Fréttablaðið - 24.06.2017, Page 28

Fréttablaðið - 24.06.2017, Page 28
við sama verkefnið aftur og aftur, æfa sig eins oft og þarf til þess að komast upp á lagið með það sem þau eru að læra hverju sinni,“ segir Kristín Maríella og tekur dæmi um það þegar barn er að læra að skríða. „Það tekur langan tíma í það að finna jafnvægi á fjórum fótum, það reynir aftur og aftur, það missir jafnvægið, dettur á magann (eða andlitið) en heldur alltaf áfram að reyna þangað til það kemst upp á lag með þessa nýju hreyfingu. Oft finnst foreldrum erfitt að fylgjast með barninu sínu glíma við ný „verkefni“ því að ferlið felur í sér margar misheppnaðar tilraunir og oftar en ekki pirring og grát sem getur komið upp hjá barninu. Þegar barn verður pirrað og grætur þegar púsluspilið sem það er að reyna við passar ekki stökkvum við foreldrar oft til og hjálpum barninu, við smellum púslinu á réttan stað „Sko, sjáðu! Komið!“. Þegar við „björgum“ börnum út úr aðstæðum þar sem þau eru að reyna við og æfa sig á nýjum verkefnum og klárum verkefnin fyrir þau þá sendum við þeim þau skilaboð að okkur finnist óþægi- legt þegar eitthvað gengur ekki upp hjá þeim og að verkefnið þeirra eigi helst að klárast strax. Með þessu rænum við þau líka mik- ilvægum þroskatækifærum en það að „læra að læra“ er akk- úrat gert í gegnum þessa ferla – að fá að komast að því sjálf að til þess að læra eitthvað nýtt, til þess að klára verkefni, þarf að æfa sig, það þarf að prufa aftur, okkur þarf oft að mistakast og við þurfum að þola pirringinn og komast í gegnum hann til þess að komast þangað sem við ætlum okkur, læra eða uppgötva eitthvað nýtt eða klára verkefnið sem við tókum okkur fyrir hendur.“ Vá! Hvað þetta er flott! Kristín Maríella segir að auki að börn hafi miklu meiri áhuga á ferlinu sem liggur að því að læra eitthvað nýtt frekar en útkomunni. Hins vegar sé því öfugt farið hjá okkur fullorðna fólkinu. „Tilhneiging foreldra til þess að einblína á útkomu kemur sterkt fram þegar við viljum hrósa eða hvetja börnin okkar áfram. Við finnum okkur flest knúin til þess að hrósa fyrir það sem barn gerir vel en langoftast, án þess að átta okkur endilega á því, einblínum við á útkomu verksins en ekki vinnuna sem lá að baki verkefninu og leggj- um oft einnig okkar persónulega dóm á það sem um ræðir „Vá! hvað þetta er flott mynd! Glæsilegt!“. Það ætti að sjálfsögðu að vera aukaatriði hvort mynd sem barn teiknar sé falleg eða ekki. Hver erum við að dæma um það að bláa mynd- in sé betri eða fallegri en sú brúna? Kannski fékk barnið miklu meira út úr því að mála brúnu myndina þar sem það var upptekið af að skoða það hvernig litir blandast saman og læra þar af leiðandi heilan helling í leiðinni,“ bendir Kristín Mar- íella á og segir að þegar barn sé vant því að vera hrósað mikið fyrir það sem það gerir þá ýtum við undir það að barnið hugsi meira um útkomuna en það sem það gerir. „Barn sem er heltekið af því hvort það muni uppskera hrós eða samþykki frá umhverfinu þorir minna að taka áhættur eða prufa sig áfram og verð- ur hræddara við að mistakast en barn sem vinnur út frá sinni innri áhugahvöt og fær frelsi til að sökkva sér í tilraunastarfsemi og sköpun í verkefnum sem það tekur sér fyrir hendur.