Víkurfréttir - 15.01.2004, Side 23
Víkurfréttamynd: Jóhannes Kr. Krístjánsson
> FFGÍR - FORELDRAFÉLÖG OG FORELDRARÁÐ GRUNNSKÓLANNA í REYKJANESBÆ
Foreldrasamstarf í grunnskólum
októberlok var haldiö nám-
skeið fyrir bckkjarfulltrúa í
grunnskólum Reykjanes-
bæjar. Fulltrúi frá landssam-
tökunum „Heimili og skóli”
flutti þar fræðsluerindi og
hvatti foreldra til að efla for-
eldrasamstarf. í umræðum í
lok námskeiðsins kom fram að
margir bekkjarfulltrúar hafa
gert ýmislegt til að fá foreldra
til að starfa saman. í sumum
bekkjardeildum eru foreldrar
virkir og hafa gott samstarf, en
í öðrum bekkjum gengur þetta
ekki eins vel og er það alltaf
sami kjarninn sem er virkur og
samanstendur af fáum foreldr-
um. Á námskeiðinu reyndu
bekkjarfulltrúar að miða
reynslu sinni og veltu fyrir sér
spurningunni um það, hvernig
hægt væri að virkja foreldra
meira. Þar kom m.a. fram að
gera þyrfti foreldrum grein fyr-
ir mikilvægi þeirra í skólastarf-
inu og að það geti haft úrslitaá-
hrif á líðan barnanna og nám-
sárangur að foreldrar séu virk-
ir og hafi jákvæð viðhorf til
skólans og samstarfs foreldra.
Á hinum Norðurlöndunum virð-
ist hafa komist á sú hefð að það
sé nánast skyida að foreldrar
mæti á foreldrafundi og taki þátt í
starfi foreldra i bekk bama sinna.
Þeir foreldrar sem búið hafa er-
lendis hafa margsinnis bent á
þennan þátt og vilja leggja sig
fram um að skapa sama anda hér
í foreldrastarfinu.
Námsráðgjafar vísa veginn
Að takast á við lífið og styrkja
sjálfsmynd sína er eitt af því sem
börn læra samhliða hinu hefð-
bundna námi í grunnskóla. Mik-
ið reynir á þennan námsþátt t.d.
á unglingsárunum. Lífsleiknitím-
ar eru einn vettvangur þar sem
þetta nám fer fram og er það yfir-
leitt umsjónarkennari sem sér um
lífsleiknikennslu í sínum umsjón-
arbekk. Námsráðgjafar koma
einnig að einhverju leiti að
kennslu í lifsleikni t.d. á ung-
lingastigi. Þeir hvetja nemendur
til að kynna sér áhugasvið sitt,
skoða eiginleika sína og mögu-
leika til náms. Þannig læra nem-
endur um lífið og tilveruna út frá
öðru en námsbókum. Þeir læra
t.d. að setja sér markmið og legg-
ja drög að framtíðarnámi.
Foreldrar fagna sérstaklega til-
komu námsráðgjafa í grunnskól-
um í Reykjanesbæ og binda
miklar vonir við störf þeirra. Nú
eru námsráðgjafar í 50% stöðu-
hlutfalli og spuming hvort ekki
þurfi að auka það. Undanfarið
hafa foreldrar barna í 10. bekk
Holtaskóla farið í einkaviðtöl
ásamt sínurn unglingi til náms-
ráðgjafans þar sem lagðar eru
línumar að framtíðarskólagöngu
nemenda. Nemendur þurfa nú að
velja sérstaklega þau fög sem
þeir ætla að taka samræmt próf í
og um leið huga þeir að því sern
þeir vilja leggja stund á að loknu
grunnskólanámi. Að velja sér
framtíðarviðfangsefni getur
reynst mörgum unglingum erfitt
en námsráðgjafar hafa þá þekk-
ingu sem til þarf til að vísa unga
fólkinu veginn.
Umsjónarkennarinn
og bekkjarandinn
Að nemanda líði vel í skólaum-
hverfinu er grundvallaratriði í
námi hans. Er þá átt við líðan
nemandans og aðstæður hans í
skólanum hvort sem er inni í
kennslustund, í frímmútum, bún-
ingsklefum í íþróttum, i mötu-
neytinu, á skólalóðinni eða ann-
ars staðar þar sem hann dvelur á
skólatíma. Það beinir sjónum
okkar að mikilvægu atriði í
skólaumhverfinu sem er góður
bekkjarandi, hvetjandi námsum-
hverfi og ekki síst jákvætt við-
mót alls starfsfólks skólans. I
þessu sambandi gegnir umsjón-
arkennari lykilhlutverki sem sá
aðili sem nemand-inn hefúr visan
aðgang að og treystir helst á.
