Víkurfréttir - 15.01.2004, Blaðsíða 8
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Grundarvegi 23,
260 Njarðvík,
Sími 4210000 Fax 4210020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 4210007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
HilmarBragi Bárðarson,
sími 4210002, hilmar@vf.is
Blaðamaður:
Jóhannes Kr. Kristjánsson,
sími 4210004, johannes@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri:
Jónas Franz Sigurjónsson,
sími 4210001, jonas@vf.is
Auglýsingadeild:
Jófríður Leifsdóttir,
sími 4210008, jofridur@vf.is
Útlit, umbrot og
prentvistun:
Víkurfréttirehf.
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og vikurfrettir.is
ÞARFTU AÐ
AUGLÝSA?
Auglýsingasímmn
4210000
MUNDI
Nú er bara að segja
börnunum að moka meiri sandi
í stígvélin ogtaka með heim,
svo eitthvað fáist upp í
hækkunina á leikskólaplássinu...
> NAUÐLENDING VÉLAR UNITED AIRLINES Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI
VÍRURFRÉTTIR
ÁNETINUVORU
fyrstivr weð
ÞESSfl FRETT'-
Vel gekk að skipta um hreyfil
í flugvél United Airlines,
sem nauðlenti í Keflavík
snemma í síðustu viku og fór vélin
frá Keflavíkurflugvelli á sunnu-
dagskvöld.
Vélin nauðlenti hér á þriðjudags-
kvöldið í síðustu viku og reyndist
nauðsynlegt að skipta um einn
hreyfil hemiar. Hreyfillinn sem var
14 tonn að þyngd kom til landsins á
fostudagskvöld og nokkrir flugvirkj-
ar með til þess að skipta um hann.
Farþegar sem komu með vélinni
fóru héðan daginn eftir nauðlend-
inguna með annarri vél ffá félaginu
sem sótti þá.
Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson
> FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR
Farþegum um Leifsstöð fjölgar um 12% á milli ára
Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar fjölgaði um 25% í desember-
mánuði miðað við sama tíma í fyrra,
úr tæplega 62 þúsund farþegum árið 2002 í
rúmlega 77 þúsund farþega nú. Mest veg-
ur fjölgun farþega til og frá íslandi sem er
tæplega 27% milli ára, en farþegum sem
millilenda hér á landi á leið yfir Norður-
Atlantshafið fjölgaði engu að síður um
19% á sama tíma. Þetta er annar mánuð-
urinn í röð sem skiptifarþegum fjölgar eft-
ir fækkun mánuöina á undan.
Farþegum á leið um Flugstöðina ijölgaði jafht
og þétt á árunum 1989 - 2001, en sú þróun
breyttist í einum vetfangi með hryðjuverkun-
um 11. september. Eftir fækkun farþega
2001 og 2002 hefur þróunin nú snúist við og
fór fjölgun farþega á árinu 2003 fram úr
björtustu vonum. Alls fjölgaði farþegum um
Flugstöð Leifs Eiríkssonar um rúmlega 12%
á milli ára, eða úr tæplega 1.220 þúsund far-
þegum árið 2002 í tæplega 1.370 þúsund far-
þega nú. Farþegum fjölgaði því um tæp 150
þúsund á síðasta ári samanborið við árið
2002. Fjölgun farþega til og ffá landinu var
rúmlega 18%, en fækkun skiptifarþega var
tæplega 12%.
Vísbendingar eru um enn frekari Jjölgun far-
þega á nýju ári einkum vegna aukins áætlun-
arflugs bæði hjá Icelandair og Iceland Ex-
press. Því er reiknað með að í lok árs 2004
verði farþegafjöldi kominn í sama horf og
þegar hann var sem mestur árið 2000, eða í
um 1.460 þúsund farþega.
Kallinn á kassanum
Sniffogleikskólagjöld
ÞAÐ VORU UNGLINGAR teknir við að sniffa
við Heiðarskóla um síðustu helgi. Lögreglan tók af
þeim gasbrúsa! Það eru um
15 ár síðan fjallað var um
ungling sem hafði sniffað
einu sinni og lent í hjólastól
eftir það. Þessi maður getur
í dag ekki tjáð sig - situr í
hjólastólnum og slefan lek-
ur niður úr munninum á
honum. Eftir að hafa sniffað
einu sinni!
FORELDRAR KRAKKA verða að gefa sér tíma
til að ræða þessi mál við bömin sín. Bendið þeim á
hættuna sem felst í að sniffa. Það er hlutverk for-
eldra að gera það.
ÞAÐ ERALLT vitlaust í Reykjanesbæ vegna
hækkana á leikskólagjöldum. Reiðir foreldrar
skipuleggja aðgerðir og krefjast svara frá bæjaryfir-
völdum. Þó Kallinn eigi sjálfúr ekki böm þá skilur
hann reiði foreldra, enda hefúr Reykjanesbær verið
að monta sig af því að vera fjölskylduvænn bær.
Það er þó helst!
KÆRU BÆJARFULLTRÚAR! Vaknið til lífs-
ins! Unga fólkið í þessum bæ - fólkið sem hefúr
flest bömin á leikskólanum er að fara út í lífið og í
stað þess að hækka gjöldin á þann hóp ætti að að-
stoða þau.
EN ÆTLIÞAÐ þýði ekki lítið að vera með mót-
mæli vegna þessara hækkana. Það er sjaldnast
hlustað á hinn almenna borgara - nema þá helst fyrir
kosningar og þær em ekki fýrr en eftir tæp tvö og
hálft ár.
EKKINEMA foreldrar taki upp franskar aðferðir
og mótmæli þessum hækkunum og öðrum hækkun-
um með sjáanlegum hætti. Þá skiptir máli að for-
eldrar standi saman og að aðgerðum verði beitt sem
tekið verður eftir. Bæjarfúlltrúar vilja að sjálfsögðu
ekki að fjölmiðlar landsins frétti af mótmælaað-
gerðum ungra foreldra þar sem móúnælt er hækkun
á leikskólagjöldum. Slík umræða myndi fæla bama-
fólk Ifá því að setjast að í Reykjanesbæ.
KALLINN óskar eftir hugmyndum um mótmæla-
aðgerðir vegna hækkana á leikskólagjöldum. Þeir
sem hafa hugmyndir sendi póst á netfang kallsins:
kallinn@vf.is
Baráttukveðjur, Kallinn@vf.is
FRÉTTAVAKT VÍKURFRÉTTA
í SÍMA 898 2222
Hólmfríður
Snorradóttir
látin
Hólmfríður Snorradóttir úr
Njarðvík Iést 6. janúar sl.
eftir langvarandi veikindi.
Hún gaf út bókina Alfamir í
Grænadal sumarið 2001. Við
hjá Víkurfréttum unnum við
uppsetningu bókarinnar og
aðstoðuðum Lillý, eins og
hún var kölluð, í útgáfu
hennar á bamabókinni.
Þetta var henni kappsmál að
koma út bókinni en hún veikt-
ist 1999. Hólmfríður skrifaði
allan texta og málaði
skemmtilegar myndir sem
prýða bókina sem oft hefur
verið lesið úr í skólum og
leikskólum á Suðumesjum.
Með þessum fáu orðum til
minningar um nágranna okkar
á Vikurfféttum hér í Njarðvík
sendum við fjölskyldu hennar
samúðarkveðjur.
Páll Ketilsson.
8
VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!