Fréttablaðið - 07.10.2017, Page 46
Matreiðslumaðurinn Daníel Karl Egilsson er með með veiðidellu á háu stigi.
Vegna bakveikinda hefur hann ekki
getað starfað við fag sitt undan-
farin ár heldur unnið í veiðibúð
en það hentar honum sérlega vel
að eigin sögn því þá getur hann
um leið sinnt aðaláhugamáli sínu.
„Ég er mikið náttúrubarn og flétta
mikið saman matargerð og veiði.
Áhugi minn á matargerð kviknaði
strax þegar ég var lítill strákur en
ég hjálpaði afa og mömmu iðulega
í eldhúsinu. Afi var mikill mat-
gæðingur og lék sér mikið við elda-
mennsku. Ég fylgdist grannt með
honum þegar ég var yngri og það
má segja að þessi mikla matarást í
fjölskyldu minni í móðurætt sé frá
honum kominn.“
Undanfarin ár hefur áhugi hans
á hægeldun og gufusteikingu aukist
til muna. „Ég hef gaman af því að
leika mér með ódýrara hráefni sem
krefst lengri eldunartíma, t.d bóg og
kinnar, en í staðinn fæ ég bragð-
sterkara kjöt. Eftirlætishráefnið
mitt er klárlega rib-eye af Galloway-
nauti sem ég fæ beint frá býli, Vega-
tungu í Bláskógabyggð, en ég hef
líka mjög gaman af því að leika mér
með villibráð.“
Innmatur í uppáhaldi
Yfir sumartímann segist hann nær
eingöngu grilla og þá helst það
sem hann veiðir sjálfur, aðallega
silung og lax, en einnig hrefnukjöt
og naut. „Ég reyni að einblína á að
hafa létt meðlæti og bý til kaldar
sósur úr kryddjurtum úr garðinum.
Þannig tíni ég t.d. oft kryddjurtir á
meðan ég er að veiða, s.s. blóðberg
og hvönn, og nota í matargerð. Ég
tek líka oft með mér birkigreinar og
skelli á grillið með mat til að fá gott
reykbragð.“
Matreiðsla innmatar er líka í
miklu uppáhaldi enda vill Daníel
nýta allar afurðir af dýrinu. „Mig
hefur t.d. lengi langað til að prufa
að leika mér með nautahjarta. Mér
áskotnaðist eitt slíkt um daginn
og ætla að prufa að heitreykja það
fljótlega. Ég hef áður prufað að
heitreykja hreindýrahjarta og kom
það vel út, bæði sem álegg og sem
fínasta steik. Einnig ætla ég að prufa
að leika mér aðeins með nautalifur,
hvort sem það verður í formi kæfu
eða annað.“
Daníel gefur hér lesendum eina
ljúffenga uppskrift fyrir helgina.
Með veiðidellu á háu stigi
Daníel Karl er mikið náttúrubarn og fléttar saman matargerð og veiði sem eru hans helstu áhuga-
mál. Mataráhugann rekur hann helst til afa síns sem lék sér mikið við eldamennsku.
Úrval af góðu rótargrænmeti er notað í réttinn.
MASA International er stór og öflug fasteigna-sala með marga ráðgjafa
innanborðs. Vel er hugsað um
viðskiptavininn frá A til Ö og þegar
fasteignaviðskipti fara fram, og eftir
skoðunarferð til Spánar, fer traust
eftirferli í gang þar sem kaupandinn
hefur greiðan aðgang að söluráð-
gjafa sínum til að fylgjast með gangi
húsbyggingarinnar. Þá geta þeir
fylgst með framgangi eignar sinnar
á lifandi heimasíðu MASA og sett
fram breytingar eftir óskum,“ segir
Jónas Halldór Jónasson, umboðs-
aðili MASA International á Íslandi.
MASA International var stofnað
árið 1981 og hefur hvað mesta
reynslu af fasteignaviðskiptum á
Costa Blanca á Spáni.
„Engin fasteignasala hefur selt
jafn mörgum Íslendingum hús og
MASA. Húsin eru á Torrevieja-svæð-
inu og flogið er beint til Alicante.