Umsjónarkennara ber að ganga i
mál er varða umsjónamemendur
hans komi eitthvað upp sem bet-
ur má fara. Samstarf umsjónar-
kennara og foreldra er einnig
áríðandi ekki síður en trúnaður
umsjónarkennara við umsjónar-
nemanda sinn. í þessu sambandi
þarf umsjónarkennari ofl og tið-
um að hafa frumkvæði og styðja
foreldra í uppeldishlutverkinu.
Sá stuðningur getur m.a. birst í
ábendingum, uppeldislegum
leiðbeiningum eða hvatningu.
Umsjónarkennarar gefa umsögn
um nemendur sína í foreldravið-
tölum sem fram fara að jafnaði
tvisvar á ári og er óskiljanlegt að
allir foreldrar skuli ekki nýta það
tækifæri. Skólastjómendur hafa
markvisst hvatt foreldra til sam-
starfs og foreldrar hafa góðan að-
gang að umsjónarkennara bæði
með viðtalstímum og einnig er í
boði að hafa samband með tölvu-
pósti. Heimsíður skólanna bjóða
upp á hagnýtar upplýsingar um
skóiastarfið og er góð leið fýrir
foreldra að nálgast skólastarfið.
Hrós og hvatning eru stundum
kölluð H-vítamín sem öllum eru
nauðsynleg bæði kennurum,
nemendum og foreldrum. I
hvetjandi skólaumhverfi er sam-
starf heimila og skóla virkt í
gegnum fyrrgreindar leiðir.
Stjómir foreldrafélaga hafa hvatt
foreldra til að temja sér jákvæð
viðhorf til skólans og nálgast
hann af virðingu.
Hlutverk bekkjarfuHtrúa.
Það er áríðandi að foreldrar kjósi
sér bekkjarfalltrúa og hafa nú
verið kosnir bekkjarfúlltrúar fyrir
þetta skólaár í öllum grunnskól-
um bæjarins. Þeir gegna lykil-
hlutverki í samskiptum foreldra
og skólans. Bekkjarfulltrúinn
getur auðveldað umsjónarkenn-
ara samstarf við foreldra og
hjálpar oft til við að byggja upp
góðan bekkjaranda. Stjómir for-
eldrafélaga halda reglulega fandi
með bekkjarfúlltrúum og þar em
rædd stefúumið og hugmyndir í
foreldrastarfinu. Foreldrafélögin
og foreldraráðin í Reykjanesbæ
hafa síðan samstarfsvettvang FF-
GÍR sem heldur fundi síðasta
mánudag í hverjum mánuði
skólaársins.
Fulltrúi FFGÍR situr í ffæðsluráði
og tekur virkan þátt í stefnumót-
un fræðslumála. Sóley
Birgisdóttir formaður FFGÍR sit-
ur í fræðsluráði og vilji fólk
koma á framfæri ábendingum
eða hugtnyndum sínum er hægt
að hafa samband við hana í s.421
3038 eða senda henni erindi á
netfangið k39kef@gi.is
I ársbyijun 2003 gáfú foreldrafé-
lögin út handbækur sem nú hafa
fengið opinbera viðurkenningu
t.d. fékk FFGÍR hvatningarverð-
laun Heimiiis og skóla s.l. vor
vegna þeirra.
Foreldrum er bent á að hægt er
að nálgast handbækurnar hjá
skólariturum eða sjá þær á netinu
á heimasíðum skólanna undir
liðnum um foreldrastarf. I hand-
bókunum koma fram mikilvægar
upplýsingar um störf félaganna
og markmið þeirra. Það ætti að
auðvelda samstarf heimila og
skóla að félögin geri sig sýnileg
með skipulögðum hætti og á
sameiginlegum vettvangi.
Yfirmarkmið allra þessara að-
gerða er að bæta skólastarf í
bænum okkar og líðan nemenda í
skólanum sem mun leiða til
bætts árangurs bæði í námi og
starfi.
FFGÍR/Helga Margrét
Elín Rut Ólafsdóttir námsráðgjafi við Fjölbrautaskóla Suðurnesja í viðtali við Víkurfréttir:
Um þessar mundir er að hefjast síðasta
önn 10. bekkjar og næsta haust hefja
margir nemendur nám í framhaldsskól-
um. Elín Rut Ólafsdóttir námsráðgjafi
við Fjölbrautaskóla Suðumesja segir í
viðtali við Víkurfféttir að foreldrar, kenn-
arar og námsráðgjafar í skólum geti að-
stoðað nemendur við val á samræmdum
prófúm. Mikilvægt sé að upplýsa nem-
endur um það sem tekur við að grunn-
skóla loknum og finna út hvar áhugi ein-
stakra nemenda liggur.
