Fréttablaðið - 30.09.2017, Side 8

Fréttablaðið - 30.09.2017, Side 8
Ferðaiðnaður „Ferðaþjónusta verður aldrei burðarás atvinnustarf- semi á jaðarsvæðum en hún er góð viðbót engu að síður og bætir mann- lífið á stöðunum,“ segir Edward H. Huijbens, prófessor í ferðamála- fræðum við Háskólann á Akureyri. Framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands telur mikilvægt fyrir ferðaþjónustu á Norðurlandi  að hægt verði að fljúga innanlands frá Keflavík. Edward ræddi þar um stöðu ferðaþjónustu á svæðum fjarri Keflavíkurflugvelli á ráðstefnu í Háskólanum á Akureyri um byggðir landsins á tímum breytinga. Í núver- andi árferði þar sem hegðunar- mynstur ferðamanna breytist muni svæði fjærst Keflavíkurflugvelli fara hvað verst út úr þeim breytingum. „Ferðamönnum mun líklega ekki fækka hér á landi en hegðun þeirra breytist og ferðatíminn styttist. Þannig munu svæði sem fjærst eru suðvesturhorninu því finna mikið fyrir þessu breytta mynstri,“ segir Edward. Árstíðasveiflur gistinátta eru mismunandi eftir landsvæðum. Til að mynda hefur ferðaþjónusta á höfuðborgarsvæðinu færst í að vera heilsársiðnaður á meðan árstíðar- sveiflurnar fjarri höfuðborginni eru mun meiri. Þannig er nýting innviða og fjárfestinga lítill yfir stóran hluta ársins. Arnheiður Jóhannesdóttir, fram- kvæmdastjóri Markaðsstofu Norð- urlands, segir miklu máli skipta að flytja ferðamenn örugglega á Norður- og Austurland. „Ég hef sagt lengi að ef á Norður- landi eigi að þrífast alvöru ferða- þjónusta allt árið þarf samgöngur til. Það er ástæða þess að við erum að vinna með beint millilandaflug inn á þessi svæði,“ segir Arnheiður. „Það er mikilvægt að flogið sé reglu- lega frá Keflavík á Ísafjörð, Akureyri og Egilsstaði því það hefur borið góðan árangur.“ Að mati Arnheiðar er gríðarmikil- vægt að dreifa ferðamönnum betur um landið og gengi krónunnar nú sé til trafala ef markmið er að flytja ferðamenn frá Keflavík út á land. „Án þess að hafa skýr gögn fyrir framan mig hefur tilfinningin verið sú að raddir hafi verið háværastar í Þýskalandi um hátt verð til Íslands. Sá kúnnahópur, Þjóðverjar, hefur verið mjög stór markaður fyrir Norðurland. Því gætum við á Norð- ur- og Austurlandi fundið hratt fyrir áhrifunum af erfiðu gengi og styttri ferðalögum gesta okkar,“ segir Arn- heiður. sveinn@frettabladid.is Vilja aukið innanlandsflug frá Keflavík Ferðaþjónusta á jaðarsvæðum gæti fundið fljótt fyrir áhrifum af breyttu ferðamynstri okkar gesta. Þeir stoppa skemur og fara síður langt frá SV-horninu. Fyrir norðan segja menn að bæta þurfi samgöngur til að alvöru ferðaþjónusta þrífist í landshlutanum allt árið. Ferðamenn arka um götur Reykjavíkur í fullum herklæðum. Tenging við aðra landshluta er sögð skorta tilfinnanlega. FRéTTablaðið/andRi MaRinó Það er mikilvægt að flogið sé reglulega frá Keflavík á Ísafjörð, Akureyri og Egilsstaði því það hefur borið góðan árang- ur. Arnheiður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands Edward H. Huijbens, prófessor við Háskólann á akureyri Kosningar Þeir formenn flokka sem Fréttablaðið ræddi við í gær útiloka ekki ríkisstjórnar- samstarf við Miðflokk Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fyrrverandi forsætisráðherra. Fremur vilja þeir bíða og sjá stefnu flokksins, sem hefur ekki verið birt. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, segist ekkert vita um stefnu Miðflokksins. „Það hefur ekki komið fram fyrir hvað hann stendur. Ég ætla að gefa mér tíma til að sjá það. Við tökum afstöðu í þessu út frá málefnum,“ segir Katrín. Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, tekur í sama streng. „Ég hef ekki séð stefnu Miðflokks Sigmundar Davíðs þannig að ég teldi glannalegt að vera að alhæfa um fólk og stefnu áður en hún kemur fram,“ segir Logi og bætir því við að Wintrismálið hjálpi ekki möguleikum á samstarfi. „Ég vil leyfa flokknum að njóta þess sannmælis að hann leggi fram stefnu sína áður en ég dæmi flokk- inn. En iðrunarleysi Sigmundar Davíðs mun ekki hjálpa honum í viðræðum við aðra flokka,“ segir Logi enn fremur. Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, segir að flokkurinn hafi sett sér þá stefnu að málefnin ráði för og því verði flokkar ekki útilok- aðir fyrir fram. „Það sem mun vega þyngst er hver stefnumunurinn verður á flokkunum. Ef svo vill til að hann tekur upp mjög frjálslynda og víð- sýna stefnuskrá, og er til í að berjast fyrir stöðugu gengi og lægri vöxtum, gæti verið kominn samstarfsgrund- völlur,“ segir Benedikt. Smári McCarthy, þingmaður Pírata, segir flokkinn ekki hafa rætt Miðflokkinn, ekki hafi verið til- efni til þeirrar umræðu. Hann segir Wintrismálið ekki hjálpa Sigmundi Davíð. „Það er ómögulegt að það mál, og það form siðferðisskorts sem birtist í því máli, muni ekki hafa áhrif á afstöðu okkar til samstarfs,“ segir Smári. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist tilbúin að vinna með hverjum þeim sem vill útrýma fátækt á Íslandi. „Við viljum afnema verðtrygg- ingu, frítekjumark og okurvexti og útrýma fátækt og störfum með öllum þeim sem vilja hjálpa okkur að breyta þessu samfélagi,“ segir Inga. Ekki náðist í Bjarna Benedikts- son, formann Sjálfstæðisflokksins, Sigurð Inga Jóhannsson, formann Framsóknarflokksins og Óttar Proppé, formann Bjartrar framtíðar við vinnslu fréttarinnar. Í síðasta helgarblaði Fréttablaðs- ins sagðist Bjarni tilbúinn að vinna með öllum sem vilja halda áfram með þau góðu verkefni sem hafi verið unnin á undanförnum árum. Þá sagðist Sigurður Ingi vilja vinna með þeim sem vildu meðal annars efla samgöngu-, heilbrigðis- og menntakerfið og bæta kjör þeirra sem lakast standa. Óttarr sagðist ekki tilbúinn að vinna með þeim sem ala á hatri eða rasisma og sagði samstarf við Sjálf- stæðisflokkinn ólíklegt. – þea Formenn flokka útiloka Sigmund ekki fyrir fram Iðrunarleysi Sig- mundar Davíðs mun ekki hjálpa honum í viðræðum við aðra flokka. Logi Már Einars- son, formaður Samfylkingarinnar 3 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L a u g a r D a g u r8 F r é t t i r ∙ F r é t t a b L a ð i ð 3 0 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 0 F B 1 3 6 s _ P 1 2 9 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 1 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 0 8 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D E 1 -9 A E 8 1 D E 1 -9 9 A C 1 D E 1 -9 8 7 0 1 D E 1 -9 7 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 3 6 s _ 2 9 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.