Fréttablaðið - 14.10.2017, Blaðsíða 51
442 1000
Þjónustuver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:0
rsk@rsk.is
Fyrsta íbúð – Reykjavík/Akureyri
Frá og með 1. júlí 2017 tók gildi ný heimild til ráðstöfunar séreignar-
sparnaðar ætluð einstaklingum sem kaupa sér íbúðarhúsnæði í
fyrsta skipti. Samkvæmt lögunum hefur ríkisskattstjóri með hönd-
um umsóknarferli, úrvinnslu og eftirlit með útgreiðslu iðgjalda.
Um talsvert viðamikið verkefni er að ræða og því eru tvö störf við
framkvæmdina nú laus til umsóknar.
Frekari hæfnikröfur
• Viðeigandi háskólamenntun, t.d. á sviði viðskiptafræði
eða lögfræði
• Þekking á málsmeðferðarreglum æskileg
• Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
Skatteftirlit - Reykjavík
Helstu verkefni eru að yfirfara gögn og upplýsingar um skattskil
lög aðila og einstaklinga í þeim tilgangi að greina möguleg skatt-
undanskot og vantalda skattstofna, ásamt því að endurákvarða
opinber gjöld.
Frekari hæfnikröfur
• Viðeigandi háskólamenntun, t.d. á sviði viðskiptafræði
eða lögfræði
• Þekking á reikningsskilum, málsmeðferðarreglum
og almennri skattframkvæmd æskileg
• Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
Hugbúnaðarþróun - Reykjavík
Í undirbúningi er innleiðing nýrra upplýsingakerfa og þróun og
endurbætur á eldri kerfum. Leitað er liðsauka til starfa við slík
verkefni og eiga samskipti við samstarfsaðila vegna verkefna við
skattframkvæmd.
Frekari hæfnikröfur
• Menntun á sviði tölvunarfræði eða verkfræði
• Góð þekking á upplýsingatæknimálum
• Þekking og reynsla í forritun (C#, Oracle) er kostur
• Reynsla og hæfni í verkefnastjórnun er kostur
Virðisaukaskattur - Reykjavík
Starfið felst einkum í vinnu við framkvæmd virðisaukaskatts,
s.s. mati á tilkynningum um atvinnurekstur, úrvinnslu umsókna,
frumálagningu, endurálagningu og bréfaskrifum.
Frekari hæfnikröfur
• Háskólamenntun á sviði lögfræði, viðskiptafræði eða hagfræði
• Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
Þjónustuver - Akureyri
Þjónustuver ríkisskattstjóra er á starfsstöðinni á Akureyri. Helstu
verkefni eru upplýsingagjöf um skattamál og símaþjónusta.
Frekari hæfnikröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
Krefjandi störf á góðum vinnustað
Ríkisskattstjóri er í fararbroddi innleiðingar rafrænnar stjórnsýslu. Helstu
verkefni embættisins eru álagning opinberra gjalda, skatteftirlit og að
halda lögbundnar skrár en að auki er embættinu falið að sinna ýmsum
sérverkefnum.
Vinnustaðurinn er fjölmennur og dreifist starfsemin um landið. Megin-
stefna ríkisskattstjóra í mannauðsmálum byggir á gagnkvæmu trausti,
tillitssemi og virðingu á milli stofnunar og starfsmanna og starfsmanna
sín í milli. Ríkisskattstjóri er þátttakandi í eins árs tilraunaverkefni um
styttingu vinnuvikunnar.
Nú er tækifæri fyrir jákvæða og öfluga einstaklinga til að bætast í
kröftugan hóp starfsmanna embættisins því nokkur störf eru laus til
umsóknar. Grunnkröfur fyrir öll störfin eru:
• Frumkvæði og metnaður
• Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
• Fáguð framkoma og lipurð í mannlegum samskiptum
• Jákvæðni og þjónustulund
• Geta til að vinna undir álagi
• Góð almenn tölvukunnátta
Umsóknir skulu fylltar út á rsk.is/starf eða á Starfatorgi. Ferilskrá sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf, umsagnar aðila
og annað er máli skiptir þarf að fylgja með svo umsókn teljist fullnægjandi. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi
stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 30. október 2017 og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningar.
Upplýsingar um störfin veita Inga Hanna Guðmundsdóttir og Birgitta Arngrímsdóttir í síma 442 1000.
1
4
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
F
9
-0
B
3
4
1
D
F
9
-0
9
F
8
1
D
F
9
-0
8
B
C
1
D
F
9
-0
7
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
1
2
s
_
1
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K