Níutíu prósent húsanna sem nú eru
til sölu eru nýbyggingar sem afhent-
ar verða innan árs. Hægt er að velja
eins mikinn lúxus og hver og einn
vill en í flestum húsaþyrpingunum
er sundlaug, nuddpottur, gufubað
og íþróttasalur,“ segir Jónas og bætir
við að eftirfylgni MASA sé einstök
þar sem kaupendur hafi aðgang að
fasteignasölunni í ársfjórðung eftir
fasteignaviðskiptin, komi eitthvað
óvænt upp á.
„Margir hugsa til efri áranna
þegar þeir kaupa sér fasteign á
Spáni og vilja geta notið lífsins í
þessari paradís þar sem sólin skín
yfir 300 daga á ári og verðlagið er
allt að 80 prósentum lægra en hér
heima. Leigumarkaður er sterkur
í Torrevieja og gengur vel að leigja
út hús í skammtíma- og langtíma-
leigu. Því vilja margir láta húsin
reka sig núna og eiga þau skuld-
laus þegar komið er á efri ár,“ segir
Jónas.
Almennir leigumiðlarar á Costa
Blanca sjá um útleigu húsa fyrir
íslenska fasteignaeigendur.
„Margir fá sömu viðskiptavinina
aftur og aftur því iðulega sækir fólk í
að leigja út sama húsið aftur, þaðan
sem það ratar á ströndina, veitinga-
staði og í verslanir.“
MASA International er ein fárra
spænskra fasteignasala sem fengið
hafa ISO 9001-staðal, en hann hann
er eingöngu veittur fyrirtækjum
sem veita framúrskarandi þjónustu
og geta mætt þörfum viðskiptavina
í hvívetna. „Það er þrautin þyngri að
fá þessa vottun en víst enn erfiðara
að halda henni,“ segir Jónas.
Í dag verður kynning á spænskum
fasteignum á Hótel Reykjavík
Centrum þar sem öllum er velkom-
ið að kynna sér hvernig fasteigna-
viðskipti á Spáni fara fram.
„Einu sinni í mánuði förum við í
skoðunarferð til Spánar en að sjálf-
sögðu er fólki heimilt að panta sér
flug á eigin vegum og þá sjáum við
um skoðunarferðina úti á þeim tíma
sem hentar. Mörgum þykir þó öryggi
í að fara utan með okkur og erum við
öllum innan handar á meðan dvalið
er á Spáni,“ segir Jónas.
Næst verður farið utan 16.
nóvember og komið heim 20.
nóvember. „Við tökum fjóra daga í
skoðunarferðirnar og til að ganga
frá kaupunum ef menn finna
draumaeignina.“
Kynning MASA International fer
fram á Hótel Reykjavík Centrum í
Aðalstræti 16 frá klukkan 14 til 17 í
dag. Allir hjartanlega velkomnir.
Til móts við draumahúsið
Hvern dreymir ekki um að geta notið lífsins í eigin húsi suður á Spáni þar sem sólin skín yfir
300 daga á ári? Draumurinn um hið ljúfa líf gæti ræst á Hótel Reykjavík Centrum í dag.
Verð á einbýlishúsi í Torrevieja er frá 230.000 evrum.Verð á nýjum íbúðum í Torrevieja er frá 149.900 evrum.
Hrefna á rótar-
beði er sérlega
fallegur og
góður réttur.
Matreiðsluáhugi Daníels Karls byrjaði í barnæsku.
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Hrefna á rótarbeði
Marinering fyrir hrefnuna
800 g hrefna
2 msk. soya
1 msk. liquid smoke
4 msk. olía
1 tsk. paprikuduft
½ tsk. broddkúmen
½ tsk. rósapipar
Timiangreinar
Öllu blandað saman og kjötið látið
liggja í fjóra klukkustundir.
Grænmeti
1 rófa
2 gulrætur
Einn haus hnúðkál
1 rauðrófa
Kóríander
Ediksblanda fyrir grænmeti
2 msk. edik
½ msk. chili eða eftir smekk
Salt
Ólífuolía
Grænmeti skorið í strimla, blandað
vel saman og látið liggja í 2 tíma í
ediksblöndunni.
Teryaki sósa
2 dl teryakisósa
1 hvítlauksgeiri
1½ msk. sushi engifer
½ chili
2 msk. balsamic edik
1 msk. hlynsíróp
Öllu blandað vel saman í mat-
vinnsluvél.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . O K TÓ B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
7
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
C
-6
F
5
0
1
D
E
C
-6
E
1
4
1
D
E
C
-6
C
D
8
1
D
E
C
-6
B
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
0
s
_
6
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K