Fréttablaðið - 24.06.2017, Síða 70

Fréttablaðið - 24.06.2017, Síða 70
Lestrarhestur vikunnar - Katla Kristín Kristinsdóttir Daníel Kjartan Smart er með smá lit á puttunum þegar ég hitti hann. „Ég er svo oft að teikna,“ útskýrir hann og sýnir mér karl sem prýðir vinstra handarbakið. Hann hefur engar áhyggjur af því þó hann hverfi. „Ég hef hann bara þangað til hann fer,“ segir hann. Sennilega er stutt í að teikningin hverfi því Daníel Kjartan er á förum til Spánar og þar fara flest- ir á ströndina á þessum árstíma. „Það verður örugglega heitt en það verður vatnsgarður nálægt staðnum sem við verðum á,“ segir hann og kveðst hlakka til. Hefurðu farið áður til Spánar? „Já, ég hef farið einu sinni áður, ég var á síðasta ári í leikskóla þá. Núna er ég tíu ára.“ Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? „Að leika úti með vinum mínum og vera með fjölskyld- unni.“ Hvaðan kemur eftirnafnið þitt Smart? „Það er skoskt og kemur frá afa mínum. Ég á tvær mömm- ur, báðar íslenskar en önnur á skoskan pabba.“ Heldur þú upp á einhvern sérstakan tónlistamann? „Já, Eminem, hann er rappari.“ Kanntu einhverja texta með honum? „Ég kann Lose your- self og smá í Not afraid. Vinur minn er líka hrifinn af Eminem og við ætlum að verða rapparar þegar við verðum stórir. Við erum búnir að ákveða nöfn. Hann heitir Emminemmi og ég Demmi nemm og við röppum saman.“ Eruð þið byrjaðir að æfa? „Nei, við ætluðum að æfa okkur eftir eitt afmæli en svo breyttist planið og hann fór til Danmerk- ur en hann kemur aftur.“ Ertu eitthvað í íþróttum? „Já, ég æfði körfubolta, breikdans og klifur í vetur. Ég parkoura líka og er örugglega að fara að æfa það í haust.“ Hvað er parkour? „Það er svona stökkíþrótt, þeir sem eru komnir langt stökkva milli bygginga.“ Ætlar að verða rappari Hann Daníel Kjartan Smart er tíu ára og hefur gaman af því að teikna. Svo æfir hann körfubolta, breikdans, klifur og parkour. “Ég parkora líka og ætla örugglega að fara að æfa það í haust,” segir Daní el Kjartan Smart. FrÉttablaðið/Eyþór ÁrnaSon Hvað ertu gömul Katla Kristín? Ég er níu ára. Hvað er skemmtilegast við bækur? Mér finnst skemmtilegt að lesa þær og það sem getur gerst í sögum. Hvað bók lastu síðast og um hvað var hún? Grimmi tann- læknirinn. Hún var um strák sem var í skóla svo er nýr tannlæknir sem var vondur. Manstu eftir fyrstu bókinni sem var í uppáhaldi hjá þér? Vonda frænkan, sem er eftir sama höf- und og Grimmi tannlæknirinn. Hvernig bækur þykja þér skemmtilegastar? Fyndnar bækur. Í hvaða skóla gengur þú? Rima- skóla. Ferðu oft á bókasafnið? Eins oft og ég kemst. Hver eru þín helstu áhugamál. Ég æfi fimleika og svo er ég líka stundum að lesa heima hjá mér. Katla Kristín var glöð að fá nýja bók í verðlaun. Að venju efna Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Forlagið til sumarlesturs meðal barna. Fyrir hverja lesna bók skrá lesendur nafn sitt og titil bókarinnar á þar til gerða miða, búa til úr þeim skutlur og skutla þeim í net sem eru í öllum söfnum Borgarbókasafns. Vikulega er einn þátttakenda útnefndur lestrarhestur vikunnar og sá eða sú hlýtur bók að launum frá Forlaginu. Bragi Halldórsson 255 Þar sem Konráð og Lísaloppa voru á gangi í kjarrlendi sáu þau eitthvert lítið dýr skjótast um í kjarrinu. „Hvað var þetta?“ spurði Konráð. Þá sáu þau dýrið hoppa grein af grein og sáu að þetta var pínulítill fugl með skemmtilega uppsperrt stél. „Þetta er örugglega einn minnsti fugl sem ég hef séð,“ sagði Lísaloppa. „Já, hann er mjög lítill,“ sagði Konráð og bætti við: „Hvað skyldi hann heita?“ Veist þú hvað þessi fugl heitir? Er þetta: A. Rauðbrystingur B. Maríuerla D. Músarrindill SVAR: D Við erum búnir að áKVeða nöfn. Hann Heitir emminemmi og ég Demminemm og Við röppum Saman. Upp fyrir öllum! Þetta er hópleikur með frekar lítinn bolta og leiksvæðið getur verið tún, malar- völlur eða annað autt svæði. Stjórnandi leiksins kastar upp boltanum og kallar: Upp fyrir öllum! Allir þátttakend- ur reyna að grípa boltann og sá sem nær honum nefnir nafn einhvers í hópnum, kallar til dæmis: Upp fyrir Írisi! Þá á Íris að reyna að grípa boltann, kasta honum upp og nefna nafn einhvers annars í hópnum. En ef Írisi tekst ekki að grípa boltann hlaupa allir í burtu þangað til hún nær boltanum og kallar „stopp“. Þá stoppa allir á punktinum og Íris reynir að hitta einhvern. Ef henni tekst það er sá sem hún hitti úr leik en annars er það hún sjálf. Þannig gengur leikurinn þar til einn stendur eftir sem sigurvegari. Leikurinn ALLTAF VIÐ HÖNDINA ... allt sem þú þarft Þú getur lesið Fréttablaðið í heild sinni á Vísi og í Fréttablaðs-appinu 2 4 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R38 H e L G i n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 2 4 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :1 9 F B 0 8 8 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 2 C -8 2 4 0 1 D 2 C -8 1 0 4 1 D 2 C -7 F C 8 1 D 2 C -7 E 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 8 8 s _ 2 3 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.