Víkurfréttir - 15.01.2004, Síða 2
Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi BárðaRon
stflltar
f r é t t i r
TVÖ SLYS Á SAMA STflÐ
Rétt fyrir kvöldmat á laugar-
dag var tilkynnt um bílveltu
á Reykjanesbraut á Strandar-
heiði. Okumaður, sem var
einn í biffeiðinni slapp
ómeiddur en bifreiðin fjar-
lægð með dráttarbifreið. A
sama tíma varð affanákeyrsla
á vettvangi en engin slys á
fólki.
STUBBAHÚS SPRENCT í LOFT UPP
Um miðjan dag á laugardag
var óskað eftir lögreglu að
gistiheimilinu við Hring-
braut 92. Höfðu þrír drengir
sett púðurkerlingar í „sígar-
ettustubbarör" og sprengt
það. Drengimir náðust og
viðurkenndu verknaðinn.
Voru foreldrar þeirra og
bamavemdamefnd látin vita.
víkurfréttir
ÁNETINUVORU
FYRSTARWEÐ
ÞESSAFRETT'.
annes Kr. Krisfcár
Vikurfréttar
>UIV1 100 BÖRN SEND HEIA/l í KJÖLFAR INNBROTS
Eins og sést á þessari mynd er blóð um allt afgreiðsluborðið á bókasafninu þar sem það hefur verið
lagt í rúst, en tölvu hefur verið stolið þaðan. Hörður Óskarsson, lögreglumaður, á vettvangi.
Blóðugt innbrot í Holtaskóla
Börn í 4. og 5.bekk Holtaskóla voru send
heim vegna innbrots sem framið var í
skólanum aðfararnótt sl mánudags. Inn-
brotsþjófarnir brutu rúður og skildu eftir sig
blóðslóð þar sem þeir höfðu athafnað sig. Lög-
reglan í Keflavík vann að rannsókn málsins á
vettvangi á mánudag.
Jóhann Geirdal aðstoðarskólastjóri Holtaskóla sagði
í samtali við Víkurfréttir að svo virðist sem tölvu úr
bókasafiii og sjónvarpi og hátölurum úr sal hafi ver-
ið stolið í innbrotinu. Að sögn Jóhanns vom nem-
endur í 4. og 5. bekk sendir heim. „Það var brotist
inn á bókasafnið og afgreiðsluborðið þar lagt í rúst.
Stofur 4. og 5. bekkjar eru á þeim gangi og lögregl-
an þarf tíma til að rannsaka verksummerki þannig
að tekin var ákvörðun um að senda bömin heim,“
sagði Jóhann.
Að sögn Jóhanns verður lögð áhersla á að þrífa
blóðslóðina. „Við höfum sótthreinsað hurðahúna í
skólanum, jafnvel þótt innbrotsþjófamir hafi ekki
farið um allan skólann."
Togarinn Breki VE
flyst til Keflavíkur
Togarinn Breki úrVest-
mannaeyjum verður
brátt gerður út frá
Ketlavík, en eigendur skips-
ins hafa flust búferlum til
Keflavíkur. Breki er nú í sigl-
ingu til Þýskalands þar sem
hann mun selja afurðir sínar
á næstu dögum. Breki er
væntanlegur til Keflavíkur
innan tveggja vikna og verð-
ur þá einkennisstöfum hans
breytt úr VE í KE. Breki hét
áður Guðmundur Jónsson
GK og var gerður út frá
Sandgerði, en báturinn kom
nýr til Sandgerðis árið 1976.
Skipstjóri Breka er Magni
Jóhannsson. Skipið er 599
rúmlestir að stærð og tæpir
60 metrar að lengd.
Snjórínn kemur ogfer...
Það var erfitt fyrir Sólnýju Sif Jónsdóttur að draga vinkonu sína Karlottu Björg
Hjaltadóttur á snjóþotu í hádeginu einn snjódaginn nýverið, en vinkonurnar
voru ánægðar með að snjór væri kominn, þó þær yrðu að sætta sig við að
hann færi jafnharðan aftur. „Við viljum bara að það snjói meira og að það
verði snjór í allan vetur," sögðu þær á leið á fótboltavöllinn. Vinkonurnar vildu
að það kæmi fram að þær skiptast á að draga hvor aðra á þotunni.
