Fréttablaðið - 24.06.2017, Page 64
Sjö ára fangelsi?
BBC segir að ástæðuna fyrir
aðgerðum saksóknara nú megi
rekja til svokallaðrar Beckham-
löggjafar sem komið var á árið
2003 þegar David Beckham gekk
til liðs við Real Madrid. Var er-
lendum leikmönnum á Spáni þá
gert að greiða helmingi minni
skatt en innfæddum. Þau lög
voru hins vegar afnumin árið
2010 og í kjölfarið hafa rann-
sakendur komist á snoðir um
aflandsfélög sem leikmenn og
umboðsmenn þeirra nota til
þess að komast hjá því að greiða
skatt.
Fæstar knattspyrnustjörnur
sem hafa verið ákærðar og jafn-
vel sakfelldar munu þó þurfa
að sitja inni fyrir brot sín. Á
Spáni gildir hin óskráða regla að
fangelsisdómar undir tveimur
árum séu skilorðsbundnir. Hins
vegar er aðra sögu að segja um
Ronaldo. Þrír ákæruliðir af fjórum
í máli hans bera tveggja ára lág-
marksrefsingu. Verði hann því
dæmdur sekur fyrir fleiri en einn
ákærulið gæti hann þurft að sitja
inni í allt að sjö ár.
Nú virðist sem skjólstæðingar
umboðsmanns Ronaldo, Jorge
Mendes, séu sérstök skotmörk
spænskra saksóknara. Hafa
meðal annars Pepe, Jose Mour-
inho, Fabio Coentrao og Falcao
einnig verið sakaðir um skattsvik.
Falcao hefur sjálfur sagt Mendes
aðalsprautuna á bak við skatt-
svikin.
Í desember greindu blaða-
menn Der Spiegel, El Mundo,
Sunday Times og NRC frá því að
þeir hefðu undir höndum skjöl
sem sýndu fram á að Mendes
hefði stungið milljörðum undan
skatti fyrir skjólstæðinga sína. Því
hefur Mendes þó neitað.
Síðasta ár hefur verið við-burðaríkt hjá Cristiano Ronaldo. Hann hefur unnið Meistaradeildina tvisvar, Evrópukeppnina í Frakklandi, verið kos-
inn bestur í heimi, unnið spænsku
deildina og fleira og fleira. Trúlega
þyrfti auka blaðsíðu bara til að telja
upp afrek hans undanfarið ár. Hann
eignaðist meira að segja skyndilega
tvíbura með aðstoð staðgöngu-
móður, er hæst launaði íþrótta-
maðurinn á plánetunni jörð og lífið
leikur svo sannarlega við hann. En
þá komu fréttir um að hann hefði
skotið 13 milljónum punda undan
skattinum á Spáni og það er ólög-
legt. Þá þurfa menn nefnilega að
svara til saka eins og Lionel Messi
þurfti að gera.
Ronaldo var ekki sáttur og eins
skyndilega og tvíburarnir hans
fæddust þá fóru að birtast fréttir
um að Ronaldo vildi fara frá Real
Madrid. Fyrst var það aðeins í
gulu pressunni en síðan fóru stóru
miðlarnir að birta fréttir um að
hann væri virkilega óánægður og
vildi komast burt. Þegar svo sjálfur
Íþróttastjóri BBC, Dan Roan, fór að
skrifa frétt um að Ronaldo vildi fara
var ljóst að orðrómurinn væri eitt-
hvað meira en bara gott slúður úr
heitu pottunum í Laugardalnum.
Ronaldo hefur unnið Meistara-
deildina í þrígang og La Liga,
spænsku deildina, tvisvar með Real
Madrid síðan hann kom til félags-
ins árið 2009 fyrir um 80 milljónir
punda. BBC sagði í frétt sinni að
ráðgjafar Ronaldo muni ráðleggja
honum að halda sér í Evrópu og
eru þá tvö félög helst
Sögusagnir eða
granítharður
sannleikur
Benedikt Bóas
Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is
Fáir ef einhverjir íþ
róttamenn rífa sig
oftar úr að
ofan en Ronaldo.
NoRdicphotos/
Getty
cristiano Ronaldo
með syni sínum c
ristiano Ron
aldo yngri á frums
ýningu myndarinn
ar Ronaldo.
oft hefur verið sk
rifað um kynhneig
ð Ronaldos en eitt
er víst að hann
er vinsæll meðal b
eggja kynja.
