Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2017, Blaðsíða 8
Vikublað 10.–12. janúar 20178 Fréttir
powerið og bassinn
engu líkur!
Þráðlausu Touch heyrnartólin fást á www.mytouch.rocks
Hægt að tengja við síma, ipad og öll bluetooth tæki.
Einnig er hægt að svara í símann með þeim.
Fæst á www.mytouch.rocks
MagnesíuM Kísill
Hin fullkomna tvenna
fyrir Heilsu og fegurð
20% afsláttur í MaMMa veit best og heilsuhúsunuM í janúar
Stífla í SetbergShverfinu
getur verið dauðagildra
n Krafturinn dró hund Kolbeins undir yfirborðið n Segir svæðið mjög varasamt
e
f ég hefði sogast þarna undir
þá værum við líklega ekki að
tala saman núna.“ Þetta segir
Kolbeinn Hrafnkelsson sem
lenti í þeirri erfiðu lífsreynslu
á sunnudaginn að hundurinn hans,
Stígur, sogaðist niður í stífluna við
lækinn sem liggur við Elliðavatnsveg
í Setbergshverfi í Hafnarfirði. Kol-
beinn fór á eftir honum út í vatnið og
litlu munaði að hann sjálfur sogaðist
undir yfirborðið.
Stórhættulegt
Þeir Kolbeinn og Stígur voru einir
á ferð þegar slysið átti sér stað en
Kolbeinn hefur í mörg ár, líkt og
fjöldi annarra hundaeigenda í ná-
grenninu, farið á þennan stað með
hundana sína. Þá segir hann að
mörg börn leiki sér við stífluna. Kol-
beinn fór oft í gönguferðir meðfram
læknum þegar hann var í grunn-
skóla og leikskóli er í næsta nágrenni
við hana.
Kolbeinn vill með frásögn sinni
vara fólk við slysahættunni og segir
svæðið stórhættulegt, sérstaklega
núna þar sem lækurinn er mjög
vatnsmikill.
„Hundurinn minn var að synda
fyrir miðju stutt frá stíflunni þegar
hann sogaðist niður og hvarf ofan í
vatnið,“ segir Kolbeinn og bætir við
að það þurfi mikinn kraft til að draga
35 kílóa hund niður.
Gríðarlegur kraftur
Fyrstu viðbrögð Kol-
beins þegar hann sá
hundinn hverfa undir
yfirborðið, fyrir fram-
an augun á sér, var
að stökkva út í á eftir
honum. „Ég var kom-
inn í vatn upp að mitti
og reyndi að þreifa eða ná
taki á honum með höndun-
um en greip alltaf í tómt. Ég sá hann
hvergi og vissi ekki hvort hann var
fastur einhvers staðar eða hreinlega
drukknaður.“
Þegar þarna var komið sögu stóð
Kolbeinn beint fyrir framan sogið og
velti fyrir sér hvort hann ætti að fara
inn í það og kafa undir yfirborðið í
þeirri von að bjarga Stíg.
„Ef ég hefði gert það þá
værum við líklega ekki að
tala saman núna. Kraft-
urinn í þessu var svo
svakalegur. Ég gerði
mér þó enga grein fyrir
þessari hættu fyrr en
eftir að ég var kominn
upp úr. Þetta gerðist svo
hratt og ég hugsaði ekki
alveg rökrétt. Það eina sem
komst að var að ég þyrfti að gera eitt-
hvað til að bjarga honum.“
Dauðagildra
Á því andartaki leit Kolbeinn upp og
sá Stíg á bakkanum hinum megin við
stífluna. „Þar var hann að klóra sér
í eyrunum og í fullkomnu lagi. Ein-
hvern veginn komst hann í gegnum
rörið. Ég skil eiginlega ekki hvern-
ig hann komst þarna í gegn þar sem
gatið er ekki stórt. Ef barn myndi
detta þarna ofan í myndi það líklega
ekki komast þarna í gegn.“
Þeir félagar komust að lokum
heim blautir og kaldir:
„Ég hef aldrei tekið eftir því hvað
það er mikið sog þarna og efast um
að margir viti af því. Því er full ástæða
til að vara fólk við þessari hættu.
Hundarnir hafa aldrei synt á ná-
kvæmlega þessum stað áður þó svo
að þeir hafi oft synt í vatninu. Fyrir
mér hefur þetta einfaldlega alltaf ver-
ið stífla úr grjóthrúgu en hún getur
verið dauðagildra.“ n
Flaumur Rörið sem um ræðir í greininni. MynD Kolbeinn HraFnKelSSon
Sogið Gríðarlegur kraftur er á þessum stað í stíflunni. MynD Kolbeinn HraFnKelSSon
Kristín Clausen
kristin@dv.is
Setbergshverfi Hér má sjá staðinn þar
sem stíflan er.