Fréttablaðið - 14.10.2017, Blaðsíða 82

Fréttablaðið - 14.10.2017, Blaðsíða 82
Ein eftirlætisiðja banda-rískra sagnfræðinga er að setja saman lista yfir bestu og verstu forsetana í sögu landsins. Meðal þeirra sem undantekningarlítið lenda á síðarnefnda listanum er James Buchanan, sem sat í Hvíta húsinu frá 1857-61. Buchanan er legið á hálsi fyrir að hafa algjörlega litið fram hjá þeirri tifandi tímasprengju sem deil- urnar um þrælahald voru í Banda- ríkjunum og leiddu skömmu síðar til blóðugrar borgarastyrjaldar í landinu. Það kom þó í hlut Buchanans for- seta að skiptast á skilaboðum við Viktoríu Bretlandsdrottningu þann 19. ágúst árið 1858. Um var að ræða vígsluathöfn ritsímastrengs sem lagður hafði verið milli Írlands og Nýfundnalands um djúpa ála Atl- antshafsins. Strengurinn var ófull- kominn og drjúgan tíma tók að bera skilaboðin um hann. Engu að síður þótti strengurinn boða byltingu í fjarskiptum, enda margfalt fljótlegri en bréfsendingar með póstskipum. Framfarir á sviði ritsímatækn- innar um miðja nítjándu öld voru svo skjótar að undrum sætir. Vöxtur alþjóðaviðskipta og hagsmunir ríkis- stjórna og hernaðaryfirvalda leiddu til mikillar eftirspurnar eftir kröftugri samskiptatækni. Uppfinningamenn sem duttu niður á snjallar útfærslur gátu gert sér vonir um stórgróða og fjárfestar slógust um að setja fé í verk- efni á þessu sviði. Unnið var að þróun fyrstu ritsíma- kerfanna samtímis í Evrópu og Norð- ur-Ameríku á fjórða áratug nítjándu aldar. Vestanhafs var það hugvitsmað- urinn Samuel Morse sem sendi fyrstu ritsímaskilaboðin um nokkra vega- lengd (þrjá kílómetra) árið 1838. Enn áttu þó eftir að líða sex ár uns Morse tókst að koma upp fyrsta eiginlega rit- símakerfinu, en þá lánaðist honum að flytja skilaboð frá Washington til Slegið á þráðinn Stefán Pálsson skrif- ar um tækniáform sem ekki rættust. Saga til næsta bæjar Í bókinni Söguþráðum símans vakti sagnfræðingurinn Heimir Þorleifsson athygli á því tómlæti sem Íslendingar sýndu ritsímamálinu árið 1860. Baltimore. Þá þegar var hafist handa við að leggja ritsímalínur um þver og endilöng Bandaríkin. Í Evrópu varð þróunin með svipuðum hætti. Línur voru fyrst lagðar milli mikilvægustu borga, síðar milli landa og með tím- anum þéttist kerfið svo jafnt og þétt með þeim afleiðingum að afskekkt- ustu svæði komust í samband. Höfin sigruð Fyrstu ritsímalínurnar voru á staurum á landi, en víða háttaði þó svo til að æskilegt þótti að koma þeim í vatn. Árið 1849 var ritsímaþráður lagður í Rínarfljót með góðum árangri og þá þegar voru fjárfestar og tæknimenn farnir að huga að möguleikanum á því að tengja Bretland og meginland Evr- ópu yfir Ermarsundið. Enski athafna- maðurinn og verkfræðingurinn John Watkins Brett fékk leyfi frá frönskum stjórnvöldum til að leggja ritsíma- streng yfir sundið. Lauk þeirri fram- kvæmd árið 1850 og misserin á eftir var nýjum strengjum bætt við milli Bretlands, Hollands og Belgíu, yfir Írlandshaf og milli eyja í Danmörku. Rekstur þessara sæstrengja gekk að mestu áfallalaust og skilaði eigend- unum góðum hagnaði. Þess gat því ekki orðið langt að bíða að fjárfestar fengju augastað á enn stærra verk- efni: lagningu strengs milli Evrópu og Norður-Ameríku. Það var auðkýfingur frá Massachus- etts, Cyrus West Field að nafni, sem reið á vaðið. Field þessi hafði auðgast gríðarlega á pappírsframleiðslu og sest í helgan stein hálffertugur að aldri. Eftir nokkur ár í vellystingum tók honum að leiðast aðgerðaleysið og hann hóf að svipast um eftir nýjum áskorunum. Hin ört vaxandi ritsímatækni vakti áhuga Fields og hann kom að fjár- mögnun ritsímalínu milli New York og Nýfundnalands og Nova Scotia árið 1854. Þá þegar virðist hugmyndin um streng yfir Atlantshafið hafa verið farin að gerjast. Stofnað var félag um verkefnið, nauðsynlegra leyfa aflað og gengið frá fjármögnun. Framkvæmdir við lagninguna hófust á árinu 1857 og í ágúst árið eftir var strengurinn tilbúinn til notkunar sem fyrr sagði. Skeyti Bretadrottningar var rétt um hundrað orð og það tók símskeyta- mennina sautján klukkustundir að koma því til skila. Svar bandaríska forsetans var nokkru styttra og tók því einungis tíu klukkustundir í sendingu. Fáir myndu hrópa húrra fyrir slíkum gagnaflutningshraða nú um stundir, en árið 1858 þótti það stórafrek. Frumkvöðlinum Field var hampað sem hetju og hluthafar í ritsímafyrir- tæki hans sáu fram á svimandi hagnað af rekstrinum. Bandarískt stórblað gekk svo langt að kalla strenginn „átt- unda undur veraldar“. En ævintýrið snerist fljótt upp í martröð. Ritsímafélagið hafði ekki undan að taka við skilaboðum til sendingar og strengurinn var í stöðugri notkun allan sólarhring- inn. Stöðugt verr gekk þó að senda skilaboðin og þegar yfirtæknimaður félagsins freistaði þess að auka afköst- in með því að hækka spennuna brann strengurinn yfir. Ballið var búið eftir aðeins um hálfs mánaðar rekstur. Úti- lokað var að fiska sæstrenginn upp til viðgerðar. Öll fjárfestingin varð ónýt á einu bretti, stofnandinn Field féll samstundis af stallinum og varð að athlægi. Nýrra leiða leitað En þótt þessi fyrsta tilraun til fjar- skipta yfir Atlantshafið hafi mis- heppnast svo herfilega, var áhuginn enn til staðar. Sumir töldu að rétt væri að koma nýjum og fullkomnari sæstreng fyrir á svipuðum slóðum, enda væri það stysta leiðin milli enda- stöðva. Aðrir töldu krók betri en keldu og skynsamlegt væri að velja lengri leið fyrir ritsímann, en stytta um leið þá kafla sem lægju neðansjávar. Þann- ig myndi ritsíminn liggja til Afríku, fara til Grænhöfðaeyja, þaðan stystu leið til Brasilíu og loks til Bandaríkj- anna um Karíbahafið. Þótt þessi útfærsla stytti sæstrengs- lögnina verulega töldu ýmsir verk- fræðingar að það dygði ekki til. Allt- of áhættusamt var að þeirra mati að treysta á kapla sem lægju um löng haf- svæði og sem útilokað væri að lagfæra ef eitthvað færi úrskeiðis. Í þeim anda var stofnað félag um lagningu ritsíma frá Kaliforníu til Moskvu eða St. Pétursborgar. Skyldi sú símalögn liggja um Alaska, yfir Beringssundið til Rússlands og þaðan um Síberíu þvera allt til Evrópu. Slík leið hefði orðið ógnarlöng og gríðar- lega erfið í uppsetningu, sem segir sitt um hversu mikið fjárfestum fannst til vinnandi að losna við að sökkva nýjum streng í djúpið. Síberíuhugmyndin átti ákafa fylgis- menn en fleiri voru þó efins. Ljóst var að mörg þúsund kílómetra línulögn í Síberíu, langt frá mannabyggðum, yrði óhemjudýr og afar tímafrek í smíði. Rekstrarkostnaður á ritsíma umhverfis mestallan hnöttinn yrði mikill og það sem verst var: erfitt yrði að koma í veg fyrir að samskiptin yrðu hleruð, sem rýrði stórlega notagildið fyrir ríkisstjórnir og hernaðaryfir- völd. Sama vandamál var raunar upp á teningnum varðandi suðurleiðina. Á norðurhjara Til að komast hjá þessum vandamál- um kviknaði hugmyndin um þriðju útfærsluna: norðurleiðina. Með henni yrðu Evrópa og Norður-Ameríka tengdar með símalögn sem þræddi eyjar í Norður-Atlantshafi: Suður- eyjar, Færeyjar, Ísland