Fréttablaðið - 25.05.2017, Blaðsíða 38
Ég var áður lítt
gefin fyrir gult en
nú er ég komin með gult
hár sem var absólút ekki
meiningin.
Pop up-markaður
Áslaugar verður í
Mengi, Óðinsgötu 2, frá
klukkan 13 til 15 á laugar-
dag. Allir velkomnir!
Við Hulda höfum alltaf verið hrifnar af senegalskri tónlist, eftir að hafa kynnst henni
hjá Árna Matt, tónlistarsnillingi á
Mogganum fyrir akkúrat þrjátíu
árum,“ segir Áslaug sem fór til Sene-
gal með Huldu Ágústsdóttur skart-
gripahönnuði. „Við Hulda höfum
árvisst farið til Ítalíu en ákváðum
að breyta til á fimmtugsárinu mínu
og skella okkur til Senegal. Ég hef
lítið kynnst Afríku en sá heimildar-
mynd um hönnun í höfuðborginni
Dakar og kolféll fyrir því sem fyrir
augu bar.“
Þær Áslaug og Hulda voru þrjár
vikur á ferðalaginu með stuttu
stoppi í París.
„Íbúar Senegal eru algjört æði;
ljúfir, glaðir og veisla út í eitt fyrir
augun, svo ég tali nú ekki um
eyrun. Bílstjórar eru með allt í
botni þannig að það er stuð að sitja
í bíl. Við dvöldum nokkra daga í
medínunni í Saly en þar sofnuðum
við við glaðan söng og vöknuðum
við hann aftur að klukkan fimm að
morgni. Söngvararnir voru glöðu
börnin á munaðarleysingjahælinu
við hliðina og ein af ástæðum þess
að ég slæ upp pop up-markaði að
ég vil safna í sjóð til þeirra,“ útskýrir
Áslaug.
Hin ástæðan er Sigríður Sigur-
jónsdóttir í Gallerí Spark og safn-
stjóri hjá Hönnunarsafninu. Hún
stakk upp á pop up-markaði við
Áslaugu fyrir margt löngu og
minnti hana á hugmyndina áður en
hún fór út.
„Ég elska dót en gæti aldrei rekið
búð. Eins og í Perú þar sem Maríu-
kertin voru svo falleg en ég rolaðist
bara til að kaupa nokkur sem
seldust strax. Ég ákvað því núna að
fylla nokkrar risa arabatöskur enda
lauflétt,“ segir Áslaug kát og tilefni
kátínunnar mýmörg.
„Um þessar mundir er ég líka að
fagna tíu ára afmæli bókarinnar
Iceland Picnic. Við Sigrún Sigvalda-
dóttir hönnuður létum prenta
brjálæðislegt magn af bókinni á
sínum tíma, og sem betur fer því
annars væri ég búin að gleyma
henni. Bókin vekur sífellt meiri
athygli og var nýverið margsinnis
vitnað í hana í stórri ferðagrein
Condé Nast-tímaritsins. Þá eru
lautarferðir beinlínis í tísku, eins
og sást í Merci, uppáhaldsbúðinni
minni í París. Þess vegna blanda ég
þessu saman ásamt góssi frá Balí
sem ég keypti í janúar, en það var
einmitt líka eitt af trendum Parísar-
borgar nú.“
Á ferðum sínum um Senegal báru
Áslaug og Hulda litríka og einstaka
skartgripi Huldu og vöktu verð-
skuldaða athygli.
„Senegalirnir urðu spinnegal
þegar þeir sáu festarnar og svo
dressuðum við okkur hressilega
upp. Nú á ég eitt mynstur fyrir
hvern dag vikunnar. Guli liturinn
kom sterkur inn í sólgulu Senegal
en ég var áður lítt gefin fyrir gult.
Nú er ég meira að segja komin
með gult hár, sem var absólút ekki
meiningin,“ segir Áslaug og hlær.
Næsta ferð Áslaugar út fyrir land-
steinana verður með Maríu Rán
Guðjónsdóttir útgefanda til Malí.
„Við María erum gott sett sem
fer í lautarferðir með ferðamenn
í sumar. Nú er uppáhaldstíminn
minn, þegar gróðurinn vaknar og
sumarið er fram undan. Vorum
síðast í rokferð um Reykjanesið þar
sem allir skemmtu sér vel og grillað
var entrécote með truffluðu trufflu-
sinnepi úr Matarbúrinu.“
Á markaðinum verða meðal ann-
ars til sölu körfur, bakkar, sloppar
og farartæki frá Senegal.
„Ég ætla að skella í eina stóra
poulet yassa sem Senegalar borða
nánast í öll mál og ég eldaði marg-
oft á dag fyrir okkur Huldu. Það má
segja létt sjokk að koma heim eftir
dvöl í landi sem er með jafn geggjað
hráefni. Og af því að samkoman
er í Mengi smellpassar að blasta
fjörugri Senegal-tónlist!“
Safnar fyrir börn í Senegal
Fagurkerinn, ljósmyndarinn, matargúrúinn og heimskonan Áslaug
Snorradóttir verður með freistandi pinkla og pakka frá seiðandi fagra
Senegal á pop up-markaði fyrir munaðarleysingja í Mengi á laugardag.
Litrík Senegal-klæði sem gleðja og
kæta bæði augu og anda.
Áslaug Snorra-
dóttir með
mandarínur á
augum, háls-
festi eftir Huldu
Ágústsdóttur
og tískulitinn í
Senegal í hárinu.
MYNDIR/ÁSLAUG
SNORRADÓTTIR
Skartgripir Huldu Ágústsdóttur
freistuðu fegurðardísa í Senegal
enda einstaklega klæðilegir og fagrir.
Tinni og Kolbeinn kafteinn eru dæmi
um handgerð leikföng frá Senegal.
Körfur sem láta drauma rætast sönn-
uðu sig svo um munaði í Senegal.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@365.is
Netverslun á tiskuhus.is
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
Stærðir 38-52
Smart sumarföt, fyrir smart konur
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 5 . M a í 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:5
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
6
-F
F
B
4
1
D
1
6
-F
E
7
8
1
D
1
6
-F
D
3
C
1
D
1
6
-F
C
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
2
4
5
2
0
1
7
C
M
Y
K