Víkurfréttir - 15.01.2004, Page 22
Víkurfréttamynd: Guðni Kjærbo
> SKÓLARNIR OG UNGA FÓLKIÐ
Emkwinir úr grunnskóla
skipta máli þegar komið
er í framhaldsskóla
Ömmu- og
afadagur í
Njarðvík-
urskóla
Skömmu fyrir jól var
haldinn svokallaður
ömmu- og afadagur í
Njarðvíkurskóla. Þá bauð skól-
inn öllum ömmum og öfum
nemenda í hcimsókn til að
fylgjast með undirbúningi jól-
anna og upplifa stemmning-
una sem stóð þá sem hæst.
Ýmislegt var gert af þessu til-
efni og iásu nemendur m.a.
upp Ijóð, auk þess sem gestirn-
ir þáðu kaffi og piparkökur.
Síðan sungu ömmurnar og af-
arnir nokkur jólalög með nem-
endum á sal skólans við undir-
leik Guðmundar Sigurðssonar
(Bróa). En að því loknu var svo
farið í heimsóknir í stofur þar
sem skoðað var hvað barna-
börnin sem og önnur börn
voru að bjástra við. Þessar
myndir voru teknar á ömmu
og afadeginum.
MYNDILÁTA ÞÚSUNDKALLINN
í PENINGASKÁPINN
Nafn: Sveinn Enok Jóhannsson.
Aldur: 15.
Uppáhaldstala: 8.
Stjörnumerki: Eg er fiskur.
Er mikið að gera sem formað-
ur ncmendafélagsins?
Það getur verið mikið að gera ef
það eru einhveijar uppákomur á
sal eða eitthvað þvíumlíkt. Ann-
ars er þetta allt voðalega létt.
Hvað hefur verið að gerast í fé-
lagsiífinu í Njarðvikurskóla?
Jólaballið er nýbúið en annars er
þetta allt að fara á stað núna.
Hvað er á döfínni?
Hljómsveitir úr skólanum eru að
fara að spila en dagurinn er ekki
alveg ákveðinn.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Píanó og söngur og að hreyfa sig
nógu litið.
Um hvað cr ungt fólk að hugsa
í dag?
Þau hugsa ekki.
Uppáhaldshljómsveit?
A-ha.
Hverjar eru uppáhalds vefsíð-
urnar þínar?
www.simnet.is/sveinnjo
Hvaða geisladisk keyptirðu síð-
ast?
Ég keypti mér Sítt að aftan.
Hvað ætlarðu að verða?
Ég ætla að verða læknir.
Hvað myndirðu kaupa ef þú
ættir að eyöa þúsundkalli?
Ég myndi iáta hann í peninga-
skápinn minn við hliðina á öllum
hinum.
Ef að þú gætir verið ósýnilegur
í 20 mínútur - hvar myndirðu
vilja vera?
Þar sem ég má ekki vera.
Eitt orð sem kemur upp í hug-
ann þegar þú heyrir eftirfar-
andi:
-Spríte: Græn flaska.
-Idol: Leiðinlegur þáttur.
-Mannlif: Hafhargatan.
-Kaffitár: Gulur strompur.
-vf.is: Besta blaðið.
Hvernig heldurðu að Njarðvík-
urskóli verði árið 2250?
Það verður skortur á plássi og
þeir geta ekki lengt hann meira
því að þeir verða búnir með
Þórustíginn.
- Sveinn Enok Jóhannsson formaður nemendafélags Njarðvíkurskóla
svarar VF-17 spurningum og spjallar um einkunnir.
Ivor útskrifast nemendur úr
10. bckk grunnskóla á
landinu og við tekur val
þeirra um áframhaldandi nám
í framhaldsskólum. Nemendur
skólanna leggja misjafnlega á
sig í náminu og segir Sveinn
Enok Jóhannsson formaður
nemendafélags Njarðvíkur-
skóla að það skipti máli að ná
góðum einkunnum. „Eg tel að
það skipti máli, sérstaklega ef
viökomandi vill komast í góðan
skóla,“ sagði Sveinn og bætti
við að félagar hans í Njarðvík-
urskóla hugsuðu á svipaðan
hátt. „Það eru margir sem
hugsa um að ná góðum próf-
um, en auövitað er það mis-
jafnt eins og með allt annað.“
Sveinn segir að hann finni vel
fyrir hvatningu frá starfsfólki
Njarðvíkurskóla. „Skólinn er
mjög góður og starfsfólkið hvet-
ur nemenduma mjög vel áfram,
sérstaklega að ná góðum prófum.
Ég held að flestir nemendur átti
sig á mikilvægi þess að standa
sig vel í skólanum og hafi það
yfirleitt i huga,“ sagði Sveinn
sem svarar hér á eftir nokkrum
vel völdum spumingum fyrir
VF-17 í Víkurfréttum.
ATVINNA
Verkstjóra eða vana menn vantar í saltfiskverkun
fram að páskum. Áhugasamir skili inn
umsóknum á skrifstofu Víkurfréttir,
Grundarvegi 23, Njarðvík,
merkt „Saltfiskur 2004".
ÞARFTU AÐ
AUGLÝSA?
Auglýsingasíminn
4210000
22
VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!