Víkurfréttir - 15.01.2004, Page 24
Uangbeátir í |aízzum.
fgf \>eirídt eftírííkíngar!
122UI*
Tilboð
Eitn með viðskiptahugmynd?
Þarftu að endurskipuleggja reksturinn?
Þarftu aðstoð við:
...fjármögnun ...útfærslu ...markaðssókn
...þróun ...endurskipulagningu?
Viðtalstímar atvinnuráðgjafa SSS
Sandgerði mánudagar kl. 10-12
Reykjanesbær þriðjudaga kl. 10-12
Garður miðvikudaga kl. 10-12
Grindavíkfimmtudaga kl. 10-12
Vogar föstudagar kl. 10-12
Cuðbjörg Jóhannsdóttir
atvinnuráðgjafi
Tímapantanir hjá skrifstofu SSS
í síma 4213788.
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
Fttjum • 260 Njarðvík • sími 4213788 • Fax 4213766 • www.sss.is • sss@sss.is
S O N Y COMPACL
Flottasta fartölvan
Mobile Inel Pentium M 1.5GHz
Intel Centrino tækni
15,4" TFT breiðskjár
512MB DDR vinnsluminni
40GB harður diskur
DVD drif og CD skrifari
þráðlaust netkort
Bluetooth tækni
5 klst. rafhlaða
XP Pro stýrikerfi
Sími 421 7755
Alltaf glæsilcg tilboð á www.samhaefrii.is
SAMHÆFNI?
Hringbraut 96 • 230 Rei/kjanesbæ
■ Bikarkeppni kvenna
KR-GRINDAVÍK
KR vann baráttusigur á Grinda-
víkurstúlkum í leik liðanna í
DHL-höllinni, 62-57. Leikurinn
var í jámum allan tímann, en KR
náði að veija forskot sitt eftir
harða sókn Grindvíkinga i lokin.
Kesha Tardy skoraði 23 stig fyrir
gestina og tók 12 fráköst og Olöf
Pálsdóttir skoraði 15.
Hildir Sigurðardóttir átti góðan
leik í liði KR og skoraði 22 stig
og tók 12 fráköst. Katie Wolfe
kom næst með 16 stig og 11 frá-
köst.
HAUKAR-NJARÐVÍK
Njarðvíkingar áttu ekkert svar
við leik Hauka þar sem landsliðs-
konurnar Helena Sverrisdóttir og
Pálína Gunnlaugsdóttir fóru
ffemstar í flokki. Haukar höfðu
forystu allan leikinn og lauk
leiknum 75-57. Auður Jónsdóttir
fór fyrir Njarðvíkingum og skor-
aði 13 stig. Þá skoraði Ingibjörg
Vilbergsdóttir 11 stig og tók 10
fráköst.
Helena skoraði 25 stig fyrir
Hauka og Pálína skoraði 18 stig
og tók 11 fráköst.
ÞÓR AKUREYRI-KEFLAVÍK
Keflavík mætti 2. deildar liði
Þórs og vann sannfærandi sigur
49-109, eins og við var búist fyr-
irffam. Þórsarar áttu aldrei
möguleika gegn meistaraliði
Keflavíkur sem höfðu örugga
forystu allt fiá byijun. Stigamun-
ur í hálfleik var 34 stig, 23-57, og
jókst stöðugt til leiksloka.
Bryndís Guðmundsdóttir var
stigahæst Keflvíkinga með 20
stig, en Bima Valgarðsdóttir og
Marin Karlsdóttir komu næstar
með 16 stig.
Fjóla Eiríksdóttir skoraði mest
fyrir heimaliðið, samtals 11 stig.
■ Bikarkeppni karla
GRINDAVfK-FJÖLNIR
Topplið Intersport-deildarinnar
átti ekki í vandræðum með 1.
deildar lið Fjölnis og sigruðu
105-77. Grindavík höfðu forystu
allt frá upphafi og var munurinn
m.a. 27 stig í hálfleik.
Darrel Lewis skoraði 32 stig fyrir
Grindavík og Páll Axel Vilbergs-
son skoraði 26 og tók 11 ffáköst.
Hjalti Vilhjálmsson skoraði 21
stig fyrir Fjölni.
HAUKAR-KEFLAVÍK
Keflavík vann góðan sigur á
Haukum 90-98 í skemmtilegum
leik sem fór fram á Asvöllum.
Keflavík var með forystu í hálf-
leik, en átti slæman kafla í 3.
leikhluta sem varð til þess að
Hukar komust 6 stigum yfir á
tímabili. Þá var sem Keflvíkingar
hrykkju í gang og þeir náðu yfír-
höndinni með fiábærum kafla
þar sem þeir skoruðu 13 stig
gegn 2 stigum Hauka og náðu
forystunni á ný og létu hana ekki
af hendi.
