Víkurfréttir - 15.01.2004, Síða 4
Víkurfréttamvnd: Hilmar Braei Bárðarson
VNÝR GRUNNSKÓLI í INNRI NJARÐVÍK
Jólakortafé ígóð málefni!
Það færist í vöxt að fyrirtæki gefi ákveðnar upphæðirtil góðra málefna í stað
þess að prenta jólakort. Fiskmarkaður Suðurnesja færði tollgæslunni á
Keflavíkurflugvelli 130.000 kr. til tækjakaupa í stað þess að senda út jólakort.
Myndin er tekin við það tækifæri. Þá færði Bláa lónið Stígamótum myndar-
lega upphæð í stað þess að senda út jólakort fýrir síðustu jól.
- —
.. mmmm BW , .!.' rJT’ =B “S
Byggður á teikningum Heiðarskóla
Fimmtudagur 15. jan
Kl. 8 Last Samurai
Kl. 8 Kaldaljós
Kl.10 Honey
Föstudagur 16. jan
Kl. 8 og 11 Last Samurai
(frumsýning)
Kl. 8 Kaldaljós
Kl.óoglO Honey
Kl. 6 Looneytunes
Laugardagur 17. jan
Kl. 5,8 og 11 Last Samurai
(frumsýning)
Kl. 6 og 8 Kaldaljós
Kl. 4og 10 Honey
Kl. 2 Looneytunes
Kl. 2 Finding Nemo
Sunnudagur 18. jan
Kl. 5,8 og 10 Last Samurai
(frumsýning)
Kl. 6og8 Kaldaljós
Kl. 4 Honey
Kl. 2 Looneytunes
Kl. 2 Finding Nemo
Mánudagur - fimmtudags
Kl. 8 og 10 Last Samurai
Kl. 8 Kaldaljós
KEFLAVÍK '& 421 11/0
Thorkelliusskóli verður
næsti grunnskóli í
Reykjanesbæ, sá fímmti í
röðinni. Hafíst verður handa
við byggingu skólans í febrúar
n.k. og fyrsta áfanga lokið í
júlímánuði 2005. Skólinn mun
rísa á holtinu ofan við leikskól-
ann Holt í innri-Njarðvík. Gert
er ráð fyrir að skólahald hefjist
haustið 2005 og að fyrsti áfangi
rúmi um 250 börn.
Samhliða uppbyggingu hefst
bygging íbúahverfis ofan við
tjarnirnar í Innri-Njarðvik og í
áttina að Reykjanesbraut. Tjama-
hvefið verður án efa eitt falleg-
asta íbúahverfi á landinu.
Bæjarráð hefur falið bæjarstjóra
að ganga frá samningum um
leigu á nýja skólahúsnæðinu við
Fasteign hf. sem er m.a. í eigu
Reykjanesbæjar. Þessi fyrsti
áfangi verður boðinn út á næstu
dögum.
Byggt er á grunnteikningum
Heiðarskóla, með nokkrum
breytingum sem reynslan af þeim
góða skóla mælir með. Umsamið
verð vegna fyrsta áfanga er alls
um 615 milljónir kr. sem er um
12% lægri kostnaður en sam-
bærilegir áfangar Heiðarskóla
kostuðu. Verði tilboð verktaka
hinsvegar hagstæðaii mun bær-
inn njóta þess í lægri kostnaði.
Frá þessu eru greint á vef
Reykjanesbæjar.
Nýtt kortatímabil!
PERSÓNA
Hafnargötu 29
wBBSL rHBSBfy
a m rS wfBKR \ w [ 1JK
jP** ~ " :■ |
Endurbætur Hafnar-
götu milli Tjarnargötu
og Skólavegar byrjaðar
Framkvæmdin við endur-
gerð Hafnargötu hefur
gengið vel. Um helgina
var hafist handa við að vinna
Hafnargötu milli Tjarnargötu
og Skólavegs.Af þessum sökum
verður Hafnargatan lokuð
fyrir umferð á þessu svæði
meðan á framkvæmdum
stendur.
Framkvæmdum verður hagað
þannig að íbúar verði fyrir sem
minnstum óþægindum, göngu-
brýr verða yfir opna lagnaskurði
og verkið þannig skipulagt að
truflun fyrir verslunareigendur
og rekstraraðila verði sem
minnst.
I auglýsingu Reykjanesbæjar
vegna ffamkvæmdarinnar segir:
Þrátt fyrir þetta er ljóst að mikil
óþægindi fýlgja ÍTamkvæmdum
sem þessum og er það ósk okkar
að íbúar sýni þolinmæði og taki
starfsmönnum verktaka vel og
hliðri til eftir því sem hægt er. Ef
allir sem að framkvæmdinni
koma leggjast á eitt um að verkið
gangi vel fram erum við sann-
færð um að við munum í verklok
fagna góðu verki.
Unglingar að sniffa í Keflavík
Alaugardagskvöld var lögreglunni í Keflavík tilkynnt um
ungmenni við Heiðarskóla í Keflavík sem væru hugsan-
lega að sniffa af gasi. Lögreglumenn fóru þegar á stað-
inn og tóku í sína vörslu tvo gaskúta. Lögreglan hefur vit-
neskju um hverjir þarna voru að verki og voru foreldrar látnir
vita.
4
VlKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson