Víkurfréttir - 15.01.2004, Síða 27
Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Borghildur Sigurbergsdóttir næringarráðgjafi, Sigrún Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur
og Cunnar Valtýsson sérfræðingur í innkirtlasjúkdómum.
> HEILBRIGÐISSTOFNUN SUÐURNESJA
Námskeið fyrir sykur-
sjúka á Suðurnesjum
Heilbrigðisstofnun Suð-
urnesja stendur fyrir
námskeiði fyrir sykur-
sjúka og aðstandendur þeirra
dagana 5. til 7. febrúar næst-
komandi í Eldborg í Svarts-
engi. Markmið námskeiðsins
er fyrst og fremst að auka
þekkingu sykursjúkra og að-
standenda þeirra á sjúkdúmn-
um, meðferð hans og fylgikvill-
um, með áherslu á lífsstíls-
breytingar og ábyrgð einstak-
iingsins á eigin meðferð. Inni-
faiið í námskeiðinu er gisting í
tvær nætur á hóteli í Svarts-
engi, fullt fæði og fræðslufund-
ir.
Heilbrigðisstofnun Suðumesja
opnaði móttöku fyrir sykursjúka
1. mars 2001 og í dag nýta 160
manns á Suðumesjum Jjjónust-
una. Á móttökunni starfa læknir,
hjúkrunarfræðingur, næringar-
ráðgjafi og meinatæknar í teymi.
Móttakan er opin einu sinni í
viku. Að sögn Sigrúnar Olafs-
dóttur hjúkrunarfræðings er fólk
að nýta sér þjónustuna a.m.k. á
þriggja mánaða fresti. Alltaf er
tekin blóðprufa og síðan farið í
viðtal og skoðun hjá lækni og
hjúkrunarffæðingi. Viðtal við
næringaráðgjafa er eftir þörfum
hvers og eins. Reglulegt eftirlit er
mikilvægt þar sem sjúkdómurinn
breytist með tímanum og áhersl-
ur í meðferð þar með.
Sykursýki er að greinast hjá fólki
á öllum aldri en þeir sem em að
nýta sér þjónustuna á Heilbrigð-
isstofhun Suðumesja em flestir
um og yfir miðjum aldri. Þá em
þeir flestir með sykursýki af týpu
2. GunnarValtýsson, sérfræðing-
ur í innkirtlasjúkdómum, starfar
á móttökunni í Keflavík. Hann
segir 90% þeirra sem hafa sykur-
sýki vera með týpu 2. Þar af leið-
andi em 10% með týpu 1 en þar
em böm, unglingar og fólk undir
40 ára aldri í miklum meirihluta.
Hins vegar er sykursýki af týpu 2
farin að sjást í meira mæli hjá
yngra fólki og tengist þá oftar en
ekki yfirþyngd.
Dæmi em um að fólk hafi lifað
með sykursýki mánuðum og
ámm saman og síðan greinst fyr-
irtilviljun. Gunnar sagði fólk
hafa verið með langtíma auka-
kvilla og í raun ekki áttað sig á
hvað væri að gerast í líkamanum.
Fólk aðlagast ýmsu og venst því.
Einkenni um sykursýki em
slappleiki, þorsti, tíð þvaglát,
þyngdartap, sveppasýkingar í
húð við kynfæri og mikil þreyta.
Sykursýkin veldur orkukreppu í
líkamanum, þar sem sykur hleðst
upp í blóðinu og líkaminn nær
ekki að nýta kolvetnin. Sykur-
sýkin er síðan greind með hækk-
uðum sykri í blóði og þvagi.
Á námskeiðinu sem haldið verð-
ur í Eldborg í febrúar verður far-
ið yfir hvað hægt er að gera til að
lifa með sjúkdómnum. Að sögn
Borghildar Sigurbergsdóttur,
næringarráðgjafa, krefst sjúk-
dómurinn mikillar kunnáttu, m.a.
í matarræði. Á námskeiðinu
verður farið í hópvinnu þar sem
fólk lærir að takast á við veikind-
in. Þá skiptir miklu máli að maki
sé meðvitaður um sjúkdóminn
og sérstaklega ef viðkomandi er
kokkurinn á heimilinu.
Lögð er áhersla á að á námskeið-
inu sé fólk á staðnum allan sólar-
hringinn dagana sem námskeiðið
stendur. Námskeiðið er í tvo sól-
arhringa. Fólk verður látið mæla
blóðsykurinn á ýmsum tímum
sólarhringsins, auk þess sem fólk
mun læra á sinn eigin líkama.
Að sögn aðstandenda nám-
skeiðsins er góð reynsla af svona
námskeiðum á norðurlöndunum.
Á námskeiðinu í Eldborg í
Svartsengi er pláss fyrir allt að 20
manns. Ymsir aðilar koma að því
að styrkja námskeiðið, s.s.
Reykjanesbær og nokkur lyija-
fyrirtæki á Islandi en þannig er
hægt að ná niður þátttökugjald-
inu
Skráning á námskeiðið fer
fram dagana 12.-16. janúar í
síma 422 0545 kl. 10:30 til
14:00. Nánari upplýsingar eru
veittar á sama tíma og skráning
fer fram. Tekið skal fram að
námskeiðið er ætlað sykursjúk-
um á Suðumesjum og aðstand-
endum þeirra.
OTíiRKENDÖI m riSMUWlJJUIíi
Fiskverkendur og fiskkaupendur
Látið okkur sjá um fiskflutninginn!
Erum í fiskflutningum frá Höfn í Hornafirði
Flytjum fiskinn frá skipshlið heim í hús
Gerum föst verðtilboð.
... að Víkurfiéttir á Netinu voru leiðandi
fiéttamiðill þegar kom að umfjöllun um
uppsagnir hjá Varnarliðinu á síðasta ári.
Þú gast lesið fiéttirnar fyrst á vfis!
hljómsveitin Traffic
spilar föstudags- og laugardagsKvöld
Kl. 23.30 - 03.30
Happy hour
- 2 fyrir 1
- frá 22-24 bæði Kvöldin.
Idol kvöld
Komdu og horfðu á Idolið hjá oKKur
- dryKKir á tilboði!
FrTtt inn
Aldur5taKmarK 20 ár
Kaffi Duus _ ____
- Staðurinn þinn IaÍÍ Æ
Aivöru útsýni! v
I
I
J _r
, r
r
Bjóðum upp á sérstakt fótanudd. Þú færð um
leið upplýsingar um ástand líffæra þinna.
50% afsláttur af fyrsta tíma
Hómenntaður náttúrulæknir
Ertu... með vöðvabólgu? ...með verki í öxlum eða
baki? ...með stirða liði?... að reyna að hætta að
reykja eða drekka áfengi? ...með slæma húð?
...oft þreyttur/þreytt? Þá getum við aðstoðað!
Fjölskylda okkar hefur
stundað náttúru-
lækningar í 4 kynslóðir.
Pantanasími 421 8858.
Hafnargötu 58 - sími 421 8858
ViKURFRÉTTIR I S. TÖLUBLAÐ 2004 i FIMMTUDAGURINN15.JANÚAR 2004 I 27