Fréttablaðið - 25.05.2017, Side 38

Fréttablaðið - 25.05.2017, Side 38
Ég var áður lítt gefin fyrir gult en nú er ég komin með gult hár sem var absólút ekki meiningin. Pop up-markaður Áslaugar verður í Mengi, Óðinsgötu 2, frá klukkan 13 til 15 á laugar- dag. Allir velkomnir! Við Hulda höfum alltaf verið hrifnar af senegalskri tónlist, eftir að hafa kynnst henni hjá Árna Matt, tónlistarsnillingi á Mogganum fyrir akkúrat þrjátíu árum,“ segir Áslaug sem fór til Sene- gal með Huldu Ágústsdóttur skart- gripahönnuði. „Við Hulda höfum árvisst farið til Ítalíu en ákváðum að breyta til á fimmtugsárinu mínu og skella okkur til Senegal. Ég hef lítið kynnst Afríku en sá heimildar- mynd um hönnun í höfuðborginni Dakar og kolféll fyrir því sem fyrir augu bar.“ Þær Áslaug og Hulda voru þrjár vikur á ferðalaginu með stuttu stoppi í París. „Íbúar Senegal eru algjört æði; ljúfir, glaðir og veisla út í eitt fyrir augun, svo ég tali nú ekki um eyrun. Bílstjórar eru með allt í botni þannig að það er stuð að sitja í bíl. Við dvöldum nokkra daga í medínunni í Saly en þar sofnuðum við við glaðan söng og vöknuðum við hann aftur að klukkan fimm að morgni. Söngvararnir voru glöðu börnin á munaðarleysingjahælinu við hliðina og ein af ástæðum þess að ég slæ upp pop up-markaði að ég vil safna í sjóð til þeirra,“ útskýrir Áslaug. Hin ástæðan er Sigríður Sigur- jónsdóttir í Gallerí Spark og safn- stjóri hjá Hönnunarsafninu. Hún stakk upp á pop up-markaði við Áslaugu fyrir margt löngu og minnti hana á hugmyndina áður en hún fór út. „Ég elska dót en gæti aldrei rekið búð. Eins og í Perú þar sem Maríu- kertin voru svo falleg en ég rolaðist bara til að kaupa nokkur sem seldust strax. Ég ákvað því núna að fylla nokkrar risa arabatöskur enda lauflétt,“ segir Áslaug kát og tilefni kátínunnar mýmörg. „Um þessar mundir er ég líka að fagna tíu ára afmæli bókarinnar Iceland Picnic. Við Sigrún Sigvalda- dóttir hönnuður létum prenta brjálæðislegt magn af bókinni á sínum tíma, og sem betur fer því annars væri ég búin að gleyma henni. Bókin vekur sífellt meiri athygli og var nýverið margsinnis vitnað í hana í stórri ferðagrein Condé Nast-tímaritsins. Þá eru lautarferðir beinlínis í tísku, eins og sást í Merci, uppáhaldsbúðinni minni í París. Þess vegna blanda ég þessu saman ásamt góssi frá Balí sem ég keypti í janúar, en það var einmitt líka eitt af trendum Parísar- borgar nú.“ Á ferðum sínum um Senegal báru Áslaug og Hulda litríka og einstaka skartgripi Huldu og vöktu verð- skuldaða athygli. „Senegalirnir urðu spinnegal þegar þeir sáu festarnar og svo dressuðum við okkur hressilega upp. Nú á ég eitt mynstur fyrir hvern dag vikunnar. Guli liturinn kom sterkur inn í sólgulu Senegal en ég var áður lítt gefin fyrir gult. Nú er ég meira að segja komin með gult hár, sem var absólút ekki meiningin,“ segir Áslaug og hlær. Næsta ferð Áslaugar út fyrir land- steinana verður með Maríu Rán Guðjónsdóttir útgefanda til Malí. „Við María erum gott sett sem fer í lautarferðir með ferðamenn í sumar. Nú er uppáhaldstíminn minn, þegar gróðurinn vaknar og sumarið er fram undan. Vorum síðast í rokferð um Reykjanesið þar sem allir skemmtu sér vel og grillað var entrécote með truffluðu trufflu- sinnepi úr Matarbúrinu.“ Á markaðinum verða meðal ann- ars til sölu körfur, bakkar, sloppar og farartæki frá Senegal. „Ég ætla að skella í eina stóra poulet yassa sem Senegalar borða nánast í öll mál og ég eldaði marg- oft á dag fyrir okkur Huldu. Það má segja létt sjokk að koma heim eftir dvöl í landi sem er með jafn geggjað hráefni. Og af því að samkoman er í Mengi smellpassar að blasta fjörugri Senegal-tónlist!“ Safnar fyrir börn í Senegal Fagurkerinn, ljósmyndarinn, matargúrúinn og heimskonan Áslaug Snorradóttir verður með freistandi pinkla og pakka frá seiðandi fagra Senegal á pop up-markaði fyrir munaðarleysingja í Mengi á laugardag. Litrík Senegal-klæði sem gleðja og kæta bæði augu og anda. Áslaug Snorra- dóttir með mandarínur á augum, háls- festi eftir Huldu Ágústsdóttur og tískulitinn í Senegal í hárinu. MYNDIR/ÁSLAUG SNORRADÓTTIR Skartgripir Huldu Ágústsdóttur freistuðu fegurðardísa í Senegal enda einstaklega klæðilegir og fagrir. Tinni og Kolbeinn kafteinn eru dæmi um handgerð leikföng frá Senegal. Körfur sem láta drauma rætast sönn- uðu sig svo um munaði í Senegal. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@365.is Netverslun á tiskuhus.is Holtasmára 1 201 Kópavogur (Hjartaverndarhúsið) Sími 571 5464 Stærðir 38-52 Smart sumarföt, fyrir smart konur 8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 5 . M a í 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 1 3 -0 6 -2 0 1 7 1 0 :5 2 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 1 6 -F F B 4 1 D 1 6 -F E 7 8 1 D 1 6 -F D 3 C 1 D 1 6 -F C 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 6 4 s _ 2 4 5 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.