Fréttablaðið - 24.06.2017, Page 30
Kitta og Óli gengu fyrst saman inn kirkjugólfið á fermingardaginn á sumardaginn fyrsta 1981 eins og sjá má á þessari ein-
stöku mynd sem náðist af þeim í Bústaðakirkju. Séra Geir Waage giftir þau í Reykholtskirkju í dag. MYND/ÚR EINKASAFNI
Mér fannst ég loksins komin heim,“ segir Krist-jana Laufey Jóhannsdótt-
ir um þann örlagaríka dag þegar
hún hitti æskuástina aftur eftir
aldarfjórðung. Kitta, eins og hún
er kölluð, hafði þá þegið heimboð
Péturs Ólafs Péturssonar, eða Óla,
í sumarhús hans í Skorradal. Þá
var niðamyrkur í október 2011.
„Óli var á vörubíl í Skorra-
dalnum og til að vísa mér veginn í
kvöldsortanum hafði hann kveikt
á „hálfvitunum“ þannig að tvö
blikkandi ljós voru minn áttaviti.
Við féllumst í faðma í dyragætt-
inni og þótt mér hafi ekki þótt
það borðleggjandi í fyrstu kvikn-
aði fljótt í gömlum glæðum,“ segir
Kitta og brosir að minningunni.
Ástarsaga Kittu og Óla nær
aftur til unglingsáranna þegar þau
voru kærustupar um tíma. Síðar
héldu þau hvort í sína áttina og
eignuðust maka og fjölskyldur.
Þegar leiðir lágu saman á ný hafði
Kitta búið flest sín fullorðinsár á
Skagaströnd og í Danmörku, fjarri
dagleiðum Óla.
„Það var mjög sérstakt að sjá
Kittu aftur,“ segir Óli um þeirra
fyrstu endurfundi í Skorradal.
„Mér fannst hún ekkert hafa
breyst og hjarta mitt tók kipp.
Mér leið eins og ég hefði aldrei
kvatt hana. Kitta hefur alltaf átt
stað í mínu hjarta og mér hefur
þótt gríðarlega vænt um hana.“
Óli og annar bræðra Kittu eru
gamlir vinnufélagar og hafði Óli
reglulega fengið fréttir af Kittu í
gegnum tíðina.
„Svo var það veturinn 2011 að
hann segir mér að Kitta sé flutt
til Íslands og spyr hvort ég biðji
ekki að heilsa henni. Jú, jú, sagði
ég og hugsaði ekkert meira um
það. Svo líður tíminn og stefnt er
að endurfundum okkar árgangs úr
Hólabrekkuskóla. Þá fer einn vina
minna að djöflast í mér og segir
Kittu mæta til endurfundanna en
ég gaf því lítinn gaum,“ segir Óli
sem var alls ekki á þeim buxum
að finna sér konu því hann hafði
misst eiginkonu sína um sumarið.
„Síðan fæ ég pata af því að gaml-
ir skólafélagar hefðu líka spjallað
við Kittu og ýmislegt baukað á
bak við tjöldin. Ég afréð því að
hringja í hana og þegar hún spurði
mig frétta, svaraði ég og gat ekki
annað: „Ég er enn þá þessi asni
sem þú kysstir þá.“ Kitta skellti
upp úr og það endaði með því að
ég bauð henni til mín í bústaðinn.
Þar náðum við strax saman og þar
var bara gengið frá þessu,“ segir
Óli og hlær við, en saman mættu
þau Kitta sem par til endurfunda
við gömlu skólasystkinin, rétt eins
og í gamla daga.
Guðs gjöf að hittast á ný
„Óli hafði búið um mig í gestaher-
berginu þegar ég kom í Skorradal-
inn. Við áttum ekki endilega von
á að ástin byggi enn í brjóstum
okkar,“ segir Kitta um samfundina
en þau Óli hafa verið saman allar
götur síðan. „Ég fann strax að mig
langaði að hitta hann aftur þótt ég
hefði kannski ekki trú á að sam-
band okkar gengi upp.“
Kitta vísar til þess að bæði hafi
þurft að sýna aðgát vegna barna
og unglinga í lífi þeirra beggja.
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.
is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 |
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
„Eftir kvartöld vorum við
orðnar allt aðrar og lífsreyndari
manneskjur og þess vegna gekk
þetta í upphafi ekki jafn vel og
í Rauðu ástarsögunum. Óli var
ekkill með sín ungmenni og ég frá-
skilin með mín en þetta gekk vel
og gengur alltaf betur og betur.“
Undir það tekur Óli. „Það er
lyginni líkast hvernig allt hefur
gengið upp. Mín börn voru í sorg
vegna móðurmissisins og eðli-
lega ekki tilbúin að fá aðra konu
í líf sitt. Við Kitta fórum því ekki
að búa nærri strax. Ég hefði hins
vegar aldrei kynnt þau fyrir ann-
arri konu en Kittu því ég þekki
hjartalag hennar og fagra per-
sónu. Þegar hún kom svo inn í líf
barnanna var það það besta sem
gat komið fyrir þau og ekki síst
fyrir dóttur mína sem leitar nú til
Kittu með allt sem maður leitar
til mömmu sinnar með. Þá dýrka
barnabörnin mín litlu ömmu
Kittu sem sannarlega hefur reynst
þeim hin besta amma.“
Eftir löng og erfið veikindi
eiginkonu sinnar segir Óli það
hafa verið létti þegar hvíldin kom.
