Víkurfréttir - 15.01.2004, Page 12
> HUGLEIÐINGAR SIGRÍÐAR SNÆBJÖRNSDÓTTUR FRAMKVÆMDASTJÓRI HSS UM ÁRAMÓT
Góður árangur af samstarfi sjúkrahúss og heilsugæslu
að hefur löngum verið
hefð um áramót að líta
til baka yfir árið sem er
aö iíöa og
freista þess að
spá fyrir um
hvað bíður á
nýju ári.
Stundum er
sagt að bestu
þingmennirn-
ir séu duglegir
að segja til um hvað muni ger-
ast á ári komanda og síðan enn
betri í að útskýra hvers vegna
spárnar rættust ekki. Arið
2003 var ár mikilia tíöinda á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Það markaðist í upphafí af
brottför heilsugæslulækna og
má segja að mikil orka hafí
farið í að halda uppi nauðsyn-
legustu þjónustu. Oryggi var
þó ætíð til staðar og aldrei var
tekin óþarfa áhætta með
mannslíf. Alag var mikið á allt
starfsfóik og kom vel í Ijós
hversu mikilvægt það er stofn-
uninni. Óhætt er að fullyrða
aö starfsfólkið hefur sigrast á
erfiðleikunum og sýnt styrk
sinn og samstööu. Vinnuferlar
hjúkrunarfræðinga og lækna
voru endurskoðaðir og reynt
var eftir fóngum að einfalda
vinnulag. Nýjar hugmyndir
voru metnar og mörgum þeir-
ra hrint í framkvæmd. Sam-
starf heilsugæslu og sjúkrahúss
var aukið til muna á árinu og
má fullyrða að góður árangur
séafþvísamstarfi. Þaðhefur
sannast á HSS eins og svo víða
að starfsfólkiö er mesti auður
stofuunarinnar.
Framtíðarhlutverk HSS
Fljótlega upp úr áramótum var
farið að vinna markvisst innan-
húss að því að leggja íram áætl-
anir um hvaða hlutverki HSS
skyldi gegna til framtíðar. I april
skipaði heilbrigðisráðherra síðan
nefiid sem var falið að koma með
tillögur um þróun, skipulag og
framtíðarhlutverk HSS fyrir árin
2004-2010. Nefndin lagði á sig
mikla vinnu og leitaði víða
fanga. Tillögunum var skilað til
ráðherraþann 18. nóvember
2003 á afmælisdegi HSS. í þeim
er að finna metnaðarfúllar hug-
myndir þar sem lögð er áhersla á
aukna þjónustu við Suðumesja-
búa í heimabyggð, lúkningu D-
álmu og frágang lóðar og um-
hverfis og að viðhald bygginga
verði eflt vemlega. Mikil vinna
verður fólgin í að fýlgjaþessum
tillögum og hugmyndum eftir og
hrinda þeim í framkvæmd.
Heildarkostnaður við tillögumar
eru tæpar 500 m.kr., en fúllyrða
má að þeim fjármunum verður
vel varið í þágu skjólstæðinga á
Suðumesjum. Það er mikilvægt
að góð sátt náist um hlutverk
stofnunarinnar ef hún á að geta
starfað eðlilega skv. lögum um
heilbrigðisþjónustu.
Þróun ráðninga starfsfólks
Framan af árinu fór mikil orka í
að ræða um skort á læknum við
HSS. Hins vegar er það stað-
reynd að við HSS vinnur hópur
hæfra sérfræðinga í mörgum sér-
greinum læknisffæðinnar, en
ennþá vantar fleiri heimilislækna
til starfa. Það er líka staðreynd
að við stofnunina vinnur stór
hópur hæfra hjúkrunarfræðinga
sem veitir mikla og góða þjón-
ustu bæði sjúkum og heilbrigð-
um. Samstarfþessarastéttaog
allra klínískra stétta á stofhuninni
er til fyrirmyndar og eflaust stór
ástæða fyrir því hversu vel hefúr
gengið að takast á við þau verk-
efni sem fyrir hafa legið á árinu.
Fjöldi lækna og annarra sérfræð-
inga hefúr verið ráðinn til starfa á
árinu sem er að líða og enn fleiri
eru væntanlegir á næsta ári, þar á
meðal mun nýr yfirlæknir taka
við störfúm á heilsugæslunni í
janúar. Með fjölgun sérsviða
hefur verið unnt að bjóða fólki í
auknum mæli að koma í sér-
ffæðimóttökur á staðnum og þan-
nig hafa verið sparaðar margar
bílferðir til höfúðborgarinnar.
Þjónusta við sjúklinga á sjúkrahúsinu
Talsverðar breytingar til betri
vegar hafa átt sér stað í þjónustu
við inniliggjandi sjúklinga á ár-
inu. Sjúkragangar voru málaðir í
A, B og F álmu, skipt var um
gólfdúka og nauðsynlegu við-
haldi sinnt. Ný sjúkradeild var
opnuð í D-álmu í april. Þar er
aðstaða öll til fyrirmyndar og
hafa sjúklingar notið þar góðrar
þjónustu við bættar aðstæður.