“ Mistök eru frelsandi Pálmar Ragnarsson körfubolta- þjálfari segir mistök hvata að því að leggja sig fram og ná meiri árangri. „Það er ekki hægt að æfa íþróttir án þess að gera mistök. Það er heldur ekki hægt að þjálfa án þess að gera mistök. Ég segi ungu fólki oft sögur um eigin markmið. Segi þeim frá settum markmiðum og hversu mikla vinnu ég lagði í að ná þeim. Spyr þau svo hvort þau haldi að ég hafi náð þeim. Þau svara iðulega játandi. En það er rangt, ég næ oft ekki markmiðum mínum. Maður þarf nefnilega að klikka ansi oft áður en settu markmiði er náð. Það að klikka og gera mistök er mikilvægt, það er lærdómsferli. Mistökin leiða mann áfram.“ Hann segir mistök frelsandi og stuðla að bættri líðan. „Ég held að það sé hollt og gott að gera mistök reglulega. Að venjast tilfinn- ingunni og þekkja hana. Þá fellur fólk ekki saman þegar það gerir mistök við mikil- væg tækifæri. Sumir fara í baklás þegar þeir gera mistök og láta óttann stjórna sér eftir það. Mér finnst mikilvægt að leiðrétta það. Fólk hefur þá hug- mynd að þegar maður gerir mistök þá dæmi aðrir mann. Það er rangt. Þegar við gerum mistök þá sam- sama aðrir sig manni. Það hugsar: Hann er ekki fullkominn, alveg eins og ég. Fólk heldur miklu meira með manni en maður heldur. Meirihluti fólks vill sjá manni ganga vel og dæmir ekki þegar eitthvað mislukkast eða fer illa.“ Rappaði við engar undirtektir Á dögunum hélt Pálmar fyrirlestur fyrir unglinga í Hagaskóla. Hann lofaði krökkunum að ef tími gæfist til í lok fyrirlestrar myndi hann rappa fyrir þá. Það gerði hann svo við litlar sem engar undirtektir. „Ég geri í því að setja mig í vandræða- legar aðstæður. Í þeim tilgangi að líða óþægilega en sjá svo í kjölfarið að það gerist ekkert hræðilegt. Ég geri þetta stundum markvisst þegar ég fer í búðir. Það er svo frelsandi að sjá að fólki er bara alveg sama. Svo kemur alltaf að því að það gerist eitthvað óþægilegt í aðstæðum sem þú ræður ekki við en þá býr maður að því að vera óhræddur og kominn með þá færni að taka sig ekki of alvarlega. Ég myndi segja að í dag væri mjög fátt sem gæti gert mig vandræðalegan.“ Við að gera mistök og koma illa fyrir þá komumst Við að þVí að fólk er skilningsrík- ara en maður heldur, Við gefum færi á okkur þVí oft bregst fólk Við með þVí að koma manni til bjargar. Sóley Dröfn Davíðsdóttir barn sem er heltekið af þVí hVort það muni uppskera hrós eða samþykki frá um- hVerfinu þorir minna að taka áhættur eða prufa sig áfram og Verður hræddara Við að mistakast. Kristín Maríella Friðjónsdóttir Við eigum að gera tilraunir, bera hjarta okkar, láta Vaða, semja fleiri ljóð, kyssa fleiri kossa, brenna fleiri gúrmet- rétti og senda fleiri Vand- ræðalega tölVupósta á alla í fyrirtækinu. Hallgerður Hallgrímsdóttir ég geri í þVí að setja mig í Vandræðalegar aðstæður. í þeim tilgangi að líða óþægi- lega en sjá sVo í kjölfarið að það gerist ekkert hræðilegt. ég geri þetta stundum mark- Visst þegar ég fer í búðir. Pálmar Ragnarsson 2 4 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R28 H e L G i n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 2 4 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :1 9 F B 0 8 8 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 2 C -9 6 0 0 1 D 2 C -9 4 C 4 1 D 2 C -9 3 8 8 1 D 2 C -9 2 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 8 8 s _ 2 3 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.