nú erum við komin yfir í atvinnu-
mannabrellur. Hér byrjum við
eins og í Skiptidílnum – nema að
snældunni er snúið á milli þumals
og vísifingurs og þegar henni
er kastað, láréttri og á snúningi,
beint upp í loft er markmiðið að
hún snúist í hring í loftinu. Síðan
þarf auðvitað að grípa hana aftur
á milli þumals og vísifingurs.
„9-fingra dauðahöggið“
Snúðu snældunni á vísifingri,
kastaðu henni upp og láttu hana
lenda á löngutöng þar sem hún
snýst áfram, svo yfir á baug-
fingur og að lokum á litlafingur
– hér kemur erfiðasti parturinn
– kastaðu snældunni af
litlafingri og aftur yfir á
vísifingur og endurtaktu
ferlið. Ef þú getur þetta
ertu formlega orðinn
meistari þyrilsnæld-
unnar.
geta leikið við dóttur sína. En málið
vandast svo enn frekar – Bloomberg
News heldur því fram að leikfangið
sem Hettinger fékk einkaleyfi á sé
alls ekki það sama og leikfangið sem
nú er gríðarlega vinsælt.
Látum það liggja á milli hluta. Til
gangur leikfangsins er svipaður og
tilgangur stressboltans (og margra
annara svipaðra leikfanga) – hlutur
sem fólk, og þá sér í lagi börn, geta
haft á milli handanna og fiktað í til
að losa sig við stress. Það hvernig
þetta leikfang varð svona ótrúlega
vinsælt er hins vegar erfiðara mál
að greina og kannski álíka óljóst og
uppruni leikfangsins. Forbes sagði í
grein sem kom út í desember í fyrra
að þyrilsnældan yrði skrifstofuleik
fang ársins 2017. Það var og, í apríl á
þessu ári rauk Google leit að „fidget
spinner“ upp og nú selst leikfangið
reglulega upp í búðum hér á landi.
Kaupir ekki að þetta hjálpi til
við einbeitingu
„Málið er að mér fannst þetta mjög
lúðalegt þegar ég keypti þetta sjálf
ur. En svo finnst mér eitthvað þægi
legt við að fikta í þessu þegar ég er
að horfa á sjónvarpið og „chilla“ í
tölvunni. En finnst ég samt ekkert
rosa nettur þegar ég er með þetta úti
í kringum fólk til dæmis.
En persónulega finnst mér þetta
næs meðan ég er að gera eitthvað
annað en skil samt eiginlega ekki
alveg tilganginn með þessu. Mér
finnst þetta líka áhugavert bara
eðlis og verkfræðilega séð
en ég kaupi ekki að þetta
sé að hjálpa fólki með
athyglisbrest að einbeita
sér eitthvað betur,“ segir
Hjálmar Örn Hannes
son, nemi og eigandi
þyrilsnældu.
stefanthor@fretta-
blaðið.is
Eldhress
drengur
snýr snæld-
unni á
þumlinum
einum saman, vá!
2 5 . m a í 2 0 1 7 F I m m T U D a G U R38 l í F I ð ∙ F R É T T a B l a ð I ð
Lífið
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:5
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
7
-0
4
A
4
1
D
1
7
-0
3
6
8
1
D
1
7
-0
2
2
C
1
D
1
7
-0
0
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
2
4
5
2
0
1
7
C
M
Y
K