Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2017, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2017, Blaðsíða 22
Vikublað 10.–12. janúar 20174 Það er leikur að læra - Kynningarblað Best geymda leyndar- mál Reykjavíkur Hringsjá: Einstaklingsmiðuð náms- og starfsendurhæfing„Námið breytti öllu lífsviðhorfi mínu. Ég lærði til dæmis stærð- fræði í fyrsta skipti á ævinni, en ég hélt að það væri mér algerlega fyrirmunað. D agný Rós Sigurðardóttir var orðin 26 ára og langaði að feta menntaveginn en hafði ekki næga trú á því að hún gæti lært. Hún hafði verið í endurhæfingu hjá Hvítabandinu, sem er úrræði á vegum Landspítal­ ans. Þar var hún í sálfræðimeðferð og sótti námskeið í hugrænni atferlis­ meðferð HAM. Ástæða endurhæf­ ingar var tilfinningalegt áfall eftir röð slæmra atburða, allt frá æsku. Í framhaldi af endurhæfingunni á Hvítabandinu fór Dagný í Hring­ sjá náms­ og starfsendurhæfingu og stundaði þar nám frá 2012 til 2013. Hringsjá er náms­ og starfsendur­ hæfing fyrir fólk sem vill komast aftur út á vinnumarkaðinn eftir hlé vegna sjúkdóma, slysa eða annarra áfalla. Námið hentar einnig þeim sem hafa litla grunnmenntun eða sértæka námserfiðleika. Stefnt er að því að þeir sem útskrifast frá Hring­ sjá verði færir um að takast á við nám í almennum framhaldsskólum og finna störf við hæfi á vinnumarkaðn­ um. „Hringsjá er yndislegur staður. Það er svo vel haldið utan um mann og kærleikurinn svo ríkjandi, um leið og maður gengur inn í húsið. Þótt þú sért að drepast úr stressi, þá finnurðu að þú ert á öruggum stað. Hringsjá er lítill griðastaður inni í öllu kaosinu í Reykjavík,“ segir Dagný. Breytti öllu „Námið breytti öllu lífsviðhorfi mínu. Ég lærði til dæmis stærðfræði í fyrsta skipti á ævinni, en ég hélt að það væri mér algerlega fyrirmunað. Nám­ ið færði mér einnig upp í hendur fjölda verkfæra sem ég get nýtt mér í daglegu lífi, eins og til að takast á við kvíðann. Ef ég lendi í kvíðafull­ um aðstæðum get ég nýtt mér núvit­ undina. Ég lærði líka að ég get alveg lært, þó að það taki mig aðeins lengri tíma. Þannig efldi ég sjálfstæði mitt og styrk.“ Náms­ og starfsendur­ hæfing Hringsjár felst í margvís­ legum styttri námskeiðum og í námi á framhaldsskólastigi sem tekur þrjár annir. Sérstaða Hring­ sjár er fólgin í námi sem tekur mið af einstaklingnum. Samhliða kennslu býðst nemanda að nýta sér sérfræðiráðgjöf og í ákveðnum til­ vikum er um að ræða einstaklings­ miðaða einkakennslu. Starfið snýst þannig um hjálp til sjálfshjálpar og gefur nemanda verkfæri til sjálf­ styrkingar í áframhaldandi námi og starfi. Starfsemi Hringsjár byggir þannig fyrst og fremst á námi og kennslu, ráðgjöf, stuðningi og sam­ vinnu. „Hópurinn var líka svo frá­ bær og hélt vel saman allar annirnar. Við náðum alveg ótrúlega vel saman og það var mjög mikill kærleikur á milli allra, þó að við værum á öllum aldri,“ greinir Dagný frá. Og hvað núna? Dagný stundar nú nám í Félagsráð­ gjöf í Háskóla Ísland. „Mig langar að gefa til baka og hjálpa öðrum í svipaðri stöðu og ég var í. Ég get líka sýnt að það er hægt að vinna sig út úr vandamálunum með þraut­ seigju og jákvæðni.“ Samkvæmt ár­ angursmælingum hefur árangurinn af náminu verið ótrúlegur síðustu tuttugu ár, enda hefur einstaklingum með atvinnutekjur fjölgað úr 4% fyr­ ir nám, í 42% eftir nám hjá Hringsjá. Yfirgnæfandi meirihluta nemenda, eða um 91%, finnst námið nýtast sér mjög vel, eða nokkuð vel. Og yfir 60% vilja hafa námið lengra. „Hring­ sjá er best geymda leyndarmál á Ís­ landi og þeir sem lenda þar eru af­ skaplega heppnir ef þeir nýta sér þetta tækifæri, því það er ómetan­ legt,“ bætir Dagný við. Skráning nemenda fer fram tvisvar á ári og er umsóknarfrestur fyrir haustönn 2017 til 15. maí. Næstu námskeið byrja 17. janúar. Hringsjá er til húsa að Hátúni 10d, Reykjavík, á horni Kringlu­ mýrarbrautar og Laugavegar. Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu Hring sjár, hringsja.is, og á Face­ book­síðu Hringsjár. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.