Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2017, Blaðsíða 22
Vikublað 10.–12. janúar 20174 Það er leikur að læra - Kynningarblað
Best geymda leyndar-
mál Reykjavíkur
Hringsjá: Einstaklingsmiðuð náms- og starfsendurhæfing„Námið
breytti öllu
lífsviðhorfi mínu. Ég
lærði til dæmis stærð-
fræði í fyrsta skipti á
ævinni, en ég hélt að
það væri mér algerlega
fyrirmunað.
D
agný Rós Sigurðardóttir var
orðin 26 ára og langaði að
feta menntaveginn en hafði
ekki næga trú á því að hún
gæti lært. Hún hafði verið
í endurhæfingu hjá Hvítabandinu,
sem er úrræði á vegum Landspítal
ans. Þar var hún í sálfræðimeðferð og
sótti námskeið í hugrænni atferlis
meðferð HAM. Ástæða endurhæf
ingar var tilfinningalegt áfall eftir röð
slæmra atburða, allt frá æsku.
Í framhaldi af endurhæfingunni
á Hvítabandinu fór Dagný í Hring
sjá náms og starfsendurhæfingu og
stundaði þar nám frá 2012 til 2013.
Hringsjá er náms og starfsendur
hæfing fyrir fólk sem vill komast
aftur út á vinnumarkaðinn eftir hlé
vegna sjúkdóma, slysa eða annarra
áfalla. Námið hentar einnig þeim
sem hafa litla grunnmenntun eða
sértæka námserfiðleika. Stefnt er að
því að þeir sem útskrifast frá Hring
sjá verði færir um að takast á við nám
í almennum framhaldsskólum og
finna störf við hæfi á vinnumarkaðn
um. „Hringsjá er yndislegur staður.
Það er svo vel haldið utan um mann
og kærleikurinn svo ríkjandi, um leið
og maður gengur inn í húsið. Þótt þú
sért að drepast úr stressi, þá finnurðu
að þú ert á öruggum stað. Hringsjá er
lítill griðastaður inni í öllu kaosinu í
Reykjavík,“ segir Dagný.
Breytti öllu
„Námið breytti öllu lífsviðhorfi mínu.
Ég lærði til dæmis stærðfræði í fyrsta
skipti á ævinni, en ég hélt að það
væri mér algerlega fyrirmunað. Nám
ið færði mér einnig upp í hendur
fjölda verkfæra sem ég get nýtt mér
í daglegu lífi, eins og til að takast á
við kvíðann. Ef ég lendi í kvíðafull
um aðstæðum get ég nýtt mér núvit
undina. Ég lærði líka að ég get alveg
lært, þó að það taki mig aðeins lengri
tíma. Þannig efldi ég sjálfstæði mitt
og styrk.“ Náms og starfsendur
hæfing Hringsjár felst í margvís
legum styttri námskeiðum og í
námi á framhaldsskólastigi sem
tekur þrjár annir. Sérstaða Hring
sjár er fólgin í námi sem tekur
mið af einstaklingnum. Samhliða
kennslu býðst nemanda að nýta sér
sérfræðiráðgjöf og í ákveðnum til
vikum er um að ræða einstaklings
miðaða einkakennslu. Starfið snýst
þannig um hjálp til sjálfshjálpar og
gefur nemanda verkfæri til sjálf
styrkingar í áframhaldandi námi
og starfi. Starfsemi Hringsjár byggir
þannig fyrst og fremst á námi og
kennslu, ráðgjöf, stuðningi og sam
vinnu. „Hópurinn var líka svo frá
bær og hélt vel saman allar annirnar.
Við náðum alveg ótrúlega vel saman
og það var mjög mikill kærleikur á
milli allra, þó að við værum á öllum
aldri,“ greinir Dagný frá.
Og hvað núna?
Dagný stundar nú nám í Félagsráð
gjöf í Háskóla Ísland. „Mig langar
að gefa til baka og hjálpa öðrum
í svipaðri stöðu og ég var í. Ég get
líka sýnt að það er hægt að vinna sig
út úr vandamálunum með þraut
seigju og jákvæðni.“ Samkvæmt ár
angursmælingum hefur árangurinn
af náminu verið ótrúlegur síðustu
tuttugu ár, enda hefur einstaklingum
með atvinnutekjur fjölgað úr 4% fyr
ir nám, í 42% eftir nám hjá Hringsjá.
Yfirgnæfandi meirihluta nemenda,
eða um 91%, finnst námið nýtast
sér mjög vel, eða nokkuð vel. Og yfir
60% vilja hafa námið lengra. „Hring
sjá er best geymda leyndarmál á Ís
landi og þeir sem lenda þar eru af
skaplega heppnir ef þeir nýta sér
þetta tækifæri, því það er ómetan
legt,“ bætir Dagný við.
Skráning nemenda fer fram
tvisvar á ári og er umsóknarfrestur
fyrir haustönn 2017 til 15. maí.
Næstu námskeið byrja 17. janúar.
Hringsjá er til húsa að Hátúni
10d, Reykjavík, á horni Kringlu
mýrarbrautar og Laugavegar. Nánari
upplýsingar má nálgast á vefsíðu
Hring sjár, hringsja.is, og á Face
booksíðu Hringsjár. n