Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2017, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2017, Blaðsíða 21
Vikublað 10.–12. janúar 2017 Kynningarblað - Það er leikur að læra 3 Retor Fræðsla Gera íslensku að leiðandi tungumáli á vinnustöðum þar sem innflytjendur starfa M argir útlendingar sem flytja til Íslands byrja að læra ensku áður en þeir læra íslensku. Þessi til­ hneiging veldur því að fólk lærir íslensku seinna og verr en ella. Lausnin á þessu er að gera íslenskt samstarfsfólk meðvitaðra um þetta og koma bæði íslenskum og erlendum starfsmönnum upp á lag með að nota íslensku sem leið­ andi tungumál á staðnum. Hægt er að byrja á því að kenna útlenda starfsfólkinu orð og setningar sem mest reynir á í daglegum störfum þess og kenna síðan íslenska starfs­ fólkinu þann orða­ forða sem erlendu samstarfsfólki þess hefur verið kennd­ ur. Þannig verður til grunnur sem hægt er að byggja ofan á með því að erlenda starfsfólkið bætir jafnt og þétt fleiri orðum inn í sín dag­ legu samtöl.“ Þetta segir Aneta Matsuszewska, stofn andi Retor Fræðslu, en fyrir­ tækið hefur boðið upp á markvissa og vandaða ís­ lenskukennslu fyrir útlendinga síðan árið 2008. Aneta er frá Póllandi, hún flutti hingað árið 2001 og einsetti sér að ná fljótt tök­ um á íslenskunni. Aðeins þremur árum síðar var hún farin að kenna öðrum útlendingum íslensku. Sú starfsemi þróaðist síðan út í það fyrir tæki sem Retor Fræðsla er. Retor er með opin námskeið fyrir almenna nemendur en einnig sam­ starfssamninga við hin ýmsu fyrir­ tæki sem fela í sér sérhæfð námskeið fyrir starfsfólk þess. Meðal fyrirtækja sem eru með þannig samstarfs­ samning við Retor eru Strætó bs., Kynnisferðir, Héðinn hf. og Subway. Íslenskan styrkir fyrirtækið Fyrir marga er erfitt að taka fyrstu skrefin í að tjá sig á framandi tungu­ máli. Enginn getur hins vegar náð tökum á íslensku án þess að æfa sig og mikilvægt er að gera Íslendinga meðvitaða um þetta. Í starfi sínu á vinnu­ stöðum leggur Retor mikið upp úr því að fræða íslenska starfs­ fólkið og fá það til að skapa umhverfi þar sem íslenskan er leiðandi tungumál. Að erlent starfsfólk á vinnustöð­ um nái tökum á íslensku skapar margvíslegan ávinning fyrir bæði það sjálft og fyrirtækið: „Þetta eykur klárlega starfsánægju erlenda starfs­ fólksins, það getur veitt viðskiptavin­ um betri þjónustu og samstarf við ís­ lenska vinnufélaga verður betra. Eru þá ónefnd þau lífsgæði sem felast í því fyrir fólk að geta talað tungumál­ ið og eiga þannig greiðari leið inn í samfélagið, eignast fleiri vini og fé­ laga og hafa greiðari aðgang að upp­ lýsingum,“ segir Aneta. Aneta segir að flestir geti lært ís­ lensku óháð aldri, en grundvallar­ atriði sé að fólk geti æft sig að tala málið á hverjum degi og íslenskan verði hluti af daglegu umhverfi þess. Hins vegar sé tungumálalegur bak­ grunnur fólks ólíkur og hann valdi því að sumir þurfa lengri tíma en aðrir til að ná tökum á málinu. Þannig tali fólk frá Suðaustur­Asíu til dæmis tungumál með allt öðrum málfræði­ kerfum en evrópsk tungumál byggj­ ast upp á og það hafi mikil áhrif: „Við leggjum áherslu á að íslensku­ kennslan fari fram með móður­ mál nemandans eða annað tungu­ mál sem brú. Þannig erum við með pólskan kennara sem kennir Pólverj­ um íslensku, Lithái kennir Litháum og Rússum og svo er enskumælandi kennari sem kennir blönduðum hópum. Enn fremur skiptum við hópunum upp eins og hægt er eftir tungumálabakgrunni hvers og eins og kunnáttu hvers og eins í íslensk­ unni,“ segir Aneta að lokum. Retor Fræðsla er til húsa að Hlíðasmára 8 í Kópavogi. Síminn er 519­4800. Nánari upplýsingar eru á heimasíðunni retor.is. n „Þetta eykur klár- lega starfsánægju erlenda starfsfólksins, það getur veitt viðskipta- vinum betri þjónustu og samstarf við íslenska vinnufélaga verður betra. Stofnandi Retor Fræðslu Aneta Matsuszewska.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.