Cristiano Ronaldo, besti knattspyrnu-
maður heims um þessar mundir, mun
mæta fyrir rétt á Spáni þann 31. júlí
í tengslum við grunað skattaundan-
skot sitt. Sagt er að Ronaldo vilji fara
frá Real Madrid en flestir eru á því að
hann sé aðeins að nota félagið til þess
að setja pressu á spænsk yfirvöld.
nefnd til sögunnar; Paris
St-Germain eða að snúa
aftur í ensku úrvalsdeildina
og klæðast hinni rauðu treyju
Manchester United á ný.
Florentino Pérez, sem á
dögunum var endurkjörinn
forseti Real Madrid til ársins
2021, sagði í vikunni að hann
væri ekki einu sinni að íhuga að
selja Ronaldo. „Ég þekki Cristi-
ano. Hann er frábær strákur og
fullkominn atvinnumaður. Allt
þetta mál er mjög skrítið,“ sagði
Pérez í viðtali við útvarpsstöðina
Onda Cero. „Ég hef ekki talað við
Ronaldo síðan eftir úrslitaleik
Meistaradeildarinnar. Allt sem ég
hef heyrt er í gegnum fréttirnar.
Hvorki ég né nokkur annar
tengdur Real Madrid erum einu
sinni að íhuga það að Ronaldo gæti
yfirgefið félagið. Við erum alveg
slakir yfir þessu öllu. Ég hef ekki
talað við neitt annað félag og okkur
hefur ekki borist tilboð í hann.“
sagði forsetinn sposkur.
Samkvæmt Pete Jensson, blaða-
manni sem búsettur er í Madríd
og skrifar fyrir BBC, mun spænska
stórveldið þó ekki standa í vegi
fyrir Ronaldo. Munu þeir horfa til
framtíðar og kaupa Kylian Mbappe
frá Mónakó í staðinn.
„Ronaldo hefur áður beðið um
að fara. Árið 2012 fannst honum
stjórnarmenn félagsins ekki sýna
sér nægilegan stuðning,“ skrifaði
Jensson og benti á að ekkert lið sé
að fara punga út þeim 874 millj-
ónum punda sem duga til að rifta
samningi hans við Real Madrid.
Þá á hann eftir að fá öll launin sín
sem nema um 600 þúsund pundum
á viku. Það gera um 78 milljónir í
hverri einustu viku, en þess má geta
að í maí birtist frétt um að Hring-
urinn hefði
styrkt barnaspít-
alann um 78 millj-
ónir frá áramótum.
Íslandsvinurinn og
fyrrverandi forseti Real
Madrid, Ramon Calde-
ron, maðurinn sem keypti
Ronaldo til félagsins, benti
á í vikunni að sé leikmaður
búinn að ákveða að fara þá sé
erfitt að breyta þeirri ákvörð-
un hans. „Þetta er svipuð staða
og kom upp þegar hann vildi
fara frá Manchester United.
Hann frestaði því um eitt ár
því Sir Alex Ferguson var eins
og faðir í hans augum. Hann
elskaði félagið, stuðnings-
mennina, borgina og ég úti-
loka ekki að hann snúi aftur.
Auðvitað vona ég að hann
vilji vera áfram hjá Real en ef
hann er búinn að ákveða sig
þá verður erfitt að breyta
því.“
Hvort sem þetta er
orðrómur eða granít-
harður sannleikur er
ljóst að ákveði Ronaldo
að skipta um lið yrðu það
ein stærstu félagsskipti
allra tíma í íþróttaheim-
inum. En á meðan hann
spriklar með Portúgal í
Álfukeppninni og hefur
ekki sagt stakt orð um
vistaskiptin er þetta
enn bara orðrómur,
hvort sem BBC skrifar
um hann eða ekki.
Og á meðan svo er,
er hann leikmaður
Real Madrid.
löggjöf fRá 2003 sem
kennd eR við david
BeCkham og geRði eR-
lendum leikmönnum
kleift að gReiða
helmingi minni skatt
en innfæddiR vaR af-
numin áRið 2010.
2 4 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R32 H e L G i n ∙ F R É T T A B L A ð i ð
2
4
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:1
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
2
C
-A
E
B
0
1
D
2
C
-A
D
7
4
1
D
2
C
-A
C
3
8
1
D
2
C
-A
A
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
8
8
s
_
2
3
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K