og Grænland. Vissulega væri þar við erfið náttúruöfl að glíma, en á móti kæmi að lengstu einstöku neðansjávarkaflarnir væru miklu styttri en annars staðar væri mögulegt á leið yfir Atlantshafið. Hugmyndin að þessari leið mun hafa komið frá enskum verkfræðing- um, en það var bandarískur uppfinn- ingamaður, Taliaferro Preston Shaff- ner, sem tók hana upp á arma sína. Shaffner þessi var gamall samverka- maður Samuels Morse og útgefandi áhrifamesta tímarits Bandaríkjanna á sviði ritsímamála. Orð hans höfðu því mikið vægi hjá stjórnmálamönnum jafnt sem fjárfestum. Shaffner hafði snemma komist að þeirri niðurstöðu að útilokað væri að leggja ritsímastreng yfir Atlantshafið þvert. Árið 1854 hélt hann til Dan- merkur og taldi stjórnvöld þar á að veita honum einkaleyfi til hundrað ára til reksturs ritsímastrengs um hjálendurnar í norðrinu. Með einka- leyfið að vopni safnaði hann svo sam- starfsaðilum og fjárfestum vestan hafs og austan. Næstu árum varði Shaffner að miklu leyti í rannsóknir á aðstæðum í norðurhöfum. Í því skyni kom hann meðal annars til Íslands árið 1860, tók land á Djúpavogi og hélt þaðan norður fyrir land og loks suður Kjöl um Þingvelli og til Reykjavíkur, en þar lá hin fyrirhugaða leið ritsím- ans. Shaffner fékk hagfræðinginn og þingmanninn Arnljót Ólafsson sér til aðstoðar og tók Arnljótur síðar upp mál tengd línulögninni á Alþingi. Erindi Arnljóts fékk heldur dræmar undirtektir og sáu þingmenn helst ástæðu til að amast við því að bændur væru skyldaðir til að leggja land undir línulögn bótalaust. Í bókinni Söguþráðum símans vakti sagnfræðingurinn Heimir Þorleifsson athygli á því tómlæti sem Íslendingar sýndu ritsímamálinu árið 1860. Hefðu áformin náð fram að ganga hefðu landsmenn tengst nýjasta og for- vitnilegasta tæknikerfi sinnar tíðar og allir möguleikar til samskipta við Danmörku tekið stakkaskiptum. Þrátt fyrir að íslensk tímarit og frétta- blöð hefðu öðru hvoru getið um rit- símatæknina, virðast Íslendingar ekki hafa haft nokkurn möguleika á að skynja þau tækifæri sem í henni fólust. Jafnvel velgjörðarmenn Shaffn- ers hér á landi virðast ekki hafa litið á ritsímann sem sérstaklega nytsamt tæki fyrir Íslendinga, heldur vildu þeir greiða götu hans af gestrisni og stolti yfir að frægir útlendingar legðu leið sína til landsins. Ekkert varð heldur úr áformunum um norðurleiðina. Eftir að bandarísku borgarastyrjöldinni lauk og efnahagur Bandaríkjanna tók að glæðast á ný, tóku Field og félagar hans upp rit- símaþráðinn að nýju. Árið 1866 tókst þeim að leggja nýjan streng yfir þvert Atlantshafið og að þessu sinni brást tæknin ekki. Þar með var öllum hug- myndum um aðrar og lengri ritsíma- lagnir sjálfhætt. Máttu Íslendingar því bíða í nærri hálfa öld eftir að komast í samband við umheiminn. Ballið var Búið eftir aðeinS um hálfS mán- aðar rekStur. ERTU LÖNGU HÆTTUR AÐ TAKA Í NEFIÐ EN SITUR UPPI MEÐ SKEMMDIRNAR! Hlíðasmára 9 • Kópavogi • S. 893 0098 • snyrt@snyrt.is • www.snyrt.is Snyrtistofan Ha lik Okkar sérsvið er háræðaslitsmeðferðir. Fyrir þá sem vilja alvöru árangur ! 1 4 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r38 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 1 4 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 1 1 2 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D F 8 -9 4 B 4 1 D F 8 -9 3 7 8 1 D F 8 -9 2 3 C 1 D F 8 -9 1 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 1 2 s _ 1 3 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.