Fréttablaðið - 14.10.2017, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 14.10.2017, Blaðsíða 34
Ég á lítið sameiginlegt með flestum í þessu landsliði ef maður lítur á það blákalt. Samt eru þetta auðveldir menn að umgangast. Það er hægt að vera með þeim í fleiri fleiri vikur án þess að fá leiða á þeim,“ segir landsliðsbakvörðurinn Birkir Már Sævarsson. Birkir á fjögur börn, ekur um á Volvo XC 60, spilar hokkíleik í Play Stat ion þegar hann er á landsliðsferðum, hlustar á þungarokk og er ekki virkasti maður í heimi á samfélagsmiðlum. Hann hefur spilað 76 landsleiki og skorað eitt mark. Þrátt fyrir að börn bíði ekkert endilega í röðum eftir að fá eiginhandaráritun frá honum er ljóst að virðingin sem er borin fyrir honum er ómæld enda flestir sammála um að hjartað í honum sé gert úr gulli. Allt Stefaníu að þakka Birkir hefur eignað sér hægri bakvarðarstöðuna í landsliðinu. Það er áhyggjuefni að enginn bakvörður er sjáanlegur til að veita honum samkeppni. Þegar Birkir Már Sævarsson var yngri var fátt sem benti til þess að hann yrði landsliðsmaður í fótbolta. Þangað til að eiginkona hans, Stefanía Sigurðar­ dóttir, kom inn í líf hans. Þá fór ferillinn á flug. Birkir sker sig úr þegar kemur að íslenska landsliðinu. Hann á fjögur börn, hlustar á þungarokk og er ekkert að trana sér fram að óþörfu. Myndaalbúm Birkis og fjölskyld u frá Stokkhólmi í Svíþjóð Birkir er ákaflega mikill fj ölskyldumaður. Hér er hann með guttana sína, S ævar Zakarías og Víking Leó. Að sjálfsögðu eru þe ir í landsliðsbúningi. Hjónin brosa út að eyrum þessa dagana þrát t fyrir óvissuna fram undan. Bir kir talar fallega um Stef- aníu og þakkar henni fyri r að ferill hans fór á flug. Birkir með Hirti Smára se m fór á undan fjöl- skyldunni og flutti til Íslan ds fyrir skömmu. Fjölskyldan samankomin . Hjörtur Smári, Birkir, Þóra Kolbrún, Sæva r Zakarías, Stefanía og Víkingur Leó. Þannig gaf hann fötluðum stuðn­ ingsmanni treyjuna sína sem hann spilaði í á móti Tyrkjum, hefur stutt við bakið á Ingólfi Sigurðssyni og aukinni fræðslu um geðheilbrigði og sá aumur á grátandi föður sem fékk ekki miða á landsleikinn gegn Kósóvó og bjargaði feðgunum. Þetta er bara upptalning á góðverkum hans á allra síðustu dögum. Hann náði heldur ekki að fagna mikið þegar sæti Íslands á Heims­ meistaramótinu í Rússlandi var tryggt. Eftir að landsliðið var hyllt á Ingólfstorgi héldu strákarnir einka­ samkvæmi á Pedersen svítunni þar sem færri komust að en vildu. Birkir var þó farinn snemma heim. „Ég fékk svona rúman klukkutíma í svefn og var síðan farinn út á flugvöll. Vissulega var gaman að vakna eftir svona stutt­ an svefn og átta sig á hvað hafði gerst, að við vorum komnir til Rússlands. Ég fór snemma heim, ég veit svo sem ekkert hvað restin af liðinu gerði. Ég var farinn af landinu 07.35 með fjölskyldunni en kannski gerðu ein­ hverjir eitthvað – ég bara veit það ekki,“ segir hann. Stefanía Sigurðardóttir, eiginkona Birkis, kom til landsins ásamt gutt­ unum þeirra, Sævari Zakaríasi og Víkingi Leó, til að verða vitni að stóru stundinni. Unglingurinn á heimilinu, Þóra Kolbrún,  varð eftir í Svíþjóð. Elsti strákurinn þeirra, Hjörtur Smári, flutti heim til Íslands fyrir nokkru. „Þóra Kolbrún vill nýta hvern einasta dag til að vera með sænskum vinum sínum og bjó hjá nágrönnunum í nokkra daga,“ segir hann en allar líkur eru á að fjölskyldan flytji heim til Íslands um áramótin og Birkir verði eftir. Hlýr Valsfaðmur Þau hjónin hafa komið sér vel fyrir í Stokkhólmi þar sem Birkir sparkar í fótbolta með Hammarby og ekur að sjálfsögðu um á Volvo. Samningur hans rennur út um áramót og því þarf fjölskyldan að flytja. Nema Hammar­ by hækki samningstilboðið sitt. „Þeir buðu mér samning sem var ekki nógu góður að mínu mati. Ég sagði nei við tilboðinu og viðræðurnar runnu út í sandinn. Ég veit í rauninni ekkert hvað er að fara að gerast. Við erum ánægð hérna og vildum vera áfram en ég ætlaði ekki skrifa undir bara eitthvað. Ég hef verið heppinn því að ég hef verið að borga svokallaðan útlend­ ingaskatt hér sem er fyrstu þrjú árin. Nú er það búið og ég þyrfti því að hækka í launum til að koma út á núlli. En það var ekki hægt og ég þarf því að leita mér að nýjum klúbbi,“ segir hann en umboðsmaður hans er að vinna í málinu fyrir hann. Á meðan einbeitir hann sér að því að spila fyrir félagið en hann hefur spilað nánast alla leiki í byrjunarliði Hammarby frá því hann kom þangað frá Noregi. Fjölskyldan mun að öllum líkindum setja allt niður í kassa og flytjast heim til Íslands eftir áramót. Stefnan hjá Birki er að vera áfram úti og spila erlendis fram að Heimsmeistara­ mótinu. Koma heim eftir það. En það er stutt á milli í fótboltanum og aldrei hægt að vita neitt fyrir fram. En þetta er allavega stefnan. Þar bíður Valsfaðmurinn eftir honum en Birkir er með Valsmerkið tattúverað á sig. „Fyrsta mál á dagskrá er að finna eitthvað erlendis. Allavega fram að HM. Þó það væri ekki nema bara þetta hálfa ár. Nú, ef ekkert kemur upp þá þarf ég að finna mér eitthvað að gera. Ég þarf að hugsa um heila fjölskyldu og ég get ekki verið tekjulaus í einhvern tíma. Ég þarf að hafa einhverjar tekjur í janúar 2018 og vonandi finn ég eitt­ hvað í útlöndum. En ef það gengur ekki þá kem ég heim og spila fót­ bolta.“ Eðlilega er næsta spurning: Þá í Val? „Faðmur Vals er alltaf hlýr,“ segir hann glottandi. Birkir var hluti af frekar döprum árgangi í Val og hann var sjálfur ekkert stórkostlegur leikmaður í yngri flokk­ unum. En hann fór að stækka og skref­ in urðu stór þó kílóin væru kannski ekkert að hrannast utan á hann. Allt í einu var kominn fram á sjónvar­ sviðið einn fljótasti leikmaður Íslands sem geystist upp og niður kantinn hjá Val. Hann spilaði framarlega til að byrja með, kom inn í meistaraflokk Vals árið 2003 en braut sér leið inn í liðið þremur árum síðar. Þá hafði hann prófað að fara til Bandaríkjanna í nám en fékk ekki áframhaldandi skólastyrk. Hann hélt því á Laugar­ vatn þar sem líf hans tók stakka­ skiptum. Þar kynntist hann Stefaníu, eða Stebbu. Hækkar í tvöfaldri bassa trommu „Það er allt henni að þakka að ferillinn fór á flug,“ segir hann stoltur. Hann kynntist henni árið 2006 í íþrótta­ skólanum á Laugarvatni og sama ár var hann valinn efnilegasti leikmaður deildarinnar. „ Ég hef alltaf sagt að ef ég hefði ekki hitt hana þá væri ég að spila einhvers staðar í neðri deildunum eða með KH, varaliði Vals. Kannski hefði ég komist í Valsliðið á sínum tíma en hún kom mér á rétta braut. Ég hafði gaman af að fara í partí og vera í miðbænum áður en hún kom til sögunnar.“ Birkir keyrði á milli Reykja­ víkur og Laugarvatns og stytti sér stundir með því að hlusta á þunga­ rokk. Hann hækkar enn vel í tvö­ faldri bassa trommu, sem er ekki algengt meðal landsliðsmanna. Þeir eru meira í annarri tónlist. „Það eru ekki margir þungarokkarar í landsliðinu, því miður. Ég held að það sé lítil von til að breyta því. Íslenska þungarokkið í dag, Skálmöld, Dimma og Sólstafir meðal annars, er á mjög háum standard.“ Birkir hefur eignað sér hægri bakvarðarstöðuna í landsliðinu og ekki er sjáanlegt að nokkur leik­ maður ógni stöðu hans. Þegar hann klæðist landsliðstreyjunni þá gerist eitthvað sem erfitt sé að útskýra. „Er það ekki þjóðarstoltið? Það kemur einhver extra kraftur eins og á að vera þegar menn spila landsleiki. Maður vill ekki bregðast fjölskyldu og vinum, liðsfélögum og þjóðinni sem fylgist með.“ Birkir er herbergisfélagi Ögmundar Kristinssonar en þeir léku saman með Hammarby. Þeir töldu það saman að á síðasta ári voru þeir fimm mánuði saman í hótelher­ bergi. „Við vorum nánast meira saman en með konunum okkar. Við erum ekki orðnir leiðir hvor á öðrum. Við spilum mikið NHL tölvu­ leikinn í PlayStation. Við höfum gaman af hokkí og þetta er miklu betri leikur en FIFA­leikurinn. FIFA er góður en þessi er betri. Ég fór stundum í hótelgolfið sem er vinsæl íþrótt á landsliðshótelinu en ég er svo lélegur.“ Birkir segir að þrátt fyrir að eiga lítið sameiginlegt með mörgum af landsliðsstrákunum sé þetta þægilegur hópur að umgangast og hann elski þá alla eins og bræður. „Þeir eru margir sem eru búnir að vera lengi saman í þessu, þeir eru líka bestu vinir fyrir utan fótboltann. Þetta er samheldinn hópur og við sem erum aðeins fyrir utan hann erum eldri og vitrari,“ segir hann og hlær. Uppáhaldsþunga­ rokkslög Birkis 1. Skálmöld - Hefnd 2. Skálmöld - Kvaðning 3. Dimma - Kóngulóarkonan 4. Egó - Stórir strákar fá raflost 5. Utangarðsmenn - Fuglinn er floginn Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is 1 4 . O K T Ó B E R 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 4 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 1 1 2 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 0 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D F 8 -D 9 D 4 1 D F 8 -D 8 9 8 1 D F 8 -D 7 5 C 1 D F 8 -D 6 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 1 2 s _ 1 3 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.