Víkurfréttir - 15.01.2004, Qupperneq 13
Víku rfrétta mynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson
> SJÁVARÚTVECUR
50 tonna loðnunót
um borð í Grindvíking
Aþriðjudag var loðnunótín tekin um borð í
flaggskip Þorbjarnar Fiskaness, Grind-
víking GK-606 en nótin er með þeim
stærstu í íslenska flotanum. Nótín vegur um 50
tonn og þurftí að flytja hana á stórum vörubíl
með kerru, en samtals vógu vörubíllinn og nótín
um 75 tonn. Sérstakt leyfi frá Vegagerðinni
þurfti til að flytja nótina frá netaverkstæðinu
Krosshúsum að skipshlið.
Grindvíkingur GK hefur verið á síld írá því skipið
kom sl. haust og segir Rúnar Björgvinsson skip-
stjóri að það hafi gengið ágætlega. „Við tókum
íyrsta túrinn út af austfjörðum og færðum okkur
síðan undir vesturlandið. Það hefur gengið þokka-
lega írá því við byijuðum á síldinni,“ segir Rúnar og
hann er ánægður með nýja skipið. „Já ég kann vel
við skipið." Grindvíkingur mun nú fara á loðnu
austur fyrir land. „Við förum austur með suður-
ströndinni og síðan norður fyrir land þar sem loðn-
an heldur sig um þessar mundir. I byijun febrúar
skiptum við um nót þegar loðnan er gengin upp á
landgrunnið," segir Rúnar en hann býst við að nota
flottrollið til að byrja með. „Við frystum allt um
borð og það er hentugra að nota flottrollið," segir
Rúnar og hann er hóflega bjartsýnn á komandi
loðnuvertíð. „Það er spuming hve mikill kvóti verð-
ur gefinn út - maður verður bara að bíða og sjá.“
VÍKURFRÉTtlR
ÁNETtNUUORU
fVRSTAR NIEÐ
ttSSAFRÉTT!
fvl
^ I / \;&Jí 1
SUMARSTÖRF 2004
GROUND SERVICES
Flugþjónustan Keflavíkurflugvelli ehf. (IGS) vill ráða fólk til afleysingastarfa. Um er að ræða störf í öllum deildum
fyrirtækisins þ.e. farþegaþjónustu, flugeldhúsi, fraktmiðstöð, hlaðdeild, hleðslueftirliti, ræstingu og veitingadeild.
Um er að ræða hlutastörf og deildaskiptar ráðningar í 100% störf á tímabilinu maí-september en þó gæti verið að
einhverjir yrðu ráðnirfyrr. Mikil áhersla er lögð á þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum, reglusemi, stundvísi
og árvekni. Unnið er á breytilegum vöktum og vaktaskrá birt fyrir 1 mánuð í senn. Umsækjendur þurfa að vera
tilbúnir til þess að sækja undirbúningsnámskeið, og í sumum tilfellum standast próf, áður en til ráðningar kemur.
NANARI UPPLYSINGAR
FARÞEGAÞJÓNUSTA
Lágmarksaldur 20 ár, stúdentspróf
æskilegt, góð tungumálakunnátta,
góð tölvukunnátta og mikil
þjónustulund.
FLUGELDHÚS
Lágmarksaldur 18 ár, almenn öku-
réttindi. Ensku og íslenskukunnátta.
VEITINGADEILD
Lágmarksaldur 20 ár, góð tung-
umálakunnátta og mikil þjónustulund.
UM ALDURSTAKMARK
FRAKTMIÐSTÖÐ
Lágmarksaldur 19 ár,
vinnuvélaréttindi, tölvukunnátta,
almenn ökuréttindi.
Ensku og íslenskukunnátta.
HLAÐDEILD
Lágmarksaldur 19 ár, vinnu-
vélaréttindi, almenn ökuréttindi.
Ensku og íslenskukunnátta.
OG HÆFNISKRÖFUR:
HLEÐSLUEFTIRLIT
Lágmarksaldur 20 ár, stúdentspróf
æskilegt, góð tungumálakunnátta,
góð tölvukunnátta, reynsla af störfum
í hlaðdeild eða farþega-þjónustu
æskileg og nauðsynlegt að
umsækjendur séu töluglöggir.
RÆSTING
Lágmarksaldur 19 ár,
almenn ökuréttindi.
Ensku og íslenskukunnátta.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Flugþjónustunnar Keflavíkurflugvelli ehf. 2. hæð í Frakmiðstöð IGS
á Keflavíkurfiugvelli. Nánari upplýsingar veita Kjartan Már Kjartansson, starfsmannastjóri
og Svala Guðjónsdóttir, verkefnastjóri í Starfsmannaþjónustu í síma 4250230.
VlKURFRÉTTIR I 3. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN15.JANÚAR 2004 I 13