Derrick Allen átti góðan leik og
skoraði 30 stig og tók 12 ffáköst,
og Nick Bradford skoraði 24 og
tók einnig 12 ffáköst. Þá átti
Magnús Þór góða inn komu í
seinni hálfleik og skoraði 15 stig.
NJARÐVÍK-HAMAR
Njarðvik vann öruggan sigur á
Hamri, 97-81, á heimavelli sín-
um í 8-liða úrslitum bikarkeppn-
innar. Leikurinn var jaffi ffaman
af, en undir lok fyrri hálfleiks
náðu Njarðvíkingar að keyra upp
hraðann í leiknum og náðu for-
skoti sem þeir létu aldrei af
hendi.
Brenton Birmingham setti 26
stig fyrir Njarðvíkinga, en
Brandon Woudstra kom næstur
með 18 stig. Þá skoraði Friðrik
Stefánsson 16 stig og tók 14 ffá-
köst.
Chris Dade var allt í öllu hjá
Hamri og skoraði 26 stig, en
Svavar Pálsson og Lárus Jónsson
skoruðu 12 stig hvor.
■ l.deild kvenna í körfu
GRINDAVÍK-NJARÐVÍK
Grindvíkingar virðast aldeilis
ætla að rétta úr kútnum eftir að
hafa fengið Keshu Tardy til liðs
við sig. Þær gjörsigruðu Njarð-
víkinga 99-47 á heimavelli sinum
eftir að hafa haft forystu allan
leikinn, m.a. var staðan 52-28 í
leikhléi.
Grindavíkurstúlkur voru ekkert
að slá af í seinni hálfleik heldur
völtuðu yfir lánlausa gestina,
sem sakna enn prímusmótorsins
bak við velgengnina fyrir áramót,
Andreu Gaines.
Tardy var stigahæst heimastúlkna
með 31 stig, en hún tók einnig 13
ffáköst. Þá átti Petrúnella Skúla-
dóttir mjög góðan leik og skoraði
23 stig á þeim 18 mínútum sem
hún spilaði.
í liði Njarðvikur skoraði Ingi-
björg Vilbergsdóttir 11 stig.
KEFLAVÍK-ÍR
Þessi leikur hefði ekki átt að
valda meisturum Keflavíkur
miklum vandkvæðum, enda eru
IR-angar á botni deildarinnar og
hefur ekkert gengið hjá þeim í
vetur. I byijun mátti þó vart á
milli sjá hvort liðið væri á botn-
inum, vegna þess að IR byijuðu
leikinn með látum og létu engan
bilbug á sér finna þrátt fyrir að
vera á einum sterkasta heimavelli
landsins. Gestimir höfðu yflr-
burði í fyrsta leikhluta, en þá var
eins og heimaliðið mætti loks í
leikinn og þær tóku öll völd á
vellinum. Þær voru komnar með
forystu í hálfleik sem jókst jaíht
og þétt, en lokatölur voru 92-53.
Stigahæstar Keflvíkinga voru
Rannveig Randversdóttir og
Bima Valgarðsdóttir sem skor-
uðu 15 stig hvor, en Anna Maria
Sveinsdóttir skoraði 13. Þá átti
María Ben Erlingsdóttir góða
innkomu og skoraði 12 stig á
þeim stutta tíma sem hún fékk.
Eplunus Brooks fór fyrir ÍR eins
og endra nær og skoraði 29 stig
og tók 20 ffáköst.
■ Körfuknattleikur karla
STJÖRNULEIKURINN
Stjömuleikur KKÍ fór ffam á
laugardaginn þar sem Stakkavík-
urliðið, sem var skipað leik-
mönnum Suðurliðanna bar sigur-
orð af Esso-liðinu, sem hafði á
að skipa leikmönnum liðanna
sem eru norðan Kópavogs. Loka-
tölur voru 136-133 sem segir
meira en mörg orð um áherslum-
ar sem vom í þessum leik. Menn
vom lítið að spá í vamarleikinn
heldur reyndu að gera leikinn
sem skemmtilegastan fyrir þá
800 áhorfendur sem mættu í
Seljaskóla.
Stakkavík skoraði 44 stig í fyrsta
fjórðungi og lét forystuna aldrei
af hendi. Friðrik Stefánsson,
Njarðvík, var valinn besti maður
vallarins að leikslokum þar sem
hann hafbi skorað 18 stig og tek-
ið 19 ffáköst fyrir Suðurliðið.
Annars var Pálmi Sigurgeirsson,
Breiðabliki, stigahæstrur Suðurs-
ins með 32 stig, en Nick Boyd
skoraði 31 fyrir Norðurliðið og
Magni Hafsteinsson, KR, skoraði
30.
Kevin Grandberg vann troðslu-
keppnina með miklum tilþrifum
og Jeb Ivey vann þriggja stiga
keppnina.
Þá sigmðu Njarðvíkingamir
Brandon Woudstra og Auður
Jónsdóttir í nýjum lið, svokall-
aðri paraskotkeppni.
24
VIKURFRÉTTIRÁNETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!