Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2017, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2017, Blaðsíða 8
Vikublað 10.–12. janúar 20178 Fréttir powerið og bassinn engu líkur! Þráðlausu Touch heyrnartólin fást á www.mytouch.rocks Hægt að tengja við síma, ipad og öll bluetooth tæki. Einnig er hægt að svara í símann með þeim. Fæst á www.mytouch.rocks MagnesíuM Kísill Hin fullkomna tvenna fyrir Heilsu og fegurð 20% afsláttur í MaMMa veit best og heilsuhúsunuM í janúar Stífla í SetbergShverfinu getur verið dauðagildra n Krafturinn dró hund Kolbeins undir yfirborðið n Segir svæðið mjög varasamt e f ég hefði sogast þarna undir þá værum við líklega ekki að tala saman núna.“ Þetta segir Kolbeinn Hrafnkelsson sem lenti í þeirri erfiðu lífsreynslu á sunnudaginn að hundurinn hans, Stígur, sogaðist niður í stífluna við lækinn sem liggur við Elliðavatnsveg í Setbergshverfi í Hafnarfirði. Kol- beinn fór á eftir honum út í vatnið og litlu munaði að hann sjálfur sogaðist undir yfirborðið. Stórhættulegt Þeir Kolbeinn og Stígur voru einir á ferð þegar slysið átti sér stað en Kolbeinn hefur í mörg ár, líkt og fjöldi annarra hundaeigenda í ná- grenninu, farið á þennan stað með hundana sína. Þá segir hann að mörg börn leiki sér við stífluna. Kol- beinn fór oft í gönguferðir meðfram læknum þegar hann var í grunn- skóla og leikskóli er í næsta nágrenni við hana. Kolbeinn vill með frásögn sinni vara fólk við slysahættunni og segir svæðið stórhættulegt, sérstaklega núna þar sem lækurinn er mjög vatnsmikill. „Hundurinn minn var að synda fyrir miðju stutt frá stíflunni þegar hann sogaðist niður og hvarf ofan í vatnið,“ segir Kolbeinn og bætir við að það þurfi mikinn kraft til að draga 35 kílóa hund niður. Gríðarlegur kraftur Fyrstu viðbrögð Kol- beins þegar hann sá hundinn hverfa undir yfirborðið, fyrir fram- an augun á sér, var að stökkva út í á eftir honum. „Ég var kom- inn í vatn upp að mitti og reyndi að þreifa eða ná taki á honum með höndun- um en greip alltaf í tómt. Ég sá hann hvergi og vissi ekki hvort hann var fastur einhvers staðar eða hreinlega drukknaður.“ Þegar þarna var komið sögu stóð Kolbeinn beint fyrir framan sogið og velti fyrir sér hvort hann ætti að fara inn í það og kafa undir yfirborðið í þeirri von að bjarga Stíg. „Ef ég hefði gert það þá værum við líklega ekki að tala saman núna. Kraft- urinn í þessu var svo svakalegur. Ég gerði mér þó enga grein fyrir þessari hættu fyrr en eftir að ég var kominn upp úr. Þetta gerðist svo hratt og ég hugsaði ekki alveg rökrétt. Það eina sem komst að var að ég þyrfti að gera eitt- hvað til að bjarga honum.“ Dauðagildra Á því andartaki leit Kolbeinn upp og sá Stíg á bakkanum hinum megin við stífluna. „Þar var hann að klóra sér í eyrunum og í fullkomnu lagi. Ein- hvern veginn komst hann í gegnum rörið. Ég skil eiginlega ekki hvern- ig hann komst þarna í gegn þar sem gatið er ekki stórt. Ef barn myndi detta þarna ofan í myndi það líklega ekki komast þarna í gegn.“ Þeir félagar komust að lokum heim blautir og kaldir: „Ég hef aldrei tekið eftir því hvað það er mikið sog þarna og efast um að margir viti af því. Því er full ástæða til að vara fólk við þessari hættu. Hundarnir hafa aldrei synt á ná- kvæmlega þessum stað áður þó svo að þeir hafi oft synt í vatninu. Fyrir mér hefur þetta einfaldlega alltaf ver- ið stífla úr grjóthrúgu en hún getur verið dauðagildra.“ n Flaumur Rörið sem um ræðir í greininni. MynD Kolbeinn HraFnKelSSon Sogið Gríðarlegur kraftur er á þessum stað í stíflunni. MynD Kolbeinn HraFnKelSSon Kristín Clausen kristin@dv.is Setbergshverfi Hér má sjá staðinn þar sem stíflan er.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.