Full nýting hefúr verið á nýju
deildinni og gott betur frá og með
haustinu. Um leið og aðstaða
batnaði fyrir legudeildarsjúk-
linga, var opnuð dagdeild fyrir
sjúklinga sem koma í smærri að-
gerðir og í minni háttar meðferð
s.s blóðgjafir og lyfjameðferðir
af ýmsu tagi og geta farið heim
að kvöldi. Þar var líka settur
upp ljósaskápur fyrir psoriasis
sjúklinga sem gefinn var af sam-
tökum psoriasis sjúklinga á Suð-
umesjum. Fæðingadeildin var
Ljósmynd: Oddgeir Karlsson
rekin með svipuðu sniði og und-
anfarin ár. Umræður urðu há-
værari á árinu um bakvaktir sér-
fræðinga í kvensjúkdómum og
fæðingahjálp alla daga ársins
ásamt vöktum lækna og hjúkr-
unarfræðinga á skurðstofúm til
að tryggja hámarksöryggi sjúk-
linga HSS. Einnig eru vaxandi
áhyggjur af úreltum aðstæðum á
skurðstofúnum. Þessarvanga-
veltur eiga fúllan rétt á sér og er
unnið að úrbótum.
Þjónusta við skjólstæðinga
áheilsugæslunni
A heilsugæslunni hefúr mikið
mætt eins og áður er nefnt. Tek-
ist hefúr að endurskipuleggja
þjónustuna og fara yftr verka-
skiptingu starfsfólks þannig að
vinnuframlag, menntun og
reynsla nýtist sem best. Hjúkr-
unarfræðingum hefúr fjölgað,
ráðnir hafa verið sérftæðingar á
ýmsum sviðum eins og t.d. nær-
ingarráðgjafi og geðhjúkrunar-
ffæðingur. Læknum hefúr fjölg-
að jafnt og þétt og hefúr verið
sett upp nýtt vinnuskipulag til að
þörfúm sjúklinga sé betur mætt.
Þá hafa verið ráðnir inn í mót-
töku unglæknar og læknanemar á
síðasta ári í læknanámi undir eft-
irliti sérfræðinga og prófessorsins
i heimilislækningum við lækna-
deild HÍ. Þetta fyrirkomulag hef-
ur gefist vel og verður áfram við
lýði.
Heilsugæsla og-
öldrunarþjónusta í Grindavík
I Grindavík var unnið ötullega
við hin ýmsu verkefhi. Nýr
heilsugæslulæknir réði sig við
heilsugæsluna í upphafi ársins.
Þar hefúr starfsfólki tekist að
sinna miklu og góðu starfi. Með
haustinu var bætt við komum
lækna þangað. I Víðihlíð er rek-
in góð öldrunardeild sem alltaf er
fullnýtt, þar hefúr verið reynt að
sinna nauðsynlegasta viðhaldi
eftir því sem fjámtunir hafa feng-
ist.
Vogar, Sandgerði og Garður
í heilsugæsluseljunum, Vogum,
Sandgerði og Garði, hefúr þjón-
usta stundum verið stopul. Það
fyrirkomulag var tekið upp i
sumar að læknir var til staðar í
móttöku seljanna ákveðna daga
vikunnar. Það var síðan niður-
staða þeirra að sá timi væri ekki
nægilega vel nýttur. Frá hausti
hafa hjúkrunarfræðingar verið
með móttöku tiltekna tíma í viku.
Þjónusta í seljunum heldur áfram
að vera til endurskoðunar.
Mannabreytingar
Mannabreytingar hafa verið
nokkrar á árinu sem er að líða.
Undirrituð hafði starfað í einn
mánuð þegar nýtt ár gekk í garð.
I mars var ráðinn var nýr fjár-
málastjóri, síðan nýr yfirlæknir,
nýr forstöðumaður tölvudeildar
og nýr hjúkrunarforstjóri svo
nokkrir stjómendur séu nefndir.
Fjöldi annarra nýrra starfsmanna
tók við störfum. Allt þetta fólk er
boðið velkomið til starfa. A
sama hátt hættu aðrir sem gegn-
du m.a. ofangreindum störfúm.
Þeim eru þökkuð mikilvæg störf
í þágu Heilbrigðisstofhunar Suð-
umesja.
Gjafir
HSS vom færðar ýmsar góðar
gjafir á árinu, m.a. peningagjöf
frá Samtökum hjartasjúklinga á
Suðumesjum og Landssamtök-
um hjartasjúklinga til kaupa á
tækjum fyrir hjartasjúklinga.
Verið er að ganga ffá þeim kaup-
um. Kvenfélag Keflavíkur gaf 5
bamarúm til nota á sjúkrahúsinu
og Kvenfélag Njarðvíkur gaf 6
sjónvörp til afhota fyrir sjúklinga
á sjúkradeild. Krabbameinsfélag
Suðumesja gaf mælitæki til að
fylgjast með blóðrauða hjá sjúk-
lingum í heimahúsum. Allar
þessar gjafir em ómetanlegar fyr-
ir HSS og eru gefendum færðar
bestu þakkir fyrir.
Að lokum vil ég þakka öllu
starfsfólki á HSS samstarfið á ár-
inu sem er að líða og óska vel-
famaðar á nýju ári. Sjúklingum
okkar, skjólstæðingum og að-
standendum vil ég sömuleiðis
óska gleðilegs og farsæls nýs árs.
Ég el þá von í bijósti að árið
2004 verði okkur heilladrjúgt og
okkur takist að halda áffam að
bæta og efla þjónustu við Suður-
nesjabúa.
Sigríður Snæbjörnsdóttir
2i
Viðtalstími
Árni Sigfússon, bæjarstjóri
og Guðjón Hjörleifsson, alþingismaður
verða með viðtalstíma í Sjálfstæðishúsinu
í Njarðvík milli kl. 13 og 14 næstkomandi
laugardag, 17. janúar.
Heitt á könnunni og allir velkomnir
Sjálfstæðisfélögin
12
VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I wvuw.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!