Skipta einkuimir gninnskólanenia sem
eru að Ijúka iiámi máli þegar þeir sœkja
um iiiiigöngu í Fjölbrautaskóla Suður-
nesja eða aðra framhaldsskóla?
Já einkunnir skipta máli við inngöngu í
FS eins og í alla aðra framhaldsskóla.
Hvernig eru nemeiidur metnir inn i FS?
Nemendur eru teknir inn í skólann sam-
kvæmt ákveðnum reglum sem koma frá
Menntamálaráðuneyti og gilda fyrir alla
framhaldsskóla í landinu.
Skipta einkunnir máli ef nemandi hefur
liug á að komast á ákveðna námsbraut i
FS?
Já í þessum reglum sem gilda um inntöku
nýnema í framhaldsskóla kemur m.a.
fram að allú nemendur hafa rétt á skóla-
vist í framhaldsskóla en það em inntöku-
skilyrði inn á allar brautir nema almenna
braut.
Verknáms og starfsnámsbrautir
Samræmt próf í íslensku og stærðfræði
em inntökuskilyrði á verknáms og starfs-
námsbrautir. Þar þurfa nemendur að fá
a.m.k. 5 í meðaltal samræmdrar einkunn-
ar og skólaeinkunnar og lágmark á sam-
ræmdum prófúm í þessum greinum má
ekki fara undir 4,5.
Stúdentsbrautir
Varðandi stúdentsbrautir sem em þijár í
dag þá em mismunandi inntökuskilyrði
inn á þær. íslenska er krafa inn á allar
brautir með meðaltal samræmdrar ein-
kunnar og skólaeinkunnar 6 og lágmark á
samræmdu prófi 5. Stærðffæðin er einnig
skilyrði inn á allar brautir en meðaltal
samræmdrar einkunnar og skólaeinkunn-
ar má ekki vera undir 6 á náttúmffæði-
braut og lágmark ásamræmdu prófi má
ekki vera undir 5. Á félagsffæðibraut og
málabraut er gerð krafa um 5 i meðaltal
samræmdrar einkunnar og skólaeinkunn-
ar á báðum brautum og lágmark á sam-
ræmdu prófi 4,5. Eingöngu er gerð krafa
um samræmt próf í dönsku á málabraut
og er þá miðað við 6 í meðaltal og 5 sem
lágmark á samræmdu prófi. Þar sem dan-
ska er skyldugrein á hinum stúdents-
brautunum og í iðnnámi þá mælum við
með að þeir sem verið hafa í dönsku í
grunnskóla og hafa tök á að taka sam-
ræmda prófið í henni ættu endilega að
gera það. Á náttúruffæðibraut er krafa
um samræmt próf í náttúruffæði með 6 í
meðaltal samræmdrar einkunnar og
skólaeinkunnar og lágmark á samræmdu
prófi 5. Á félagsffæðibraut er krafa um
samræmt próf í samfélagsfræði og þar
eru einnig einkunnimar 6 í meðaltal og 5
sem einkunn á samræmdu prófi.
Almenn braut
Almenna brautin skiptist i tvennt þ.e. al-
menn braut bóknám og almenn braut for-
nám. Inn á almenna braut bóknám fara
nemendur sem hafa fallið í 1-2 greinum á
samræmdum prófúm. Á almenna braut
fomám fara nemendur sem hafa fallið í 3
greinum eða fleiri eða hafa ekki tekið
samræmd próf.
Með hvaða hœttigeta foreldrar og
grunnskóliim aðstoðaó barnið í vali
sínu á námi?
Foreldrar, kennarar og námsráðgjafar í
skólum geta aðstoðað nemendur við val á
samræmdum prófúm. Mikilvægt er upp-
lýsa nemendur um það sem tekur við að
grunnskóla loknum og finna út hvar
áhugi einstakra nemenda liggur. Eins og
við vitum þá erum við öll ólík með mis-
munandi þarfir og áhugasvið. Mikilvægt
er að fólk sé raunsætt við val á samræmd-
um prófúm og skoði hvað sé best fýrir
viðkomandi einstakling þegar til lengri
tima er litið. Með þvi að taka öll prófin
þá eru allar leiðir opnar og effir því sem
prófúnum fækkar þá takmarkast valið.
Afar mikilvægt er að foreldrar fýlgist vel
með skólagöngu bama sinna og temji sér
jákvætt hugarfar gagnvart skólanum og
námi bama sinna. Mikilvægi hvatningar
frá foreldurm minnkar ekki þó nemendur
eldist! í lokin langar mig að benda á
heimasíðuna okkar fss.is en þar er meðal
annars að finna góða og lýsandi töflu um
inntökuskilyrði í framhaldsskóla.
VÍKURFRÉTTIR I 3. TÖLUBLAÐ 2004 ! FIMMTUDAGURINN15.JANÚAR2004 I 23
Víkurfréttamynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson