Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2017, Blaðsíða 2
Vikublað 10.–12. janúar 20172 Fréttir
Karamella og perur Súkkulaði og ferskjur Vanilla og kókos
Bragðgóð grísk jógúrt að vestan
Stórtækur
þjófur dæmdur
Héraðsdómur Reykjaness
hefur dæmt 25 ára karlmann í
átján mánaða óskilorðsbundið
fangelsi fyrir þjófnaðarbrot,
skjalafals, nytjastuld og um
ferðarlagabrot. Maðurinn var
meðal annars ákærður fyrir að
stela nokkrum sinnum áfengi
úr verslunum ÁTVR auk þess
að stela úr verslunum Elko,
Cintamani, Olís og Nýherja.
Maðurinn, sem á langan af
brotaferil að baki, játaði sök
og var hann dæmdur í átján
mánaða fangelsi. Þá var hon
um gert að greiða rúma 1,1
milljón í sakarkostnað.
Svandís klagar
Bjarna til
umboðsmanns
Svandís Svavarsdóttir, formaður
þingflokks VG, hefur sent um
boðsmanni Alþingis bréf þar sem
hún óskar eftir því að umboðs
maður Alþingis taki til skoðunar
hvort Bjarni Benediktsson fjár
málaráðherra hafi gerst brotlegur
við siðareglur. Málið varðar
skýrslu um eignir Íslendinga á
aflandssvæðum.
Skýrslan var komin í ráðuneyti
Bjarna þann 13. september en var
ekki birt fyrr en á nýju ári. Í milli
tíðinni voru kosningar en Svandís
segir að kunnugt sé að þær hafi
snúist að verulegu leyti um skatta
mál og skattaundanskot.
Þetta veki spurningar um hvort
Bjarni hafi gerst brotlegur við 6.
grein siðareglna: „Ráðherra leynir
ekki upplýsingum sem varða al
mannahag nema lög bjóði eða al
mannahagsmunir krefjist þess að
öðru leyti. Ráðherra ber að hafa
frumkvæði að birtingu slíkra upp
lýsinga sé hún í almannaþágu.“
Þ
að sýður í manni reiðin yfir
framferði lögreglunnar og að
mínu mati er þetta ofbeldi og
valdníðsla. Ég er fullkom lega
gáttaður á því að þeir menn
sem að þessum gjörningi stóðu skulu
enn ganga um í lögreglubúningi,“
segir Þórbergur Torfason í samtali
við DV. Þórbergur var í byrjun árs
dæmdur til þess að greiða um 160
þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs
fyrir ólöglega framleiðslu áfengis auk
þess að greiða 710 þúsund krónur í
sakarkostnað. Að sögn Þórbergs var
um að ræða krækiberjasaft í tunnum
sem gleymst hafði að setja á flöskur
og var farin að gerjast. Lögreglan hafi
sótt málið fast eftir að hafa mistek
ist að sanna ólöglegan gistirekstur á
kærustu Þórbergs.
„Þetta er gömul
uppskrift frá mömmu“
Forsaga málsins er sú að kærasta
Þórbergs rekur farfuglaheimilið
Hafölduna á Seyðisfirði yfir sumar
mánuðina. Vegna snjóflóðahættu er
óheimilt að stunda gistirekstur þar
frá 1. nóvember til 1. apríl ár hvert.
Húsnæðið gistirekstrarins er tvískipt;
öðrum megin er farfuglaheimilið en
hinum megin er íbúð kærustu Þór
bergs. „Lögreglan ruddist hingað inn
í mars 2015 til þess að freista þess að
standa okkur að verki við ólöglegan
gistirekstur. Sá gjörningur var full
komlega ólöglegur. Að sjálfsögðu
gripu þeir í tómt því ekkert slíkt við
gengst hérna. Þeir ráku hins vegar
augun í þessa plastkúta og halda því
fram að þeir hafi fengið ábendingu
um ólöglega áfengisframleiðslu. Það
heldur ekki vatni, ég var meira að
segja búinn að gleyma þessu sjálfur,“
segir Þórbergur ómyrkur í máli.
Að hans sögn búa hann og
kærasta hans til krækiberjasaft á
hverju ári. „Þetta er gömul uppskrift
frá mömmu. Ég átti síðan eftir að
sykra og smakka þetta til en venju
lega gerum við það strax og setjum
þetta í flöskur. Mitt kæruleysi olli því
að það gleymdist og því fór sem fór,“
segir Þórbergur.