„Þess vegna var ég kannski
tilbúinn fyrr en aðrir. Margir eru
lengi að vinna sig út úr sorg og
söknuði en ég ákvað að dvelja ekki
við sársaukann og fór til dæmis að
vinna úti í Skorradal eftir útförina.
Lífið heldur víst áfram og það veit
Guð að við urðum fyrir miklu láni
þegar Kitta kom inn í líf okkar á
þessum tíma.“
Gaman í lífsins melódí
Óli bað Kittu á Þorláksmessu fyrir
jólin 2013. „Það var nú ekkert
flókið,“ segir Kitta. „Hann birtist
bara heima í vinnugallanum; lopa-
peysunni og með óveðurshattinn,
bar upp hringinn og bað mín. Ég
var vitaskuld fullviss í hjarta mínu
og játaðist honum strax.“
Þau Kitta og Óli verða bæði
fimmtug á árinu, hann átti afmæli
í apríl og hún verður fimmtug á
morgun, 25. júní. Því slógu þau
saman brúðkaupi og 100 ára
afmæli í Lundarreykjadal í dag.
„Það kom ekki annað til greina
en að halda sveitabrúðkaup. Óli
er sveitalubbi í húð og hár og ég
dreifbýlistútta líka. Það að brúð-
kaupið beri upp á Jónsmessu hefur
enga sérstaka þýðingu en hver veit
nema brúðkaupsgestir striplist og
velti sér upp úr Jónsmessudögg-
inni,“ segir Kitta hlæjandi.
Hún segir auðvelt að þekkja til-
finninguna sem fylgir þeirri vissu
að lífsförunauturinn sé kominn.
„Maður bara finnur það, þessa
tilfinningu öryggis og vissu. Ég
vona að okkur endist líf og heilsa
til að njóta lífsins saman. Óli hefur
alltaf unnið mikið en vonandi
getur hann farið að slaka aðeins
á og við verið meira í sveitinni.
Skorra- og Lundarreykjadalir eru
okkar staðir, þar kviknaði ástin að
nýju og þar líður okkur best.“
Þau Kitta og Óli trúa og treysta á
Guð; föður, son og heilagan anda.
„Ég vil ekkert að lifa í synd.
Maður er búinn að syndga nóg!“
segir Óli og hlær hamingju-
hlátri. Hann bætir við að heilagt
hjónband leggi einnig grunn að
lagalegum rétti beggja ef annað
fellur frá.
„Það er glaðværðin og góð-
mennska Kittu sem gerir hana
að draumadísinni. Hún er kát
og skemmtileg en líka íhugul og
sannur og traustur vinur. Maður
treystir ekki hverjum sem er
fyrir sínum innstu tilfinningum
en því sem Kittu er treyst fyrir
meðal vina og vandamanna fer
aldrei lengra. Þá er hún gullfalleg
ásýndum er ekki síður fögur að
innan. Eftir því sem árin færast
yfir hugsar maður meira inn á við
og þá stendur innri fegurð mann-
eskjunnar upp úr.“
Kitta veit líka upp á hár hvers
vegna hún vill gefast Óla.
„Óli býr yfir mannkostum sem
ég sækist eftir. Hann er traustur
og gæðin í gegn, kletturinn í mínu
lífi og hefur reynst mér og mínum
einstaklega vel. Ég hef kynnst
honum upp á nýtt en samt er
hann alltaf sá sami. Óli hefur alltaf
verið góður gæi, hjartalag hans
og tryggð heilla mig, og hann er
ákaflega skemmtilegur og róman-
tískur. Hann ber mig alla daga á
höndum sér og er alltaf að bæta í
þar. Þá hefur mér alltaf þótt hann
rosalega sætur, með geislandi
falleg augu.“
Þau bíða þess í ofvæni að vera
gefin saman í Reykholtskirkju,
frammi fyrir Guði og mönnum.
„Að vakna á 50. afmælisdegi
Kittu á morgun, og vera orðinn
eiginmaður hennar, verður dýrðin
ein,“ segir Óli. „Árni Johnsen vinur
minn skrifar alltaf í jólakortin:
„Höfum gaman í lífsins melódí.“
Það finnst mér góður punktur.
Eftir alla lífsreynsluna er maður
þakklátur fyrir hvern dag og að
allir séu heilir og hraustir. Ég er
líka sérstaklega þakklátur fyrir að
verða fimmtugur. Margir kvíða því
en það er gleðin ein. Við komum
öll nakin og allslaus í heiminn, og
erum öll jöfn. Því skipta veraldleg
gæði engu; lífið með ástvinum er
það eina sem skiptir máli.“
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@365.is
Framhald af forsíðu ➛
Ég vil ekkert lifa í
synd. Maður er
búinn að syndga nóg!
Óli
Maður bara finnur
að þetta er lífsföru-
nauturinn; þessa tilfinn-
ingu öryggis og vissu.
Kitta
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
25% afsláttur af öllum vörum
frá ZHENZI og ZE-ZE
Vikuna 19. - 24. júní
Netverslun á tiskuhus.is
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
Stærðir 38-52
25% afsláttur af öllum vörum
frá ZHENZI og ZE-ZE
Vikuna 19. - 24. júní
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . j ú n Í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
2
4
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:1
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
2
C
-8
2
4
0
1
D
2
C
-8
1
0
4
1
D
2
C
-7
F
C
8
1
D
2
C
-7
E
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
8
s
_
2
3
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K