Sjáið fasteignaauglýsingar á blaðsíðum 29-31 í Víkurfréttum í dag
Fasteignasalan Stuðlaberg
sími 420 4000
Sólvallagata 12, Keflavík
113m3 4ra herb. íbúð á neðri hæð í
tvíb. ásamt um 29m2 bílsk. Sér-
inng., ný eldh.innr., öll gólfefhi ný,
nýl. þakjám og endum. skolp.
Nýmálað að utan. Falleg eign.
11.900.000,-
Eignamiðlun Suðurnesja
Sími 421 1700
Reykjanesvegur 8, Njarðvík.
Sérlega hugguleg 4ra herbergja
íbúð á e.h. í tvíbýlishúsi.
Ný gólfefni, nýir ofiiar og
ofnalagnir, og m. fl. Laus strax.
9.900.000,-
Fasteignasalan Ásberg,
sími 421 1420
Birkiteigur 9, Keflavík.
120m2einbýlishús á 2 hæðum með
4 svefnh. og 50m2 bílskúr. Heitur
pottur. Eign í góðu ástandi.
13.900.000,-
Fasteignasala G.Ó.
sími 421 8111
Vatnsholt 16, Keflavík
Glæsilegt parhús 102m2ásamtbíl-
skúr ca. 47m2. Góðar innréttingar,
parket og flísar á gólfum. Eign við
rólega botnlangagötu, góður sól-
pallur á baklóð. 15.900.000,-
Fasteignamarkaður Suðurnesja - inn á öll heimili á Suðurnesjum!
stuttar
f r é 11 i r
SPRENGDU KÍNVERIA-
SPRENGJURÁ CLUCGA
Tilkynnt til lögreglunnar í
Keflavík í síðustu viku að þrir
15 ára piltar væm að líma
kinverjasprengjur á rúðu í
Holtaskóla í Keflavík og
sprengja, með þeirri afleið-
ingu að rúðan brotnaði. Lög-
reglan náði til piltanna og við-
urkenndu þeir verknaðinn.
Haft var samband við foreldra
piltanna sem komu á lög-
reglustöðina og sótti þá.
SOFANDIMAÐUR ÓK Á STAUR
Fyrir síðustu helgi var til-
kynnt að bifreið hafi verið
ekið á ljósastaur á Reykjanes-
braut við Vogaveg. Bifreiðin
var fjarlægð af vettvangi með
dráttarbifreið. Engin slys á
fólki. Smávægilegar
skemmdir á ljósastaumum.
Ökumaðurinn hafði sofhað
við aksturinn.
FÓTBROTNAÐI í HÁLKUNNI
í síðustu viku var tilkynnt um
mann sem hafði dottið í hálku
á Faxabraut og fótbrotnað.
Var hann fluttur með sjúkra-
bifreið á HS og síðan á
Landsspítala-Háskólasjúkra-
hús.
REFUR FYRIR BÍL
Laust eftir kl. 01:00 aðfarar-
nótt sl. fimmtudags varð refur
fyrir bifreið á Garðvegi og
varð það hans bani. Lögreglu-
menn hafa séð töluvert af ref
á effirlitsferðum sínum í vetur
og ijóst að mikið er um hann
á Suðumesjum.
ÖFLUG PÚÐURKERLING í VOGUM
Laust fyrir kl. 22:00 sl.
fimmtudagskvöld var lög-
regla kvödd að íbúðarhúsi í
Vogum á Vatnsleysuströnd en
þar hafði póstkassi heimilis-
ins verið sprengdur í loft upp.
Hafði öflugri púðurkerlingu
úr flugeld verið hent inn póst-
kassann og hann sprengdur.
Leifar úr kassanum, sem ann-
ars var úr málrni, vom á víð
og dreif við húsið. Ekki er
ljóst hver eða hveijir þama
vom að verki en lögreglan
hallast að því að þar hafí ung-
menni verið á ferð en um s.l.
áramót bar nokkuð á því að
böm og ungiingar væm að
rífa í sundur stóra flugelda og
skottertur til að ná úr þeim
öflugum púðurkerlingum.
Reyndar em þetta oft á tíðum
það öflugar púðurkerlingar að
réttara er að tala um sprengjur
frekar en púðurkerlingar.
BLÁU DBS REIÐHJÓLISTOUÐ
Á sunnudagskvöld var til-
kynnt um þjófhað á bláu karl-
mannsreiðhjóli afgerðinni
DBS utan við Grunnskólann í
Grindavík. Þjófhaðurinn átti
sér stað milli kl. 17:00 til
18:00 á sunnudag.
2
VfKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!