Fréttablaðið - 30.09.2017, Blaðsíða 130
Apótek Hafnarfjarðar
er flutt að Selhellu 13
í Hafnarfirði
Verið velkomin
í sömu góðu þjónustuna
Soulland er fatamerki frá Kaupmannahöfn. Við byrjuðum fyrir tólf árum og höfum gert alls konar verkefni síðan þá og farið í alls kyns samstarf.
Í fyrra réðumst við í samstarf með
66°Norður og núna í október kemur
annað verkefni frá okkur. Megin-
áherslan er auðvitað á okkar eigin
línur en við reynum alltaf að brjóta
þetta upp með samstarfsverkefnum
við merki sem hafa sérþekkingu
sem við höfum ekki. Við erum til að
mynda í samstarfi við Nike þar sem
við gerum strigaskó ásamt fatnaði,“
segir Silas Adler, yfirhönnuður og
einn stofnandi fatamerkisins Soull-
and. Soulland X 66°Norður fer í
sölu í verslun 66°Norður á Lauga-
veginum þann 5. október.
Hvað var það sem tengdi Soulland
og 66°Norður saman? „Fyrir nokkru
byrjuðum við í viðræðum við þau
hjá 66°Norður. Þau voru að vinna
að ákveðnum verkefnum og við
líka, en hægt og rólega tók samstarf
okkar að fæðast. Þetta byrjaði með
fundum þar sem við ræddum um
hvort sjónarhóll okkar væri svip-
aður og þaðan fór vinnan af stað.
Við sáum að tækniþekking þeirra
við framleiðslu á útifatnaði var
mjög góð og áhugaverð fyrir okkur
– þessi þekking opnaði fyrir okkur
tækifæri til að hanna vörur sem við
höfum ekki getað hannað áður. Þau
höfðu líka góðan skilning á flötum
þar sem við höfum ákveðna styrk-
leika – þau vita hverju þau eru góð í
og við vitum hverju við erum góð í.“
Hver er hugmyndin á bak við
línuna? „Hugmyndin er að gera úti-
vistarföt fyrir staði í heiminum þar
sem veðráttan er óvægin – eins og
auðvitað á Íslandi. En líka að hafa
hönnunina nokkuð hlutlausa svo
fötin henti líka fyrir notkun í stór-
borgum. Við hugsuðum mikið um
til að mynda hjólreiðar og göngu –
eitthvað sem tíðkast mikið í Kaup-
mannahöfn, þar sem rignir töluvert.
Við reyndum að gera útlitið frekar
sportlegra og kraftmeira en tíðkast
kannski í þess háttar fatnaði. Við
enduðum með línu sem er mitt á
milli þess sem Soulland stendur
fyrir og þess sem 66°Norður stendur
fyrir.“
Í línunni eru flíspeysur, jakkar,
regnjakkar og slatti af aukahlutum
sem samkvæmt Silas ættu að nýtast
frá hausti allt til
enda vetrar.
Hvað er næst
hjá Soulland? „Við
erum að setja á
markað línu með
Nike í desember.
Auk þess gerum
við á eigin spýtur
fjórar línur á
ári – svo það er í
raun alltaf lína á
leiðinni sem við
erum að vinna í
og allt-
af eitt-
h v a ð
að ger-
ast.“
s t e f a n
t h o r @
frettabla
did.is
Útivistarfatnaður fyrir borgina
66°Norður kynnir í annað sinn samstarf við danska götumerkið Soulland. Silas Adler er yfirhönnuður merkisins og
einn stofnenda þess. Hann segir styrkleika merkjanna hafa smellpassað saman svo að úr varð sterk lína.
Silas Adler, yfirhönnuður Soulland.
Það er þörf
á regn
jökkum
bæði í Kaup
mannahöfn
og Reykjavík.
3 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r66 L í f i ð ∙ f r É t t A b L A ð i ð
Lífið
3
0
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
0
F
B
1
3
6
s
_
P
1
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
1
-9
5
F
8
1
D
E
1
-9
4
B
C
1
D
E
1
-9
3
8
0
1
D
E
1
-9
2
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
3
6
s
_
2
9
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K