Taldi saftið vera ónýtt
Hann býr ekki á Seyðisfirði og kærasta
hans dvelur langdvölum í Indlandi
yfir vetrarmánuðina. „Ég ferðast mik
ið um vegna vinnu minnar og fæ að
gista hérna þegar ég á leið hjá,“ segir
Þorbergur. Lítill umgangur hafi því
verið um íbúðarhúsnæðið þessa
mánuði sem krækiberjasaftið gerjað
ist og varð að áfengum veigum. „Það
er ekki sála sem fer inn í íbúðarhús
næði yfir veturinn þannig að meint
nafnlaus ábending er þvættingur. Ég
taldi saftið vera ónýtt en einhverjir
sérfræðingar sögðu það hafa verið í
fullri gerjun og mældu áfengispró
sentuna á bilinu 13–15 prósent. Það
kom aldrei fram hvort glundrið hafi
verið drykkjarhæft og ég auglýsi hér
með eftir því hvort að einhver hafi
bragðað á þessu,“ segir Þórbergur.
Í dómsorði kemur fram að Þór
bergur hafi sagst eiga „þetta vín
og bruggað það“ þegar honum var
kynnt réttarstaða sín en síðan haft
aðra sögu að segja fyrir dómi. „Ég
kann ekki að brugga og það var ekki
ætlun mín. Þetta er einfaldlega lygi,“
segir Þórbergur.
Hyggjast kæra
framgöngu lögreglu
Hann fordæmir framgöngu lögreglu
og segir hana vera með öllu óásættan
lega. „Konan mín má ekki stunda
gistirekstur yfir vetrarmánuðina og
gerir það ekki. Hún hefur hins vegar
fullan rétt til að heimila afnot gesta af
heimili sínu,“ segir Þórbergur. Þannig
hafi samstarfsmaður hennar í gisti
rekstrinum fengið að dvelja á far
fuglaheimilinu meðan á viðhaldi á
íbúðarhúsnæði hans stóð auk þess
sem sonur kærustunnar dvaldi þar um
skeið á meðan hann kom að tökum á
sjónvarpsþáttunum Ófærð þar eystra.
„Hann var sóttur niður á bryggju og
hótað handtöku ef hann myndi ekki
skrifa undir húsleitarheimild. Á með
an hafði húseigandi ekki hugmynd um
hvað gekk á,“ segir Þórbergur.
Emjaði af hræðslu
Þá fékk þýsk stúlka sem vann á spít
alanum á Seyðisfirði að gista á far
fuglaheimilinu gegn því að annast
heimilisköttinn og hænurnar. „Hún
var á heimleið dag einn þegar lög
reglan stöðvaði för hennar og skip
aði henni að setjast upp í lögreglu
bílinn. Þeir hótuðu henni síðan
öllu illu ef hún myndi ekki skrifa
undir yfirlýsingu þess efnis að hún
væri að kaupa gistingu hér,“ segir
Þórbergur. Að hans sögn hafi stúlk
unni verið verulega brugðið eftir
þessa upplifun „Þegar ég kom inn
í íbúðina þá lá hún með köttinn í
fanginu og emjaði af hræðslu. Sú
framganga verður að öllum líkind
um kærð,“ segir Þórbergur.
Hann hefur ekki enn tekið
ákvörðun um hvort að dómnum
verði áfrýjað. „Ég mun lesa dóm
inn gaumgæfilega og síðan gera upp
minn hug,“ segir Þórbergur. n
Krækiberjasaftsmálið:
„Ofbeldi og valdníðsla“
n Dæmdur til að greiða tæpa milljón n Heimabruggið yfirvarp lögreglu
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Á pari við Íran
varðandi lög
um heimabrugg
Á Íslandi er með öllu óheimilt að brugga
drykki sem eru með áfengisprósentu yfir
2,25%. Til samanburðar heimila öll hin
Norðurlöndin heimabruggun undir 22%
að styrkleika, til einkanota án þess að
skorður séu settar á magn.
Í Bretlandi er sömuleiðis heimilt að
brugga til einkanota undir 22% styrk-
leika og engar skorður á magn.
Í Bandaríkjunum er heimilt að brugga
fyrir sig og fjölskylduna. Takmarkanir
eru þó settar á magn en einstaklingur
má aðeins framleiða 378,5 lítra á ári og
fjölskylda má framleiða 757 lítra.
Í fljótu bragði finnast aðeins tvö lönd,
fyrir utan Ísland, sem banna heima-
brugg. Það eru Íran og Malasía.
Þórbergur Torfason
Fordæmir framgöngu
lögreglu í kræki-
berjasaftsmáli.